Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bjarni Harðarson hefur lesið Kóraninn: „Hugmyndir annarra um múslíma oft og tíðum ansi öfgakenndar“

Bjarni Harðarson hefur lesið Kóraninn: „Hugmyndir annarra um múslíma oft og tíðum ansi öfgakenndar“

„Að heyra sömu menn fimb­ul­famba nú um það hversu alvondir þeir menn eru sem komnir eru til valda í Afganistan er ekki nema brjóst­um­kenn­an­legt blaður. Ennþá vitum við lítið um stjórn­ar­hætti nýrra herkon­unga austur í Kabúl og það er sem betur fer sjaldn­ast nokkuð að marka þá menn sem þykj­ast sjá í gegnum hlið tím­ans.“

Þetta eru loka­orð í pistli Bjarna Harð­ar­sonar, bók­sala og rit­höf­undar, í Frétta­blað­inu 25. ágúst. Titill pistils­ins er: „Um hina alvondu menn í austr­inu og gesti þeirra“ og þar fjallar hann í upp­hafi um að hvar­vetna á Vest­ur­löndum sé nú rætt um Talibana og mjög á einn veg: Að þar séu á ferð­inni mis­kunn­ar­laus og sið­laus ill­menni. Bjarni skrifar að stað­reyndin sé að Banda­ríkja­menn og stuðn­ings­þjóðir þeirra (Íslend­ingar þar með taldir) eigi skuld­laust heið­ur­inn af hinnu sorg­legu valda­töku Talibana í Afganistan enda fyrstir til að hlaða undir öfga­sveitir þessar í við­leitni til að hefta völd Sov­ét­manna á svæð­inu. Bjarni nefnir að hann hafi reyndar ekki komið til Afganistan en hann hafi hins vegar farið til Pakistan þar sem hann hreifst af Phas­túnum og að hann hafi með því að fara á þessar slóðir „kom­ist örfá hænu­fet í átt að skiln­ingi á þanka­gangi þessa fólks og fundið hve gagn­stæður hann er okkar hugsun, um margt.“

Og Bjarni skrifar: „Og það er að sönnu að menn þessir eru ekki tals­menn frjáls­ræðis meðal kvenna og raunar ekki frjáls­ræði nokk­urs manns ef út í það er farið. Allt í fari þessa fólks lýtur ströngum aga ferða­veld­is­ins og verkar í heild heldur óhugn­an­lega. En að fólk þetta séu sið­lausir villi­menn eða ill­menni er ekki bara rangt heldur og einnig vitn­is­burður um djúp­stæðan ras­isma, mann­hatur og hroka.“

Síðar skrifar hann: „Eitt er það út af fyrir sig að senda nokkur þús­und manna morð­sveitir inn í land sem Afganistan undir því yfir­skini að leita þurfi uppi ofbeld­is­menn sem sprengja skýja­kljúfa. Slíkt hefði getað jafnað sig. Hitt er til lengri tíma miklu verra að her­för þess­ari var smám saman snúið upp í inn­ræt­ing­ar­her­ferð þar sem Afgönum skyldi kennt að vera eins og fólk tíð­ast er í okkar heims­hluta.“

Við erum bara ein tegund

Mannlíf hafði sam­band við Bjarna sem seg­ist alls ekki vilja verja Talibana eða lífs­við­horf þeirra. „Þau eru ekki mín. En ég hef aftur á móti umgeng­ist svo­lítið heit­trú­aða múhameðstrú­ar­menn einmitt á meðal Phastúa og reyndar víðar og það eru mikil öfug­mæli að tala um þessa menn sem villi­menn. Þau sjón­ar­mið sem ég segi frá í pistl­inum hef ég ekki hvað síst til­einkað mér hjá hóf­sömu fólki í þessum löndum sem blöskrar hvernig Vest­ur­landa­búar hafa í raun­inni alið á öfga­öfl­unum með sínum barna­legu íhlut­unum og svo ekki síst með því að í raun­inni voru það í upp­hafi Banda­ríkja­menn sem kveiktu á þessum öfga­öflum, Tali­bönum og al-Qaida-sam­tök­unum, af því að þetta eru öfl sem þeir gátu notað til að berja á Sov­ét­ríkj­unum á sínum tíma. Ég held að við þurfum að sjá ófarn­að­inn sem banda­lags­þjóðir okkar hafa leitt yfir þetta svæði frekar en að vera að hneyksl­ast á og gera mönnum fyrir fram upp eitt­hvað í þessum löndum. Það verður áhuga­vert að fylgj­ast með hvað ger­ist í Afganistan á næst­unni en við skulum ekki full­yrða neitt um það fyrir fram hvernig þetta verður.“

Bent hefur verið á að Ísland sem NATO-þjóð beri ábyrgð á ástand­inu í Afganistan og segir Bjarni að Íslend­ingar beri mjög mikla ábyrgð. „Ég tel einmitt að ábyrgð okkar liggi gagn­vart því fólki sem hefur verið fengið til að starfa fyrir inn­rás­ar­liðið þarna; við berum gríð­ar­lega ábyrgð við að reyna að bjarga því fólki vegna þess að neyðin getur orðið mjög mikil. Mér finnst þó aðal­lega að við eigum í grunn­inn að opna land okkar fyrir fólki sem vill flytja hingað og ekki tala um það sem eitt­hvað sér­stakt náð­ar­brauð rétt af okkur heldur hagn­aður fyrir Ísland ef ein­hverjir vilja flytja hingað hvort sem það er fólk frá Afganistan eða öðrum löndum því hér erum við allt of fá og ég er algjör­lega and­vígur því hvernig í raun­inni heim­ur­inn er gerður að fang­elsi fyrir stóran hluta jarð­ar­búa. Okkur ber í raun­inni skylda til að taka við því fólki sem hingað vill koma nema það komi í illum til­gangi; afbrota­menn eða dópsalar.“

Talað hefur verið um að allt að 120 Afganir muni fá að koma til lands­ins og segir Bjarni að það væri Íslend­ingum algjör­lega að meina­laus að hafa þann fjölda 10 sinnum meiri.

„Ég held að það sé svo langt í frá að við þurfum að hafa áhyggjur af því að of margir komi. Ísland er við nyrsta haf og er fámennt land. Stóri straum­ur­inn sækir í að fara í þessi stóru sam­fé­lög, inn í Banda­ríkin og að ein­hverju leyti inn í Evrópu. Við eigum að geta haft þetta land miklu opn­ara fyrir almennu, aðfluttu fólki. Við sjáum það að Ísland er í raun­inni í dag galopið fyrir fólki sem býr innan Evr­ópu­sam­bands­ins og það er ekki svo eins og hingað á norð­ur­hjar­ann liggi straumur millj­óna og hann myndi heldur ekki gera það þótt við galopn­uðum landið fyrir öllum heim­inum sem ég held að væri gott vegna þess að lönd eiga ekki að vera lokuð. Ekki fyrir fólki. Það er í lagi að loka löndum fyrir lögum og reglu­gerð­arfári en jörðin er bara ein og menn­irnir eiga að mynda með vissum hætti ákveðið bræðra­leg. Við erum bara ein teg­und.“

Mildara og heilbrigðara rit

Sumir ótt­ast áhrif og ítök múslíma á Vest­ur­löndum og benda til að mynda á Svíþjóð sem dæmi um land þar sem aðlögun þeirra hefur mis­tek­ist. Hvað segir Bjarni um skoð­anir þess fólks?

„Ég held að hug­myndir ann­arra um múslíma séu oft og tíðum ansi öfga­kenndar og ein­kenn­ast af for­dómum. Það eru vissu­lega miklar ógöngur í heimi harð­línu­manna í heimi múslíma sem hafa birst okkur í öfga­fullum stjórn­völdum eins og Tali­bönum. En múslímar almennt eru ekki ógn þó svo við myndum opna landið. Það tel ég alveg af og frá. Við eigum ekki að vera hrædd við trú­frelsi eða hrædd við að menn trúi á eitt­hvað sem þeir skilja ekki. Þetta er bara barna­skapur.

Ég hef á ferða­lögum mínum svo sem til Gambíu, Márit­aníu, Senegal og svo nátt­úr­lega Pakistan alltaf eign­ast vini á meðal múslíma og það sem stendur upp úr af kynnum mínum af múslímskum sveita­mönnum er það hvað þeir eru í hugs­un­ar­hætti, háttum og gest­risni nauða­líkir íslenskum sveita­mönnum. Það er styttra á milli okkar og múslím­anna heldur en flestra ann­arra Evr­ópu­manna vegna þess að við erum frá fornu fari rollu­menn eins og þeir. Það að vera rollu­menn bindur okkur og syni spá­manns­ins svo­lítið saman.“

Bjarni hefur gegnt ýmsum störfum í gegnum árin en hann hefur lengi verið bók­sali en áður var hann til dæmis bóka­út­gef­andi og svo sat hann á Alþingi um ára­bil.

„Ég er alveg trú­laus en ég hall­ast nú helst að því samt og hef lært það af múslímum að lík­lega eru það for­lögin sem stjórna manni og þau hafa leitt mig í það að ég var nú lengi blaða­út­gef­andi og svo varð ég allt í einu án þess að hafa nokkurn tím­ann tekið ákvörðun um það orð­inn bóka­út­gef­andi og bók­sali. Og þetta er óskap­lega skemmti­legt. Bóka­heim­ur­inn er skemmti­legur þó að hann eigi svo­lítið undir högg að sækja en það er ofsögum sagt að bókin sé að deyja.“

Bjarni er spurður hvað bókin sé í huga hans. „Bækur eru svo margt. Þessi breiða menn­ing í allri heims­sög­unni felst í bókum og við náum ekki dýpt í menn­ing­ar­legu til­liti nema að bækur komi þar við sögu.“

Hann er spurður hvort hann eigi upp­á­halds­bók. „Nei. Þó er ein bók sem hefur ansi lengi fylgt mér og ég vona að hún geri það alla tíð og það er biblía okkar Sunn­lend­inga; Brennu-Njáls saga.“

Bjarni er svo spurður hvort hann hafi lesið Kóraninn. „Já, ég held ég megi segja að ég hafi lesið allan Kóraninn þó það hafi gerst í mörgum smá­bútum; ég hef aldrei lesið hann heilt í gegn ekki frekar en Biblíuna. Kóraninn er miklu mild­ara og heil­brigð­ara rit heldur en Biblían.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina