Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Álfheiður: „Z-kynslóðin lausnamiðuð enda áhyggjur, reiði og kvíði ekki gott veganesti út í lífið“

Álfheiður: „Z-kynslóðin lausnamiðuð enda áhyggjur, reiði og kvíði ekki gott veganesti út í lífið“

Álf­heiður Eymars­dóttir hug­leiðir kosn­ing­arnar sem framundan eru í sam­hengi við að „í haust kjósa Íslend­ingar fæddir á 21.öld­inni í fyrsta skipti í Alþing­is­kosn­ingum. Hin svo­kall­aða Z- kyn­slóð er að öðl­ast kosn­inga­rétt. Ef marka á börnin mín finnst þess­ari kyn­slóð tölvu­póstur í meira lagi hall­æris­legur og sein­virkur. Minni kyn­slóð, X-kyn­slóð­inni, finnst tölvu­póstur enn algjör bylt­ing í sam­skiptum.“

Þess ber að geta að skil­grein­ingin hvað aldur varðar þá er Z-kyn­slóðin skil­greind sem fólk fætt á árunum 1995 – 2010 en X-kyn­slóðin er fólk fætt á árunum 1965 – 1979.

„Þetta unga fólk veit varla hvað línu­leg dag­skrá þýðir, gerir kröfu um snör hand­tök, allar upp­lýs­ingar og gögn eiga að liggja klár fyrir, sam­skipti, vinna og dægradvöl í snjall­tækjum. Þetta unga fólk hefur allt önnur úrlausnar- og áhyggju­efni en ég hafði á þeirra aldri,“ segir Álf­heiður og bætir við:

„Frá því um 1990 hafa tækni­breyt­ingar gjör­breytt heim­inum á undra­verðum hraða. Það er stutt síðan að það voru for­rétt­indi að eiga gervi­hnatta­disk til að sjá umheim­inn í beinni á CNN. Nú sjáum við heims­at­burði í beinni á úrinu okkar. Á aðeins 30 árum höfum við upp­lifað tækni­bylt­ingu, upp­lýs­inga­bylt­ingu, staf­ræna bylt­ingu, net­bylt­ingu, örgjörvabylt­ingu sem hefur gjör­breytt lífi okkar og starfi. Veru­leiki, lífs­hættir og sam­fé­lag er allt öðru­vísi en við þekktum fyrir aðeins þremur ára­tugum.“

Álf­heiður nefnir þó að „okkur hefur ekki enn tek­ist að greiða úr mál­efnum land­bún­að­ar­ins. Eða lag­færa mis­ræmi í atkvæða­vægi. Við höfum ekki und­ir­búið okkur nægi­lega vel fyrir áskor­anir 21. ald­ar­innar – sjálf­virkni­væð­ingu og fjórðu iðn­bylt­ing­una. En hún er löngu hafin. Stjórn­völd hafa ekki spurt réttu spurn­ing­anna, van­rækt að und­ir­búa nýja og breytta fram­tíð – og vel­flest kerfi hins opin­bera mið­ast enn við veru­leika 20.ald­ar­innar.“

Og bætir við:

„Z-kyn­slóðin á eftir að sjá að stjórn­kerfið er enn á hraða snigils­ins. Risa­eðlur að takast á um mál­efni sem leysa mátti fyrir löngu. Fólk sem heldur ekki í við tækni­bylt­ing­una. Unga fólkið áttar sig á því að við erum að auka á vanda unga fólks­ins með því að horfast ekki í augu við þennan nýja veru­leika og koma í fram­kvæmd hald­góðum lausnum sem þó eru til staðar,“ segir hún og nefnir sem dæmi „afglæpa­væð­ingu, skaða­minnkun, raun­hæf höf­und­ar­rétt­ar­mál í staf­rænum heimi, gagn­sæi, borg­ara­rétt­indi, athafna­frelsi og beint lýð­ræði. Allt eru þetta dæmi um hug­myndir sem þóttu sam­heng­is­laust, brjál­æð­is­legt og jafn­vel stór­hættu­legt raus rugl­aðs fólks, en eru teknar alvar­lega í dag. Z-kyn­slóðin á eftir að koma með enn betri hug­myndir og lausnir.“

Að hennar mati snýst dæmið ansi mikið um að „þegar sam­fé­lags­breyt­ingar halda ekki í við tækni­þróun þá þarf eitt­hvað undan að láta. Við höfum lengi vitað að við þyrftum að hugsa á nýjan hátt um menntun til að und­ir­búa okkur fyrir fjórðu iðn­bylt­ing­una, sem er löngu hafin. Afleið­ingin er sú að of mörgum líður illa. Illa læsir drengir, kvíðnar stúlkur og átta­villt stálp. Okkur hefur ekki auðn­ast að búa svo um hnút­ana að lit­rík flóra ólíkra ein­stak­linga geti blómstrað í sam­fé­lagi sem sinnir grunn­þörfum allra. Við höfum ekki staðið okkur vel þegar kemur að fram­tíð­ar­sýn og nauð­syn­legum und­ir­bún­ingi sam­fé­lags­ins alls. Breyt­ingar ger­ast allt of hægt eða alls ekki. Við sitjum og ríf­umst um Vaðla­heið­ar­göng og Land­eyja­höfn. Fram­leiðum skýrslur. Stofnum nefndir. Leynum enn upp­lýs­ingum þegar unga fólkið heimtar allt upp á borðið.“

Álfheiði finnst því fram­tíðin vera kvíð­væn­lega „fyrir marga. Ungt fólk áttar sig á því að náms­lána­kerfið er slig­andi. Heil­brigð­is­kerfið er stirð­busa­legt. Lofts­lags­breyt­ingar þegar farnar að hafa áhrif. Það verður und­ar­lega erfitt að koma þaki yfir höf­uðið og sjá fyrir fjöl­skyldu. Mennta­kerfi sem þarf að breyt­ast hraðar. Atvinnu­lífið er eins­leitt. Þau sjá fátækt og for­dóma allt í kring. Hark­k­erfi en ekki hag­kerfi. Þau sjá allt böl heims­ins í sím­anum. Allar þessar upp­lýs­ingar án tæki­færa til þess að vinna úr þeim í gegnum árang­urs­ríka og ánægju­lega skóla­göngu, með góðum sam­fé­lags­legum stuðn­ingi frá fjöl­skyldu, vel skipu­lögðu örygg­is­neti sem grípur alla. Þetta skapar gríð­ar­legan kostnað fyrir sam­fé­lag fram­tíðar ef ekki er gripið inn í strax. Áhyggjur, reiði og kvíði eru ekki gott vega­nesti út í lífið.“

Hún segir að það þurfi að „skapa tæki­færi fyrir þessa kyn­slóð. Það þarf rót­tækar kerf­is­breyt­ingar fyrir þetta flotta unga fólk. Það þarf að mennta þau við hæfi. Höfum kjark til að breyta mennta­kerf­inu okkar í góðu sam­ráði við kenn­ara, nem­endur og for­eldra. Stór­bætum geð­heil­brigð­is­þjón­ustu og utan­um­hald fyrir allar fjöl­skyldur lands­ins. Það er nóg pláss fyrir okkur öll og við erum svo heppin að eiga ríkt og gott sam­fé­lag sem hefur alla burði til að sinna öllum vel. Það þarf að búa þeim betra sam­fé­lag og raun­hæfar fram­tíð­ar­horfur. Tökum á þessum lofts­lags­breyt­ingum af alvöru. Við brugð­umst of seint við fram­tíð sem hefur löngu bankað upp á.“

Og aftur að Z-kyn­slóð­inni sem að mati Álf­heiðar „áttar sig á því að ef hún velur ekki full­trúa á Alþingi sem líta til fram­tíðar, vilja grósku, ábyrga með­ferð nátt­úru­auð­linda, trygg borg­ara­rétt­indi, ein­stak­lings­frelsi og nýsköpun – þá endar þetta með því að sömu freku, gráð­ugu risa­eðl­urnar sitja enn í sömu stólum að diskút­era land­bún­að­ar­tolla, kvóta­kerfið og byggða­mál eftir önnur 30 ár án þess að breyta nokkrum sköp­uðum hlut. Þá lifum við hvorki af lofts­lags­breyt­ingar né úrelta sam­fé­lags­gerð af manna­völdum. Við verðum að breyta og bæta. Enga stöðnun meir.

Mig langar því að bjóða Z-kyn­slóð­ina hjart­an­lega vel­komna í hóp kjós­enda. Notið nýfengin lýð­ræð­is­leg rétt­indi ykkar til að koma okkur inn í fram­tíð­ina. Við þurfum svo sann­ar­lega á aðstoð að halda. Notið atkvæða­rétt­inn til að koma í veg fyrir að fram­tíð­ar­kyn­slóðir þurfi á áfalla­hjálp að halda áður en þær halda út í lífið. Hefjist handa við að breyta, bæta og búa ykkur til bæri­legar fram­tíð­ar­horfur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina