Það hefur lítið farið fyrir Ingólfi Þórarinssyni, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, á síðustu misserum vegna fjölda ásakana vegna kynferðisbrota gegn stúlkum og konum. Snemma sumar var hann rekinn af Þjóðhátið þar sem hann hefur séð um brekkusögninn undanfarin ár og hefur tónlistarmaðurinn staðið í stöngu undanfarið vegna ásakananna.
Ingó er þó ekki dauður úr öllum æðum og tróð hann upp í samkvæmi um helgina, tjaldveislu með fjölda veislugesta. Myndbandið af þessu síðasta „giggi“ Veðurguðsins ferðast um samfélagsmiðlana og má finna hér neðar.
Það er svo ekki langt síðan að Ingó tróð upp á Íslendingastaðnum „Bambú bar & bistro“ á Tenerife. Ingó kom þar fram og spilaði fyrir gesti og gangandi á eyjunni fögru.
Það er því enn eitthvað að gera hjá Ingó Veðurguði, annað en að senda kröfubréf vegna ummæla fólks um hann á samfélagsmiðlum í allar áttir, og mögulega sló kappinn hressi í gegn bæði á Tenerife og í tjaldveislunni.































Athugasemdir