Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ofsahræðsla vegna smitsjúkdóms: „Ekki hafa samfarir við aðila sem ekki hefur farið í blóðprufu“

Ofsahræðsla vegna smitsjúkdóms: „Ekki hafa samfarir við aðila sem ekki hefur farið í blóðprufu“
Freddie Mercury lét lífið af völdum alnæmis áður en það fund­ust lyf til að halda sjúk­dómnum niðri.

Á níunda ára­tugnum var útbreiddur ótti um að stærstur hluti Íslend­inga gæti smit­ast af eyðni. Sumpart var í gangi ofsa­hræðsla við þennan skelfi­lega sjúk­dóm sem herj­aði fyrst og fremst á sam­kyn­hneigða karl­menn. Í júní árið 1985 fjall­aði DV um málið og ræddi við yfir­lækni á Land­spít­al­anum sem taldi mikla ógn steðja að. 

„Mér þykir í sann­leika sagt of lítið gert úr þeirri hættu er stafað gæti af alnæmi hér á landi. Menn verða að gera sér grein fyrir að mann­kynið og þar með íslenska þjóðin getur staðið frammi fyrir áður óþekktu ógnar­á­standi, hörm­ungum sem ekki verður séð fyrir end­ann á,“ sagði Þórður Harð­ar­son, pró­fessor og yfir­læknir. 

Hann taldi mögu­leika vera á því að stór hluti ungs fólks smit­að­ist. „Fræði­lega gætum við staðið frammi fyrir því að stór hluti ungs fólks væri smit­aður af alnæmi eftir örfáa ára­tugi,“ sagði Þórður á þessum tíma.

Þegar þessi ótti var uppi hafði AIDS ekki verið greint í Íslend­ingi þótt mótefni hefði fund­ist í fjórum ein­stak­lingum. Í frétt Eiríks Jóns­sonar blaða­manns í DV er sagt að það væri ein­ungis spurn­ing um tíma hvenær sjúk­dóm­ur­inn bær­ist til Íslands með þessum skelfi­legu afleið­ingum. „Ég held að stúlkur sam hafa sam­farir við útlend­inga geri sér í 95 pró­sent til­fella ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru að stefna sjálfum sér,“  sagði Þórður. 

Varaði við sýktum vændiskonum 

Fram kom í grein­inni að ástandið væri einna verst í Danmörku. 

„Ekki kann ég neina skýr­ingu á því hvers vegna Danir hafa farið svona illa út úr þessu en vera má að frjáls­lyndi þeirra í ásta­málum á und­an­förnum ára­tugum valdi þar ein­hverju,“ sagði Þórður yfir­læknir. Hann var­aði sér­stak­lega við sýktum vænd­is­konum sem gætu valdið ægi­legu tjóni „séu þær iðnar við störf sín“.

Því er lýst í grein DV að uppi hafi verið raddir um að setja smit­aða ein­stak­linga í ein­angrun strax og grein­ing liggur fyrir. Þá er því velt upp hvort mögu­legt sé að lög­binda notkun á smokkum til að hefta útbreiðslu veirunnar. 

„Og hugs­an­lega ætti fólk alls ekki að hafa sam­farir við aðila sem ekki hefur farið í blóðprufu,“ sagði Þórður. 

Merki í nafnskírteini

Í máli Þórðar kemur fram athygl­is­vert við­horf og þá sér­stak­lega í ljósi þess hvernig umræðan er um Covid í dag þar sem lagt er til að hömlur verði settar á þá sem ekki hafa fengið bólu­setn­ingu. Yfir­lækn­ir­inn var spurður um það hvort ekki væri ráð­legt að taka blóðprufu af allri þjóð­inni og taka upp ein­hvers konar skrán­ingu. Og þá hvort ekki ætti að setja merki í nafn­skír­teini manna. 

„Það getur komið að því að ein­hvers konar skrán­ing verði nauð­syn­leg. Þetta er alvar­legra mál en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Stundum hef ég verið spurður að því hvort líkja mætti alnæmi við syfilis, sjúk­dóm sem þótti ólækn­andi í eina tíð. En þessi tvö fyr­ir­bæri er ekki hægt að bera saman. Syfilis brennur út af sjálfu sér og hættir að smita á ákveðnu stigi. Það gerir alnæmi aftur á móti ekki. Hann smitar stöðugt og menn geta gengið með hann svo árum skiptir án þess að vita af því. Í því felst óhugn­að­ur­inn,“ segir hann. 

Rætt var um að skylda alla sýkta til að láta skrá sjúk­dóm­inn í skil­ríki sín.

Alið var á ótta við sjúk­dóm­inn og hina sýktu næstu árin. Lýsandi fyrir það var frétt Eiríks Jóns­sonar í DV árið 1987 þar sem eyðni­sjúk kona kom við sögu. „Þetta er hætta sem lög­reglu­menn og hjúkr­un­ar­fólk verða að leggja sig í. Við vissum ekki að stúlkan væri
eyðni­sjúk­lingur þegar hún  var hand­tekin,“ sagði Guð­mundur Her­manns­son yfir­lög­reglu­þjónn í sam­tali við DV  eftir að 27 ára gömul kona, sem haldin var eyðni braust inn á  barna­heim­ili við Mánagötu í Reykja­vík og reyndi að nema barn sitt á brott.

Konan hafði verið svipt umráða­rétti yfir fjög­urra ára dóttur sinni. þegar lög­reglu­menn komu á vett­vang hafði stúlkan brotið rúðu í úti­hurð með berum hnefa og var fyrir bragðið alblóðug. Lenti hún í rysk­ingum við gæslu­konu inn­an­dyra áður en lög­reglu­menn skökk­uðu leik­inn. Þessi frétt DV varð upp­sláttur blaðs­ins.

Ástæðulaus ofsahræðsla

Þessi ofsa­hræðsla var ástæðu­laus. Áratugum eftir að talið var að sjúk­dóm­ur­inn gæti ógnað þjóð­inni og mann­kyni öllu var staðan sú að 180 manns gengu með veiruna. Alls höfðu 220 manns greinst árið 2011. Þar af höfðu 40 dáið vegna eyðni. 

Þeir sem ganga með veiruna í dag lifa flestir ágætu lífi. Sjúk­dómnum er haldið niðri með lyfja­gjöf sem að vísu mun standa ævi­langt, ef að líkum lætur. Lyfin gera það að verkum að veiran er ekki lengur í blóð­inu og þeir því ekki smit­andi. Þeir sem hafa greinst munu því geta lifað lengi og notið fullra lífs­gæða. Hug­myndir um að skrá­setja alla sýkta eru því frá­leitar. 

Fólk sem tekur reglu­lega lyf og hefur ekki veiruna í blóð­inu er nán­ast ósmit­andi: „Og þetta hefur skipt geysi­miklu almennt séð – við vitum að það eru for­dómar til staðar, en mér finnst þetta hafa spilað svo­lítið inn í að breyta þessu, sér­stak­lega fyrir fólk sem er með eigin for­dóma. Þetta hefur hjálpað mjög mörgum, bara vit­andi að þeir eru ekki smit­andi, eru að taka sín lyf, veiran er ekki að hafa áhrif á ónæm­is­kerfið og þeir munu von­andi lifa lengi og eiga heil­brigt og gott líf,“ sagði Bryndís Sig­urð­ar­dóttir smit­sjúk­dóma­læknir í sam­tali við RÚV undir lok árs­ins 2014. 

Greinin birt­ist af uppi­stöðu fyrst í Stund­inni árið 2015. Höfundur er sá sami þá og í nýrri upp­færslu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina