Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Halldóra segir fátækt skömm samfélagsins og stjórnmálanna: „Nú er tími nýrra hugmynda og breytinga“

Halldóra segir fátækt skömm samfélagsins og stjórnmálanna: „Nú er tími nýrra hugmynda og breytinga“
Halldóra Mogensen.

Halldóra Mogensen þing­maður Pírata tjáir sig um fátækt á Íslandi, segir hana vera „afleið­ingu ákvarð­ana sem stjórn­völd taka hverju sinni. Ákvarð­ana sem við­halda kerf­is­lægri fátækt“ og segir að „skerð­ingar og lágar bætur við­halda fátækt. Háir skattar af lágum launum, van­fjár­magnað mennta­kerfi, hús­næði á upp­sprengdu verði og refsi­stefna í vímu­efna­málum við­heldur fátækt. Sam­þjöppun auðs og eigna í höndum fárra við­heldur fátækt. Að fólk hafi ekki aðgang að hollum mat, þaki yfir höf­uðið og við­eig­andi fatn­aði við­heldur fátækt. Að fólk hafi ekki frelsi til að ákvarða fram­tíð sína óháð efna­hag við­heldur fátækt.“

Halldóra er á því að „hug­mynda­fræði við­heldur fátækt. Hug­mynda­fræði sem til­biður sam­keppni og ræktar hana sem lýsandi ein­kenni mann­legra sam­skipta. Hug­mynda­fræði sem end­ur­skil­greinir fólkið í land­inu sem neyt­endur og lýð­ræðið sem kaup og sölu á vörum. Hug­mynda­fræði þar sem mark­að­ur­inn er heil­agur og ávinn­ingur er aðeins skil­greindur í krónum og aurum.“

Og bætir við:

„Samkvæmt ofan­greindri hug­mynda­fræði eru til­raunir til að tak­marka sam­keppni skað­legar frels­inu. Skattar og reglu­gerðir verða að vera í lág­marki. Opinbera þjón­ustu ber að einka­væða. Ójöfn­uður er dyggð, verð­laun fyrir skil­virkni sem skapar mik­inn auð á toppnum sem sull­ast svo niður og auðgar sam­fé­lagið allt. Til­raunir til að skapa jafn­ara sam­fé­lag eru bein­línis í and­stöðu við það sem er nán­ast orðin trú­ar­brögð og þar af leið­andi sið­ferð­is­lega rangt. Mark­að­ur­inn á að tryggja að allir fái það sem þeir eiga skilið.“

Halldóra vill meina að „hin ríku sann­færa sig um að þau hafi eign­ast pen­ing­ana sína vegna eigin verð­leika og hunsa tæki­færin sem þau höfðu fram yfir aðra; svo sem menntun, efna­hag og stuðn­ings­getu for­eldra. Fátækt fólk byrjar að kenna sjálfum sér um mis­tök sín þrátt fyrir að hafa litla stjórn á aðstæðum sínum og litla mögu­leika á að sækja sér þau tæki­færi sem þörf er á til að betrumbæta líf sitt.“

Bendir einnig á að „fátækt er ein­kenni skað­legrar hug­mynda­fræði. Við upp­rætum ekki fátækt án þess að bera kennsl á og tækla und­ir­liggj­andi mein. Fátækt er ekki skömm ein­stak­lings­ins sem lifir við hana. Fátækt er skömm sam­fé­lags­ins og stjórn­mála­fólks sem við­heldur henni. Ábyrgðin er okkar allra að rýna í sam­fé­lags­gerð­ina með gagn­rýnum augum og opnum hug og kjósa nýja nálgun, því nú er tími nýrra hug­mynda. Nú er tími breyt­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina