Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ingibjörg ritari fjármálaráðherra lést á afmælisdegi sínum: „Við munum alltaf sakna þín“

Ingibjörg ritari fjármálaráðherra lést á afmælisdegi sínum: „Við munum alltaf sakna þín“

Ingi­björg Björns­dóttir, sem lengst af var lyk­il­maður á skrif­stofu fjár­mála­ráð­herra, lést á afmæl­is­degi sínum 6. ágúst síð­ast­lið­inn, þá orðin 85 ára að aldri. Fjöl­margir fara um hana fögrum orðum í minn­ing­ar­greinum Morg­un­blaðs­ins í dag, þeirra á meðal fyrrum ráð­herr­arnir Ögmundur Jónasson, Friðrik Soph­us­son og Geir H. Haarde ásamt Ólafi Ragnari Gríms­syni, fyrrum for­seta.

Blessuð sé minn­ing Ingi­bjargar.

Ingi­björg fædd­ist 6. ágúst 1936 í Reykja­vík. Barna­börn Ingi­bjargar eru 26 og barna­barna­börnin eru orðin 23, það yngsta fædd­ist nokkrum dögum eftir lát hennar.

Ingi­björg var gagn­fræð­ingur frá Gagn­fræða­skóla Aust­ur­bæjar, nam tón­mennt og fiðlu­leik við Tón­list­ar­skól­ann í Reykja­vík í tíu ár og sótti hús­mæðra­skóla í Danmörku. Hún vann á Fræðslu­skrif­stofu Reykja­víkur í fjögur ár en frá árinu 1972 í fjár­mála­ráðu­neyt­inu hér á Íslandi, fyrst sem rit­ari en frá 1979 sem deild­ar­stjóri og rit­ari fjár­mála­ráð­herra til starfs­loka. Sem lyk­il­maður í ráðu­neyt­inu starf­aði hún með 11 fjár­mála­ráð­herrum Íslands.

Börn Ingi­bjargar minn­ast móður sinnar með hlýjum orðum í minn­ing­ar­grein.

„Elsku mamma. Þú minntir okkur á hringrás lífs­ins, á gleð­ina og þakk­lætið og líka á hverf­ul­leik­ann þegar þú kvaddir okkur á 85 ára afmæl­is­dag­inn þinn. Við fögn­uðum líf­inu þínu eina stund­ina og grétum þig þá næstu. Við vorum svo heppin að eiga þig ekki bara að mömmu og besta bak­hjarli sem nokkur getur óskað sér heldur líka að trún­að­ar­vini sem hlust­aði alltaf og dæmdi ekki þótt þú værir ekki alltaf sam­mála og við gætum alveg tek­ist á. Það er skrítið og sárt að geta ekki lengur tekið
upp sím­ann eða komið við á Kópa­vogs­braut­inni til að spjalla um heima og geima, sækja í
visk­una þína eða bara hlæja og fífl­ast saman. Við munum alltaf sakna þín en vitum að minn­ing­arnar um dill­andi hlát­ur­inn þinn og þínar hlýju og mjúku hendur munu lifa með okkur. Fyrir okkur eru allir þínir tónar bjartir.“

Ögmundur Jónasson.

Þau Ögmundur, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­flokks­for­maður VG, voru systk­ina­börn. „Hún hafði passað okkur á unga aldri, eins konar stóra systir og á lífs­leið­inni áttum við margar gef­andi stundir í návist hennar. Alltaf staf­aði frá henni hlýju. Það er ekki öllum gefið að
vera sá sem allir reiða sig á, öllu heldur saman, sjálft límið. Þannig var Ingi­björg frænka okkar. Öllum leið vel í návist hennar. Við kveðjum Ingi­björgu Björns­dóttur með miklum sökn­uði,“ segir Ögmundur.

Friðrik Soph­us­son naut þess að vinna með Ingi­björgu í ráð­herra­tíð sinni. „Góðir ráð­herra­rit­arar voru gulls ígildi. Ingi­björg Björns­dóttir kom til starfa í fjár­mála­ráðu­neyt­inu og vann þar í 34 ár með 11 ráð­herrum, sem höfðu við­komu í ráðu­neyt­inu í mis­langan tíma. Ingi­björg var afar fær í sínu starfi og næm á þau atriði, sem skiptu máli. Ég á afar góðar minn­ingar frá þeim sjö árum, sem ég starf­aði í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Ingi­björgu þakka ég sér­stak­lega sam­starf og vin­áttu,“ segir Friðrik.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti.

Ólafur Ragnar, fyrr­ver­andi for­seti, minn­ist Ingi­bjargar sem valda­konu hins virðu­lega virkis sem fjár­mála­ráðu­neytið er. Hún var hinn mik­il­vægi hlið­vörður. „Tit­ill­inn rit­ari í raun dul­ar­klæði þess­arar valda­konu hins virðu­lega ráðu­neytis. Í fræð­unum er rætt um
hlið­verði. Þá sem stjórna inn­göngu í valds­ins vé. Ingi­björg var í ára­tugi í slíkri
stöðu. Stýrði nán­ast allri vinnu ráð­herr­ans. Tók á móti gestum með brosi. Allir
fóru glaðir burt. Höfðu alla vega hitt Ingi­björgu,“ segir Ólafur og heldur áfram:

„Hún var gædd ein­stökum mann­kostum. Klár, öguð, skipu­lögð; ávallt kát og létt í lundu.
Hjartað og sálin í hinu háa ráðu­neyti. Elskuð af öllum. Sumir sögðu að ráð­herr­ann væri í raun bara í vinnu hjá Ingi­björgu. Samvinna okkar var ein­stök. Í raun gleði­gjafi. Til­hlökkun að hitta Ingi­björgu á hverjum morgni. Á kveðju­stund koma ljúfar minn­ingar í hug­ann; þakkir fyrir liðna tíð.“

Geir H. Haarde.

Geir, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, seg­ist seint gleyma öllum þeim ánægju­stundum sem hann átti með Ingi­björgu. „Mér líður vel og er sátt og þakka fyrir gott og gjöf­ult líf,“ skrif­aði hún í einum síð­asta póst­inum til mín í vor. Ingi­björg Björns var mátt­ar­stólpi í fjár­mála­ráðu­neyt­inu öll þau ár sem ég þekkti þar til. Ingi­björg var ein­stök í sam­starfi, ómet­an­leg hjálp­ar­hella, fljót­virk en jafn­framt þol­in­móð, ákveðin en lipur. Þannig var hún aldrei í vand­ræðum með að ná sam­bandi við fólk. Þess utan var hún glað­sinna sem auð­veld­aði öll sam­skipti okkar sem oft voru á léttum nótum. Ingi­björg lauk gjarnan póstum og orð­send­ingum til mín með orð­unum „Þín ein­læg“ og vil ég nú nota þessi sömu orð til að kveðja hana hinstu kveðju. Þinn ein­lægur, kæra Ingi­björg,“ segir Geir.

Útför Ingi­bjargar fór fram frá Dóm­kirkj­unni í Reykja­vík í dag. Mannlíf vottar aðstand­endum sam­úðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina