Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kristrún Úlfarsdóttir á að baki erfitt líf: Lofaði eiginmanninum að fremja ekki sjálfsmorð

Kristrún Úlfarsdóttir á að baki erfitt líf: Lofaði eiginmanninum að fremja ekki sjálfsmorð
Kristrún Úlf­ars­dóttir

„Ég átti fremur erf­iða æsku. Ég var mikið á spít­ala og ég var lögð í ein­elti og þar af leið­andi átti ég fáa vini,“ segir Kristrún Úlf­ars­dóttir sem mörgum árum síðar barð­ist við mikið þung­lyndi eða á árunum 1998-2005.

Eineltið byrj­aði í sjö ára bekk. „Ég var með króníska blöðru­bólgu; ég fann ekki þegar ég þurfti að pissa og þá bara lak allt niður og þá byrj­uðu krakkar í skól­anum meðal ann­ars að upp­nefna mig.“ „Kristrún pissu­fýla“ var oft sagt. Hún var stundum læst inni á kló­setti í skól­anum og krakkar földu skóla­tösk­una hennar og úlpuna. „Þegar ég var komin í ung­linga­deild vildi eng­inn vera með ein­hverjum sem var með eitt­hvað pissu­fýlu­nafn á sér. Þetta fylgdi mér svo­lítið út skól­ann. Ég var mjög sorg­mædd og reyndu mamma og pabbi á tíma­bili að fá mig setta í annan skóla en það gekk ekki. Ég var þó látin skipta um bekk og ein­eltið minnk­aði við það inni í skóla­stof­unni en ég þurfti samt að fara út í frí­mín­útur þar sem ég hitti fyrr­ver­andi bekkj­ar­systk­ini mín.“

Ég var mjög sorg­mædd og reyndu mamma og pabbi á tíma­bili að fá mig setta í annan skóla en það gekk ekki.

Kristrún eign­að­ist sína elstu dóttur 18 ára gömul. Hún seg­ist hafa öðru hvoru orðið döpur eftir fæð­ing­una. Þetta vatt svo upp á sig eftir að miðju­dóttirin fædd­ist en hún fékk þá fæð­ing­ar­þung­lyndi og hún fékk svo alvar­legt þung­lyndi eftir að yngsta dóttirin fædd­ist.

Miðju­dóttirin fædd­ist með hjarta­galla og seg­ist Kristún alltaf hafa verið með áhyggjur. „Þetta kom í ljós þegar hún var sex mán­aða og ég hélt að hún væri að fara að deyja. Hún var í eft­ir­liti þangað til hún var þriggja ára en þá varð hún að fara í aðgerð af því að hún var hætt að stækka. Hún var alltaf veik; mikið frá leik­skóla og fékk allar umgangspestir.“ Ástandið lag­að­ist eftir að hún fór í aðgerð.

Kristrún var orðin þriggja barna móðir 22 ára. Hún þyngd­ist mikið á þessum tíma. Var orðin 125 kíló og það hafði áhrif á líð­an­ina. Andlega og lík­am­lega. Hún fór á örorku­bætur árið 2002 vegna þung­lyndis og offitu. „Ég var komin með syk­ur­sýki, háþrýst­ing og kól­ester­ólv­esen út af offitu.“

Við áttum ekkert

Hún seg­ist hafa verið dofin á þessum tíma. „Ég man mjög lítið eftir þessu tíma­bili. Það er eins og heil­inn hafi sett í lás. Ástandið var skelfi­legt. Ég lá bara oft uppi í rúmi, grenj­aði oft og ég var bara ömur­lega leið­in­leg á þessu tíma­bili. Ég tók ekki til og hugs­aði ekki um börnin mín. Ég vildi bara fá að sofa af því að þá fann ég ekki til. Maðurinn minn varð eig­in­lega samdauna þessu. Þetta var bara normið. Ég fór til læknis en hann sagði mér að hætta þessu bulli og fara bara út og hreyfa mig. Svo fór mamma með mér til ann­ars læknis og þá fékk ég töflur en þær höfðu lítið að segja. Ég próf­aði þrjár teg­undir af þung­lynd­is­lyfjum en ég hætti að taka þau þar sem mér fór að líða verr en lækn­ir­inn sagði að fólk geti farið í lægð áður en það fer svo upp. Maðurinn minn var mikið atvinnu­laus á þessum tíma og við áttum engan pen­ing. Við áttum stundum ekki mat. Við áttum ekk­ert. Þetta var hræði­legt. Við skráðum okkur ekki í sam­búð af því að þá hefðum við haft ennþá minna á milli hand­anna og þá hefðu leik­skóla­gjöldin hækkað. Hann var á atvinnu­leys­is­bótum og ég á öroku­bótum og við gátum ekki lifað af þeim pen­ingum sem við fengum. Mamma varð stundum að fara með okkur og kaupa handa okkur mat. Við keyptum til dæmis aldrei ost; ostur var mun­aður. Við leyfðum okkur ein­staka sinnum að kaupa súkkulaði. Svo reyktum við mikið. Ég var farin að reykja hátt í tvo pakka á dag. Það gekk eig­in­lega fyrir á þessum tíma að geta gefið krökk­unum okkar núðlur og að kaupa sígar­ettur fyrir okkur. Svo vorum við stundum með spag­hettí sem var ódýrt. Við keyptum hvorki græn­meti né ávexti sem voru dýrir.“

Ég tók ekki til og hugs­aði ekki um börnin mín. Ég vildi bara fá að sofa af því að þá fann ég ekki til.

Hefði viljað sofna svefninum langa

Elsta dóttir Kristrúnar bjó hjá ömmu sinni í nokkur ár vegna ástands­ins. „Ég grenj­aði svo mikið þegar ég sam­þykkti að hún fengi að fara. Mér fannst það vera svo mikil árás á mig. Mér fannst ég ekki vera góð mamma. Ég átti mjög erfitt út af þessu. Svo hugs­aði ég út í hvað væri best fyrir hana þannig að ég sam­þykkti að hún byggi hjá mömmu. Við bjuggum þó hlið við hlið þannig að dóttir mín hljóp á milli.“

Mamman var sof­andi og það var allt í ógeði

Þögn.

„Það bjarg­aði því alveg að hún gat hlaupið á milli.“

Ástandið var oft þannig að Kristrúnu lang­aði ekki til að lifa lengur. Fram­tíð­ar­sýnin var engin. „Ég var það heppin að mað­ur­inn minn var búinn að taka af mér lof­orð um að ég myndi aldrei fremja sjálfs­morð. Þess vegna er ég hér ennþá. Ég hefði ann­ars viljað fá að sofna og ekk­ert vakna aftur.“

Þögn.

„Það var bara orðið þannig.“

Hún er spurð hvað hafi verið erf­ið­ast.

„Þegar ég hugsa til baka þá var það að hafa aldrei verið til staðar fyrir börnin. Stelp­urnar komu ekk­ert heim með vini sína. Mamman var sof­andi og það var allt í ógeði.“

Þögn.

Eins og spark í rassinn

Barna­vernd­ar­nefnd hafði afskipti af fjöl­skyld­unni um tíma. „Maðurinn minn sendi stelp­urnar einn dag­inn í óhreinum nátt­fötum í leik­skól­ann. Ég var búin að vera að senda þær í óhreinum fötum í leik­skól­ann og þennan dag fann hann engin hrein föt en fann óhrein nátt­föt sem hann vissi ekki að væru óhrein. Þá kom Barna­vernd­ar­nefnd inn í málið. Ég var boðuð á fund en mætti ekki. Ég var síðan boðuð aftur á fund en mætti ekki heldur þá. Þá kom félags­ráð­gjafi og önnur kona á vegum Barna­vernd­ar­nefndar heim og börðu þær allt að utan þangað til ég neydd­ist til að opna. Þeim örugg­lega kross­brá við að sjá heim­ili mitt. Ég fékk svo þessa konu, sem var ynd­is­leg, sem til­sjón­ar­mann og hún kom næsta mánuð viku­lega heim og sagði til dæmis að þá vik­una ætti ég að taka til á hillu­sam­stæð­unni; hún setti niður verk­efni. Þetta var eins og spark í rass­inn. Þetta bjarg­aði okkur held ég. Ég hugs­aði nefni­lega fyrst með mér að nú ætti að taka börnin af okkur en svo var ekki. Starfs­fólk Barna­vernd­ar­nefndar var ynd­is­legt og þau voru öll til­búin til þess að hjálpa.“

Þetta bjarg­aði okkur held ég. Ég hugs­aði nefni­lega fyrst með mér að nú ætti að taka börnin af okkur en svo var ekki.

Maður Kristrúnar fékk svo vinnu og þá fór henni að líða enn betur þegar þau höfðu meiri pen­ing á milli hand­anna. Og hún var farin að fara út að ganga. „Ég nán­ast bjó við hlið­ina á leik­skól­anum og ég man þegar bíll­inn var bil­aður einn dag­inn og ég ákvað að labba með  stelp­urnar í leik­skól­ann en það tók um þrjár mín­útur. Ég var svo stolt af sjálfri mér að ég tal­aði um það þegar ég kom þangað að ég hefði gengið að heiman. Fólkinu fannst þetta ekki vera merki­legt.“

Hún hlær.

Þetta var stórt skref fyrir Kristrúnu.

„Svo fór amma að fara með mig reglu­lega að ganga í kringum Hval­eyr­ar­vatn.“

Kristrún gekk og gekk og leiðin upp á við tók tíma en hún náði toppnum. Hún hætti á örorku­bótum og segir að það hafi tekið tíma að fá vinnu en hún fékk svo vinnu árið 2008 sem skóla­liði í grunn­skóla. Hún vann síðan með fötl­uðum í mörg ár.

Vill hjálpa öðrum

Kristrún fór aftur á örorku­bætur í fyrra vegna vefja­gigtar en hún seg­ist ekki taka nein lyf við henni; seg­ist vera svo­lítið töflu­hrædd. „Ég held ég sé búin að vera með vefja­gigt síðan ég var ung­lingur. Ég var oft með verki og það var oft sagt að þetta væru vaxt­ar­verkir; 18 ára með vaxt­ar­verki.“ Hún hlær.

„Vefja­gigtin var farin að hafa áhrif á líf mitt og starfs­getu. Ég var farin að sjá gömlu mig. Ég var alltaf svo þreytt. Ég fór fyrir nokkrum árum í aðgerð og missti mikið blóð og um ári síðar leið ég út af og fór á sjúkra­hús þar sem ég fékk blóð­gjöf og járn í æð. Ég hef verið mjög þreytt eftir þessa aðgerð og vefja­gigtin versn­aði í kjöl­farið. Ég nennti ekki neinu. Þetta hafði áhrif á allt. Mér leið samt ekki eins og þegar ég var þung­lynd.“

Hvað finnst Kristrúnu hún hafa lært af þess­ari lífs­göngu sinni þar sem hún hefur farið niður í dal­botna og upp á hóla og fell? „Ég held ég sé sterk­ari en ella og hef meiri inn­sýn í lífið og til­ver­una. Ég get líka passað upp á sjálfa mig; ég ætla ekki að fara þessa leið aftur. Þetta hefur gert mig harð­ari. Ég læt meira yfir mig ganga. Og ég get hjálpað öðrum sem eru að ganga í gegnum það sem ég hef gengið í gegnum. Ef fólki líður illa þá á það að treysta ein­hverjum fyrir því sem það er að ganga í gegnum og fá hjálp. Ég sagði til dæmis ekki mikið frá því þegar ég var lögð í ein­elti en það er erfitt að hjálpa þeim sem segja ekki frá og eng­inn les hugs­anir þeirra. Þannig að númer eitt, tvö og þrjú er að segja frá og tala um það.“

Ef fólki líður illa þá á það að treysta ein­hverjum fyrir því sem það er að ganga í gegnum og fá hjálp.

Kristrúnu líður vel í dag eða eins og aðstæður leyfa. Hún vill hjálpa öðrum og er með opið snapp, krissa4, þar sem hún ætlar að tjá sig um reynslu sína.

Hún átti sér enga drauma þegar henni leið sem verst. Hún á hins vegar drauma í dag.

„Mig dreymir um að ná betri heilsu og geta von­andi farið aftur út á vinnu­mark­að­inn. Mig langar til að ferð­ast af því að ég gerði ekki neitt í mörg ár.“

Hvert langar hana til að fara?

„Aðal­draum­ur­inn er að sigla á skemmti­ferða­skipi um Kar­ab­íska hafið.“ Hún hlær „Ég held að það væri geggjað.“

Hún hlær í dag. Það gerði hún ekki á sínum tíma.

„Fólk á ekki að gef­ast upp þótt það langi til þess. Ekki gera það. Það mega allir taka pláss í ver­öld­inni.“

Fólk á ekki að gef­ast upp þótt það langi til þess.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina