Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Eva pissaði á kærastann í svefni: „Klárlega vandræðalegast sem ég hef lent í“

Eva pissaði á kærastann í svefni: „Klárlega vandræðalegast sem ég hef lent í“

Hin síkáta og skemmti­lega Eva Ruza er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Eva hefur kitlað hlát­ur­taugar land­ans und­an­farin ár, en hún seg­ist elska að mæta upp á svið í glimmergall­anum og skemmta fólki.
Mannlíf komst að því að Eva er ekki háskóla­gengin, móður hennar til mik­illar mæðu, hún er dug­leg að setja sér mark­mið og seg­ist vera að lifa draum­inn.

Fjöl­skyldu­hagir? Er gift sætasta Sigga lands­ins, þó víða væri leitað og með honum á ég sæt­ustu börn í heimi, Marinu Mist og Stanko Blæ. Kalt mat og end­ur­speglar 100% mat allra ann­ara 😊

Menntun/atvinna? Mömmu minni til mik­illa von­brigða, þá er ég EKKI háskóla­gengin, en kláraði nú samt mennta­skól­ann með stæl. Í dag starfa ég í brönsum sem eng­inn háskóli hefði geta kennt mér á, þannig að mamma er búin að sætta sig við þetta – held ég. Ég starfa á dag­inn við hlið mömmu í blóma­búð­inni Ísblóm…hugs­aði með mér að ég þyrfti alla­vega að halda henni félags­skap fyrst að ég fór ekki í háskóla. 

Ég stýri einnig virðu­legum frétta­tíma á K100 sem heitir ,, Stjörnu­fréttir með Evu Ruzu“, en þar segi ég fólki frá öllu því helsta sem ger­ist i Hollywood. Einnig dett ég annað slagið í útvarps­konu­sætið, og elska það. 

Listinn heldur áfram, því ég hendi mér svo í glimmer­dressin og spranga upp á svið og skemmti fólki á kvöldin, hvort sem það er sem veislu­stjóri, kynnir eða bingóstjóri. Ég sigldi inn í skemmti­brans­ann árið 2015 og hef ekki yfir­gefið hann síðan. Ég elska að skemmta fólki, fá ork­una úr salnum og hlæja með fólk­inu. 

Upp­á­halds sjón­varps­efni? Ég horfi bara á virðu­legt sjón­varps­efni. Þá er ég að tala um Love Island, Bachelor in Paradise og þess háttar. Eitthvað svona sem skilur smá eftir hjá manni😉  En ég er reyndar mik­ill sjón­varps­fík­ill og elska ekk­ert meira en að glápa á sjón­varp á kvöldin. 

Leikari? Ryan Reynolds er sá fyrsti sem poppar upp. Elska húmor­inn hans og gals­ann í honum. 

Rit­höf­undur? Til dæmis Ricky Martin, Kris Jenner og David Beckham…má segja svo­leiðis rit­höf­unda? Ég er mest fyrir að sökkva mér ofan í ævi­sögur fræga fólks­ins og lesa um ævin­týri þeirra og líf. 

Bók eða bíó? Alltaf bíó. Við fjöl­skyldan eeeelskum mjög mikið að fara í bíó saman og gleyma okkur í tvo klukku­tíma. Hef alltaf verið mikil bíó­mann­eskja.

Besti matur? Erfið spurn­ing, en ég elska heima­grill­aða pizzu. Ég er orðin asskoti klár að grilla pizzur. Samt mjög stutt síðan ég brenndi eina…en það var Sigga Gunnars að kenna. Hann hringdi akkúrat þegar ég var að grilla og ég stein­gleymdi mér í sím­tal­inu. Ef eng­inn truflar mig, þá er ég rosa góð að grilla pizzu.

Kók eða Pepsí? Drekk hvor­ugt. Er almennt lítið fyrir sykrað gos, en er mikil sóda­vatns­skvísa

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Króatía, heima­landið hans pabba, og Slóvenía. Á mjög sterkar taugar þangað og það er sama hvert þú ferð þar, para­dís á jörð.

Hvað er skemmti­legt? Að ferð­ast með Sigga mínum og börnum. Skemmti­leg­ustu minn­ing­arnar eigum við saman úr ferða­lögum og þær minn­ingar eru dýr­mætar.

Hvað er leið­in­legt? Guð minn góður- þvotta­húsið frá A-Ö. Eitt það leið­in­leg­asta sem ég geri á heim­il­inu er að þvo þvott og brjóta saman. Læt mig samt hafa það og hafa  ,,Hæ Hæ“ bræður, Helgi og Hjálmar Örn vinur minn oft hjálpað mér í gegnum þá krísu.

Hvaða flokkur? Úff, ég er rosa lítið inn í póli­tík, en gef Sam­fylk­ing­unni atkvæðið mitt þar sem Sólveig vin­kona mín er flottasta póli­tíku­sa­kona sem ég þekki. Hún verður líka ánægð með að ég svari þess­ari spurn­ingu með öðru en ,,pass“

Hvaða skemmti­staður? Er búið að loka Sport­kaffi ? 

Kostir? Ég er hress og glað­lynd að eðl­is­fari og sam­kvæmt áreið­an­legum heim­ildum fjöl­skyld­unnar að þá er vist erfitt að reið­ast mér. Sumir myndu kalla það kost, en þeim finnst það galli. Er svo mik­ill hvolpur. Rosa dúlla, eng­inn getur verið reiður við hvolpa. Ég gef þeim reyndar sjaldan ástæðu til að reið­ast mér…held ég. 

Lestir? Ég gleymi yfir­leitt alltaf að hringja til­baka í fólk. Mamma getur alveg orðið vit­laus á mér, en ég er fljót að smjaðra mig til­baka. Á það til að vera utan við mig líka ef það er mikið að gera hjá mér. 

Hver er fynd­inn? Ég mundi aaaaaldrei nenna að vera gift Sigga ef hann væri ekki fynd­inn. Hjálmar Örn, einn af mínum bestu vinum er ein fyndn­asta mann­vera sem ég hef kynnst, og það mætti segja að Auður Ósk vin­kona mín, sé kven­kyns­út­gáfan af Hjálmari. Eva Laufey kemur eins og þeyti­spjald inn á þennan lista, því boy hún er fyndn­ust og hún gleður hjartað mitt. Svo eru mamma og pabbi, systur mínar og vin­konu­hóp­ur­inn eins og hann leggur sig mann­eskjur sem hafa gefið mér ófá hlát­ur­sköstin. 

Hver er leið­in­legur? Ég hef lagt það í vana minn að umkringja mig ekki með leið­in­legu fólki, þannig að ég get sam­visku­sam­lega sagt pass við þess­ari spurn­ingu.

Trúir þú á drauga? Nja, kannski ekki drauga beint, en ég trúi því alveg að það sé eitt­hvað…

Stærsta augna­blikið? Það er án nokk­urs vafa þegar tví­burarnir okkar Sigga fædd­ust fyrir 12 árum. Lang­þráður draumur og augna­blik sem ég mun aldrei gleyma. 

Mestu von­brigðin? Hmmm, ég er lítið að velta mér upp úr von­brigðum, og man ekki eftir neinu sér­stöku í augna­blik­inu. Ætli þetta sum­ar­veður á suð­vest­ur­horn­inu í sumar hafi ekki verið viss von­brigði. Ég var til­búin að vera hálf­ber í allt sumar í sól og sum­ari. Það gekk ekki upp nema í örfáa daga.

Hver er draum­ur­inn? Mig dreymir alltaf sjón­varps­draum. Þætt­irnir mínir Mannlíf komu út í fyrra í Sjón­varpi Símans og ég elskaði að vinna í kringum þá.  Ég geng svo alltaf með einn stóran draum í mag­anum sem von­andi ræt­ist. En ann­ars er ég að lifa draum­inn. Fallegt fjöl­skyldu­líf, góð heilsa, bestu vinir í heimi, fjöl­breytt og skap­andi vinna. Ég get ekki beðið um mikið meira. 

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að hafa náð að skapa mér hin ýmsu verk­efni og gigg þrátt fyrir Covid vesen á flestum bæjum. En fyr­ir­tækin sem ég hef skemmt fyrir hafa átt sinn þátt í þeim afrekum með því að hugsa í lausnum. Annars er ég að undi­búa mig fyrir að hlaupa 10 km í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu- sem verður ekki. En ég ætla að sjálf­sögðu að hlaupa þrátt fyrir að ekk­ert verði af hlaup­inu. Ég hleyp fyrir Minn­ing­ar­sjóð Jennýjar Lilju, og geri von­andi litla eng­il­inn á himnum stolta. Minn­inga­sjóður Jennýjar Lilju mun í ár styrkja þyrlu­sveit Land­helg­is­gæsl­unnar. Þið finnið mig á hlaupa­styrkur.is og ef ég næ að safna og hlaupa þessa 10 km þá verður það klár­lega á list­anum yfir afrek árs­ins. Setti 500.000 króna mark­mið. Dreyma stóra drauma kids. Þeir ræt­ast kannski.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Já blessuð. Ég bý mér til mark­mið á hverju ári, nokkrum sinnum ár ári. Um leið og ég næ mark­mið­unum mínum, þá hleð ég í fleiri. Þannig að ætli ég sé ekki í stöðugri vinnu við að ná þeim. Sem er gott. 

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Ekki í augna­blik­inu, en um leið og ég ýti á send á þessu við­tali þá á mér pott­þétt eftir að detta ein­hver geggj­aður í hug.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þegar ég piss­aði á Sigga í svefni þegar við vorum nýbyrjuð saman. Klárlega vand­ræða­leg­ast sem ég hef lent í…eða ok, eitt af mjög mörgum, en þetta stendur upp úr. Sem betur fer erum við enn saman í dag, 21 ári seinna, þannig að pissið hafði ekki mikil áhrif á ást­ina.

Sorg­leg­asta stundin? Það er án efa þegar ég missti ömmur mínar og afa, og minn besta vin þegar ég var 9 ára gömul. Þær sorgir hafa mótað mig sem per­sónu og kenndu mér snemma á lífið.

Mesta gleðin? Börnin mín tvö. Án nokk­urs vafa. Gera mig glaða, stolta, meyra, brjál­aða og allt þar á milli.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Fjöl­skyldan. Ég er mikil fjöl­skyldu­mann­eskja og sæki mikið í að vera með fólk­inu mínu. Þau eru það allra mik­il­væg­asta sem ég á og ég tek þau alls ekki sem gefnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina