Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Trúbadorinn og bóndinn Hlynur Snær Theodórsson: „Svo syng ég iðulega í fjósinu“

Trúbadorinn og bóndinn Hlynur Snær Theodórsson: „Svo syng ég iðulega í fjósinu“
Hlynur Snær Theo­dórs­son

Hlynur Snær og eig­in­kona hans, Guðlaug Björk Guð­laugs­dóttir, eru bændur á bænum Voð­múla­stöðum í Rang­ár­valla­sýslu. Þau eru með um 50 kýr og 25 kindur og það er mikið að gera í bústör­f­unum og útsýnið frá bænum er stór­kost­legt: Vest­manna­eyjar blasa við í suðri, Eyja­fjalla­jök­ull gnæfir í allri sinni dýrð í austri sem og Tind­fjöll og Fljóts­hlíð í norðri.

Hlynur Snær var í tón­list­ar­skóla á ung­lings­ár­unum og lærði á hljóm­borð og svo eign­að­ist hann gítar þegar hann var 17 ára. Hann fór á sínum tíma á söng­nám­skeið hjá Sig­ur­veigu Hjalte­sted til að læra radd­beit­ingu og er fyrsti tenór í Karlakór Rang­æ­inga og er í söng­hópnum Öðling­unum sem syngur mikið í jarð­ar­förum.

Hjónin eiga þrjú börn á aldr­inum 22 til 29 ára og barna­börnin eru þrjú. Þegar börnin voru orðin stálpuð fór Hlynur Snær að taka aðeins að sér að spila og syngja fyrir fólk. Það fór að vinda upp á sig fyrir um 16 árum og hefur verið auka­vinna hans síð­ustu fimm árin. Í fyrstu tengd­ist þetta karla­kór­a­skemmt­unum og kom þá Hlynur Snær gjarnan fram með hljóm­sveitum en svo fór hann að kalla í hina og þessa menn til að koma fram með sér til að koma meðal ann­ars fram á þorra­blótum og böllum. Síðustu ár hefur hann mikið komið fram með dóttur sinni, Sæbjörgu, auk þess sem önnur dóttir hans, Brynja Sif, kemur líka stundum fram með pabba sínum. Svo breytti Covid-heims­far­ald­ur­inn öllu. Sam­komu­tak­mark­anir voru settar á og í fyrra­haust fóru feðginin að koma fram í beinni útsend­ingu á Facebook-síð­unni „Hlynur Snær Theo­dór­son“.

Sam­komu­tak­mark­anir voru settar á og í fyrra­haust fóru feðginin að koma fram í beinni útsend­ingu á Facebook-síð­unni „Hlynur Snær Theo­dór­son“.

„Við ákváðum að fara út í þetta í fyrra­haust og koma ekk­ert endi­lega reglu­lega fram en þó, það var oft einu sinni í viku á föstu­dags- eða laug­ar­dags­kvöldum og þá var ég með dætur mínar með mér. Við gáfum alltaf út til­kynn­ingar um hvenær við ætl­uðum að gera þetta og fólk gat sent inn óska­lög. Við­tök­urnar voru ótrú­lega góðar og við fengum góð við­brögð. Guðlaug Björk, konan mín, var titluð „útsend­inga­stjóri“ og hún tók niður það sem fólk var að senda inn og lét okkur hafa litla „post it miða“ með óska­lögum og reyndum við að taka öll óska­lög sem komu. Við reyndum að hafa þetta eins heim­il­is­legt og frjáls­legt og við gátum því að þetta var ekk­ert kostað. Við gátum gert nákvæm­lega það sem okkur lang­aði til að gera.“ Hlynur Snær gerir ráð fyrir að þau feðginin verði í haust og vetur með beinar útsend­ingar á Facebook-síð­unni.

Um síð­ustu helgi komu feðginin fram í fimm­tugs­af­mæli og fóru allir í Covid-hrað­próf áður en veislan hófst. „Þetta var mjög fag­mann­lega gert. Það var hjúkr­un­ar­fræð­ingur í alklæðn­aði – með grímu og skjöld – sem gerði þetta og svo var beðið í kortér til 20 mín­útur eftir nið­ur­stöðum og það reynd­ust allir vera nei­kvæðir. Svo voru allir rosa­lega slakir og skemmtu sér vel. Þetta var í fyrsta skipti í far­aldr­inum sem ég fór í „test“.“

Lögin sem spiluð eru og sungin eru allt frá „gömlu döns­unum“ upp í Queen og allt þar á milli. Hvert er upp­á­halds­lagið? „Ég veit ekki hvort ég eigi að velja eitt­hvað eitt lag en okkur finnst gaman að taka lagið hans Meat Loaf „Paradise by the Das­h­bo­ard Light“ sem vekur yfir­leitt mikla lukku. Svo er líka gaman að takast á við ný lög sem eru að koma út með hinum og þessum og læra þau og reyna að flytja þau almenni­lega.“

Það er ekki bara á Íslandi sem trú­bador­inn hefur komið fram heldur hefur hann komið fram meðal ann­ars á hesta­manna­mótum svo sem í Þýska­landi og Belgíu. „Það er óskap­legt ævin­týri.“

Svo semur hann sjálfur. Hann samdi til dæmis lagið „Bræðra­lag“ fyrir Karlakór Rang­æ­inga fyrir mörgum árum, svo samdi hann lagið „Fjalla­draumur“ fyrir Öðling­ana, hann samdi lagið „Eyðum ævinni saman“ fyrir eig­in­kon­una í til­efni fer­tugs­af­mælis hennar og í fyrra­vetur kom út lagið „Gleð­innar dans“. Nýjustu lögin eru hesta­manna­lagið „Töltið“ og ást­ar­lagið „Gullið mitt“ sem var samið til kon­unnar þegar hún varð 50 ára í mars. Lögin er hægt að hlusta á á ann­að­hvort YouTube eða Spotify. Hvað með stíl­inn þegar hann semur? Áherslur? „Ég myndi halda að þetta væri létt­leik­andi popp og aðeins út í kán­trí.“

Hann dreymir um að gefa út geisla­disk með lög­unum sínum. „Það eru alltaf að bæt­ast lög við safnið en ég er ekki búinn að safna nógu mörgum lögum til að gefa út geisla­disk eða plötu. Ég hef verið að vinna með Vigni Snæ, sem er kenndur við Írafár, og hann hefur verið að taka upp með mér lög sem eru komin á YouTube og Spotify.“

Tón­listin er auka­bú­grein bónd­ans. Syngur hann í fjós­inu? „Já, ég geri það stundum og kannski sér­stak­lega ef það koma litlir hópar að skoða fjósið. Svo syng ég iðu­lega í fjós­inu ef ég þarf að læra ein­hvern texta eða ný lög. Það er virki­lega góður staður til að æfa sig á og kýrnar eru orðnar vanar þessu. Þær þekkja orðið gaulið í karl­inum. Yngri kýrnar sem eru ekki orðnar vanar þessu fara í smá­baklás en jafna sig mjög fljótt; þá standa þær stjarfar og horfa á mig.“

Hver er draumur bónd­ans og trú­badors­ins hvað tón­list­ina áhrærir? „Draum­ur­inn er að starfa við þetta líka því þetta er virki­lega skemmti­leg og gef­andi. Ég er gríð­ar­lega þakk­látur að hafa dætur mínar með í þessu en mér finnst það vera for­rétt­indi að fá að vera svona mikið með börn­unum mínum í því sem mér finnst vera gaman að gera. Þannig að það er eig­in­lega drauma­staða að fá að vera með þeim.“

Ég myndi halda að þetta væri létt­leik­andi popp og aðeins út í kán­trí.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina