Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hrefna heldur í vonina að maður hennar lifi: „Ég er bara andlega gjaldþrota“ – SÖFNUN –

Hrefna heldur í vonina að maður hennar lifi: „Ég er bara andlega gjaldþrota“ – SÖFNUN –

Hrefna Thomsen er barns­móðir Vignis Daða­sonar sem er með 4. stigs krabba­mein í lifur. Sjald­gæft krabba­mein á loka­stigi.

„Hann greind­ist með krabba­mein í nýra árið 2019 og var æxlið á stærð við hand­bolta. Hann end­aði í bráða­að­gerð þar sem þurfti að kalla út aukateymi vegna þess að æxlið sprakk inni í honum. Hann átti ekk­ert að lifa þá aðgerð af sem var löng og erfið en hann gerði það og erfitt bata­ferli tók við. Síðan kom í ljós að hann var kom­inn með krabba­mein í lifr­ina og liðu tveir mán­uðir á milli aðgerða og þurfti að taka 5. hólfið úr lifr­inni. Hann missti mjög mikið blóð í þeirri aðgerð, 1,8 lítra, vegna þess að skorið var í æð. Lungun féllu saman og fékk hann lungna­bólgu í kjöl­farið og var hann mjög veikur. Okkur var sagt eftir þá aðgerð að hann væri lækn­aður og fengum við heilt ár gott saman þar sem hann virt­ist vera laus við krabba­meinið. Hann fór síðan í tékk í vor og kom í ljós að hann væri kom­inn með mein­varp í lifr­ina sem var á 4. stigi. Á loka­stigi. Þetta er mjög sjald­gæft krabba­mein; HER2 og dreifir sér 75% hraðar heldur en önnur krabba­mein.“

Hann fór síðan í tékk í vor og kom í ljós að hann væri kom­inn með mein­varp í lifr­ina sem var á 4. stigi. Á loka­stigi.

Vignir fór fljót­lega í lyfja­með­ferð sem gekk nærri honum. „Hann fékk lungna­bólgu, gulu og mjög mik­inn hita en hann var með um 40 stiga hit­ann allan tím­ann á meðan hann var í með­ferð­inni. Önnur lyfja­með­ferðin gekk vel; hann var slappur en hafði samt orku og við gátum gert eitt­hvað saman. Þriðja lyfja­með­ferðin í sumar fór mjög illa í hann og hann varð mjög veikur. Hann fékk mik­inn höf­uð­verk og þoldi enga birtu eða hljóð. Það end­aði með því að hann fór einn dag­inn í sjúkra­bíl með blikk­andi ljós upp á sjúkra­hús þar sem hann var kastandi upp vegna höf­uð­verkj­anna.

Það var tekin blóðprufa en engin mynd tekin af höfð­inu af honum sem mér finnst vera sér­stakt og hann var síðan sendur heim. Hann átti svo að fara í fjórðu lyfja­með­ferð­ina núna í ágúst sem átti að vera sein­asta lyfja­með­ferðin, en eftir hana átti hann að fara í tvær minni með­ferðir, en hann fékk ekki að fara í hana vegna þess að blóðpruf­urnar líta hræði­lega út. Kortis­olið í lík­am­anum á að vera rúm­lega 500 en í honum er það 2. Þetta er byrjað að hafa áhrif á skjald­kirtil­inn, hann er senni­lega kom­inn með bólgur í heila­d­ingul­inn, það er senni­lega komin bjúg­söfnun í heil­ann og hann er mjög veikur. Ofan á þetta allt þá hjálpar ekki að vera með fjár­hags­á­hyggjur,“ segir Hrefna en þau eru bæði öryrkjar, hann vegna mót­or­hjólaslyss á sínum tíma og hún vegna band­vefs­sjúk­dóms, og kostn­að­ur­inn við að borga lyf, mynda­tökur og lækna- og sjúkra­hús­heim­sókna er hár. Búið er að stofna styrkt­ar­reikn­ing: 0544-26-062024. Kt.: 280890-2439. „Við eigum saman þriggja ára dóttur og svo á ég fyrir sjö ára gamlan strák. Vignir á 21 árs gamla dóttur. Það voru aðrir sem komu með upp­á­stung­una varð­andi söfnun og ég sam­þykkti.

Búið er að stofna styrkt­ar­reikn­ing: 0544-26-062024. Kt.: 280890-2439.

Núna er staðan sú að hann er í stera­með­ferð til að ná kortis­ol­inu upp svo hann geti farið að klára lyfja­með­ferð­ina. Þetta er ekki komið á þann stað að okkur sé sagt að hann sé að deyja og það er ekki búið að segja okkur að hann sé kom­inn í líkn­andi með­ferð.“

Hrefna grætur.

„Maður heldur allaf í von­ina. Ég get lýst þessu sem svo að einn veik­ist en allir þjást. Öll fjöl­skyldan lam­ast. Núna er maður ekki að hugsa um hvað eigi að vera í kvöld­mat­inn og ég er ekki með getu til að þrífa heim­ilið eða gera nokkurn skap­aðan hlut. Það lam­ast allt.“

Lífs­sýnin er breytt.

„Gerðu allt í dag sem þig langar til að gera vegna þess að fólk veit ekki hvort heilsa þess verði til staðar á morgun. Komdu fram við fólkið þitt eins og þú sért að hitta það í sein­asta sinn. Segðu fólk­inu þínu að þú elskir það vegna þess að við segjum það aldrei of oft. Farðu aldrei í burtu ósáttur, sama hver á í hlut, því þú veist ekki hvað ger­ist næsta dag. Segðu allt sem þig langar til að segja vegna þess að það er ekki sjálf­gefið að þú getir talað á morgun. Hlustaðu á aðra vegna þess að það er ekki sjálf­gefið að þú hafir heyrn á morgun. Og líttu í kringum þig vegna þess að það er ekki sjálf­gefið að þú hafir sjón.“

Hvernig lýsir Hrefna ást­inni í lífi sínu?

„Hann er ynd­is­leg­asti ein­stak­lingur sem ég hef á ævi minni kynnst og hann er til­bú­inn til að hjálpa öllum og gefa öllum séns, sama hvað fólk hefur gert af sér. Hann elskar skil­yrð­is­laust.“ Þögn. „Ég hef aldrei fundið fyrir eins mik­illi ást eins og frá honum.“

Þögn. Löng þögn.

„Börnin mín gætu ekki átt betri pabba. Ég er bara and­lega gjald­þrota.“

Segðu fólk­inu þínu að þú elskir það vegna þess að við segjum það aldrei of oft.
Vignir berst hetju­lega við krabba­mein á loka­stigi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una