Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hollráð snjalla netneytandans gegn þjófunum: Notaðu fyrirframgreitt kredidkort

Hollráð snjalla netneytandans gegn þjófunum: Notaðu fyrirframgreitt kredidkort
Net­verslun

Að versla á net­inu er orðið eins sjálf­sagt í dag og að skreppa í bíó. Ógrynnin öll af varn­ingi víðs­vegar að úr heim­inum birt­ast okkur á degi hverjum á skjám tölva okkar og snjall­tækja. Það er auð­velt að bera saman verð á net­inu og þú getur farið í margar búðir án þess að standa upp úr stólnum. Hvort sem við erum að leita að ein­hverju sér­stöku eða við smellum á eitt­hvað for­vitni­legt eins og skjáv­arpa sem passar í vas­ann, háreyð­ing­ar­krem fyrir hand­ar­bök eða gel sem gerir tenn­urnar hvítar á 6-8 dögum er stað­reyndin sú að nákvæm­lega þessar aug­lýs­ingar birt­ast ekki á skjánum þínum fyrir til­viljun. Það er hyggi­legt af okkur að átta okkur á því hvað það er sem sölu­að­ilar á net­inu nota við sína mark­aðs­setn­ingu.

Vafraðu viturlega

Sam­fé­lags­miðl­arnir safna gögnum um þig sem eru svo seld aðilum sem vinna að mark­að­setn­ingu. Þessar upp­lýs­ingar eru not­aðar til að halda að þér vörum sem þú myndir senni­lega hafa áhuga á. Vafra­kökur, svo­kall­aðar „cookies“, not­aðar milli vef­versl­anna til að finna út hvaða síður þú hefur heim­sótt og að hvaða vörum þú ert að leita. Í ofaná­lag breyta sumar vef­versl­anir verðum sínum í sam­ræmi við stað­setn­ing­una þína, vafra­sög­una þína og hvort þú ert að nota tölvu eða síma.

Þegar þú vafrar um á net­inu í leit að varn­ingi er gott ráð að gera það með hul­iðs­still­ing­una virka, t.d. Incognito eða InPri­vate browsing á ensku, eða huga að því reglu­lega að hreinsa vafra­sög­una þína og vafra­kök­urnar. Þannig safn­ast ekki fyrir þessi gögn sem vef­versl­anir nota og þannig gæt­irðu verið að spara þér pen­inga og fengið fjöl­breytt­ari leit­ar­nið­ur­stöður.

Áttu viðskiptavin? Veiddu!

Þegar þú slærð eitt­hvað inn í leit­ina á net­inu birt­ist listi af síðum en það er síður en svo handa­hófs­kennt hvernig þeim er raðað upp handa þér. Ann­ars­vegar greiða fyr­ir­tæki fyrir það að síður þeirra birt­ist ofar­lega og hins­vegar er not­ast við það sem kall­ast leit­ar­véla­bestun; upp­setn­ing á texta heima­síða sem eykur líkur á að þær endi ofar­lega í net­leit.

Bestu síð­urnar eru ekki endi­lega þær sem birt­ast efst.

Öryggi, öryggi, öryggi!

Ef það lítur út fyrir að vera of gott til að vera satt er það senni­lega of gott til að vera satt. Sumar net­versl­anir eru hrein­lega svika­síður óprútt­inna aðila sem hirða af þér pen­ing­ana.

Þegar þú ætlar svo að greiða fyrir vör­una þína eru nokkrir hlutir sem þú ættir að gaum­gæfa. Í fyrstu er mik­il­vægt að athuga hvort það sé ekki örugg­lega tákn sem sýnir læstan lás við vef­slóð­ina og hún hefj­ist á „https://“. Tákn­myndir eins og t.d. „VeriSign“ og „Verified by Visa“ gefa til kynna að það sé erf­ið­ara að kom­ast upp með að nota stolin kort og ef sláin fyrir vef­slóð­ina er græn not­ast síðan við hæstu mögu­lega dulkóðun. Ekki slá inn korta­upp­lýs­ingar nema þú sért viss um að þú treystir vef­síð­unni.

Íhugaðu að nota sér­stakt kort fyrir net­við­skipti, t.d. fyr­ir­fram­greitt kredit­kort, með tak­mörk­uðum sjóðum á. Ef svika­hrappur kemst yfir korta­upp­lýs­ing­arnar þínar hlýt­urðu lág­marks­skaða af.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina