Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Herdís kúabóndi segir neytendur vilja íslenskt kjöt: „Íslenski bóndinn orðið undir í verðstríði“

Herdís kúabóndi segir neytendur vilja íslenskt kjöt: „Íslenski bóndinn orðið undir í verðstríði“

Herdís Magna Gunn­ars­dóttir er for­maður lands­sam­bands kúa­bænda og hún segir að hér á landi sé stefnu­laus inn­flutn­ingur á kostnað inn­lendrar fram­leiðslu:

„Nýút­komin skýrsla frá RML um afkomu nauta­kjöts­fram­leið­enda, sem nær til rekstr­ar­ár­anna 2017-2019, hefur sýnt fram á að tekjur af sölu nauta­kjöts stóðu ekki undir fram­leiðslu­kostn­aði,“ segir hún og bætir við:

„Á síð­asta ári fengum við svo enn meiri afurða­verðs­lækk­anir á okkur og því er staða grein­ar­innar í dag enn alvar­legri; líkt og bænda­for­ystan hefur bent á um nokk­urt skeið. Vandinn er lík­lega marg­þættur en þar ber helst að nefna aukna sam­keppni við inn­flutn­ing á lægri verðum,“ segir Herdís og bætir við:

„Í ræðu for­sæt­is­ráð­herra á síð­asta Bún­að­ar­þingi minnt­ist hún á að inn­lendur land­bún­aður og mat­væla­fram­leiðsla verði ein stærstu póli­tísku mál þess­arar aldar og að með skýrri stefnu um aukið hlut­fall inn­lendrar fram­leiðslu af neyslu okkar sé í senn hægt að tryggja fæðu- og mat­væla­ör­yggi. Þannig tryggjum við aðgengi að mat og höfum betri tök á að tryggja heil­næmi mat­væl­anna með skýrum reglum um sýkla­lyfja­notkun. Þá getum við um leið unnið gegn lofts­lags­breyt­ingum með því að draga úr flutn­ingum heims­horna á milli á mat sem hægt er að fram­leiða hér.“

Og færir í tal bleika fíl­inn:

„Gerðar eru ákveðnar kröfur um fram­leiðslu­hætti og gæði inn­lendra mat­væla. Það hlýtur að vera sjálf­sögð krafa að í það minnsta séu gerðar sömu kröfur til inn­fluttra mat­væla og gerðar eru til inn­an­lands­fram­leiðsl­unnar. Þetta eru meg­in­stef Mat­væla­stefnu sem kynnt var í lok síð­asta árs og í nýlegri Land­bún­að­ar­stefnu fyrir Ísland var mik­il­vægi inn­lendrar mat­væla­fram­leiðslu ítrekað. Allt er þetta af hinu góða og stefn­urnar gefa fögur fyr­ir­heit um fram­tíð­ina. Bleiki fíll­inn í her­berg­inu er þó sá að þegar kemur að inn­flutn­ingi mat­væla fer núver­andi fyr­ir­komu­lag alls ekki saman við mark­mið áður­nefndra stefna.“

Herdís ljær máls á því að „það er land­bún­að­inum lífs­nauð­syn­legt að bregð­ast við og aðlag­ast breyttum neyslu­venjum hverju sinni. Þrátt fyrir sam­drátt í kjöt­neyslu almennt hefur neysla á nauta­kjöti auk­ist und­an­farin ár og fram­leiðslan líka, en sé litið til síð­ast­lið­ins ára­tugs hefur hlut­deild inn­lendrar fram­leiðslu í inn­an­lands­neyslu dreg­ist saman. Fyrir 10 árum voru 96% alls nauta­kjöts sem við borðum íslenskt og 4% inn­flutt en á síð­asta ári var það íslenska komið í 80% og inn­flutta í 20%. Þessi þróun fer aug­ljós­lega ekki saman við stefnu um aukið hlut­fall inn­lendrar fram­leiðslu af neyslu lands­manna. Það er líka erfitt að sjá að auk­inn inn­flutn­ingur tryggi aukna verð­mæta­sköpun hér­lendis. Með auknum inn­flutn­ingi á kostnað inn­lendrar fram­leiðslu gefum við um leið frá okkur tæki­færi til að hafa áhrif á hvernig við fram­leiðum mat­væli, hvort sem er út frá umhverfis- eða heilsu­fars­sjón­ar­miðum.“

Herdís nefnir að „þá þarf vart að skýra að með auknum inn­flutn­ingi erum við ekki að draga úr flutn­ingi með mat­væli heims­horna á milli eða kolefn­islosun. Til við­bótar ber að nefna að nýlega var sýnt fram á að íslenskt nauta­kjöt hefur allt að helm­ingi lægra kolefn­is­spor en erlent,“ og bætir þessu við:

„Í könn­unum und­an­farin ár hefur komið fram að neyt­endur vilja íslenskt kjöt umfram það erlenda og í mat­væla- og land­bún­að­ar­stefnu stjórn­valda kemur skýrt fram vilji til þess að neyt­endum standi til boða heil­næm mat­væli, fram­leidd hér á landi. En, það er erfitt fyrir íslenskan land­búnað að starfa eftir metn­að­ar­fullum stefnum, sem á ýmsan hátt kalla á dýr­ari fram­leiðslu­hætti en ella, og á sama tíma gert að keppa við inn­fluttar land­bún­að­ar­af­urðir sem jafn­vel þurfa ekki að upp­fylla sömu kröfur og eru þar af leið­andi á lægri verðum en við þurfum að fá fyrir okkar fram­leiðslu. Í verð­stríð­inu við inn­flutn­ing­inn hefur íslenski bónd­inn því orðið undir, líkt og skýrsla RML sýnir. Fram­leið­endur eru komnir að sárs­auka­mörkum og við þurfum að hafa hraðar hendur ef við viljum ekki að inn­lend nauta­kjöts­fram­leiðsla legg­ist af.“

Herdís færir í tal að „við gerum ákveðnar kröfur um fram­leiðslu­hætti og gæði inn­lendra mat­væla. Það hlýtur að vera sjálf­sögð krafa að í það minnsta séu gerðar sömu kröfur til inn­fluttra mat­væla og gerðar eru til inn­an­lands­fram­leiðsl­unnar,“ og sendir fram­bjóð­endum til alþing­is­kosn­ing­anna í haust áskorun:

„Ég skora á fram­bjóð­endur í kom­andi alþing­is­kosn­ingum að kynna sér vel inn­lenda mat­væla­fram­leiðslu og land­búnað. Einnig skora ég á núver­andi og verð­andi þing­menn að horfast í augu við bleika fíl­inn í land­bún­að­ar­her­berg­inu og taka umgjörð inn­flutn­ings­mála og tolla­samn­inga með land­bún­að­ar­vörur til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina