Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Halldóra Mogensen: „Besta forvörnin í vímuefnamálum er að uppræta fátækt og neyð“

Halldóra Mogensen: „Besta forvörnin í vímuefnamálum er að uppræta fátækt og neyð“
Halldóra Mogensen.

Halldóra, sem er odd­viti Pírata í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Norður, ræðir um fíkn og refsi­stefnu í íslensku sam­fé­lagi:

Halldóra byrjar á því að segja að þessi þrettán orð sem Johann Hari hefur að leið­ar­ljósi þegar kemur að fíkn og bata – „And­stæðan við fíkn er ekki að vera alls­gáður. And­stæðan við fíkn eru tengsl“ – „breyttu því hvernig ég hugs­aði um vímu­efna­vanda fólks. Hver rann­sóknin á fætur annarri hefur enda sýnt að við mann­eskj­urnar höfum með­fædda þörf fyrir tengsl. Þegar okkur líður vel, þegar við erum heil­brigð og ham­ingju­söm, þá tengj­umst við öðrum. Ef við erum ein­angruð og líður illa þá tengj­umst við ein­hverju sem veitir tíma­bund­inn létti – eins og vímu­efnum.“

Hún vill meina að sú refsi­stefna í vímu­efna­málum sem er við lýði á Íslandi „ýtir undir það síð­ar­nefnda. Hún eykur jað­ar­setn­ingu vímu­efna­not­enda, gerir þeim erf­ið­ara fyrir að tengj­ast sam­fé­lag­inu, sem síðan ýtir undir auk­inn fíkni­vanda þeirra.“

Og bætir við:

„Það er úti­lokað að eyða vímu­efnum úr sam­fé­lag­inu. Við gætum varið öllum heims­ins pen­ingum og öllum starfs­kröftum lög­reglu í að hafa uppi á efn­unum en við myndum samt ekki útrýma þeim. Það sést ein­fald­lega best í fang­elsum lands­ins. Meira að segja fangar undir strangri örygg­is­gæslu allan sól­ar­hring­inn geta nálg­ast skammt­inn sinn. Við munum aldrei geta upp­rætt vímu­efnin og þau verða hér svo lengi sem það er eft­ir­spurn eftir þeim.“

Halldóra bendir á að „rann­sóknir sýna að harð­ari refs­ingar í vímu­efna­málum draga hins vegar ekki úr eft­ir­spurn. Þrátt fyrir að Fil­ippsey­ingar gangi meira að segja svo langt að drepa fíkni­efna­sala og við­skipta­vini þeirra þá hefur staðan lítið breyst á eyj­unum. Þó svo að við göngum bless­un­ar­lega ekki jafn langt í okkar refsi­stefnu þá er engu að síður ábyrgða­laust að halda áfram stefnu sem er ekki bara gagns­laus, heldur stór­kost­lega skað­leg. Hún ýtir not­endum út á jað­ar­inn og við­heldur neyð þeirra.“

Og það er „þess vegna sem Píratar vilja hætta að refsa vímu­efna­not­endum með því að afglæpa­væða neyslu­skammta vímu­efna. Fólk með vímu­efna­vanda á heima í heil­brigð­is­kerf­inu, ekki dóms­kerf­inu. Píratar hafa alltaf beitt sér fyrir skaða­minnkun, ein­fald­lega af því að hún virkar. Í stað þess að jað­ar­setja fólk sér skaða­minnkun til þess að komið er fram við fólk eins og mann­eskjur. Skaða­minnk­un­ar­nálgun hvetur til virk­ari þátt­töku í sam­fé­lag­inu og eykur þannig líkur á bata. Við drögum úr and­stöðu sam­fé­lags­ins við vímu­efna­not­endur, án þess að eyða and­stöð­unni við vímu­efnin sjálf.“

Halldóra seg­ist vilja sjá að dregið verði „úr eft­ir­spurn eftir vímu­efnum með aðferðum sem virka: Með gagn­reyndum for­vörnum, fræðslu, við­halds- og með­ferð­ar­úr­ræðum. Þar þarf sér­stak­lega að huga að áhrifa­þáttum fíknar, svo sem áfalla í æsku og ann­arra félags­legra þátta. Við viljum setja nýja og mann­úð­lega stefnu í áfengis- og vímu­vörnum sam­hliða afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta, þar sem áhersla verður lögð á skaða­minnkun, fræðslu og for­varnir. Engin slík stefna er í gildi hjá stjórn­völdum sem stendur.“

Hún nefnir einnig að „besta for­vörnin í vímu­efna­málum er þó að upp­ræta fátækt og neyð. Útrýma því sem ein­angrar fólk, lætur því líða illa og leiðir til þess að það leitar í tíma­bund­inn létti vímu­efn­anna. Þess vegna tölum við Píratar fyrir vel­sæld­ar­hag­kerf­inu sem hvílir á þeirri hug­mynd að hætta að ein­blína á hag­vöxt sem eina mæli­tækið á gæði sam­fé­lags­ins. Við þurfum fleiri og betri mæli­kvarða,“ og spyr:

„Eins og hvort auð­velt sé að eign­ast hús­næði? Hvernig er geð­heil­brigði þjóð­ar­innar? Er umhverfið heilsu­sam­legt? Er mennta­kerfið gott? Er mikil lýð­ræð­is­leg þátt­taka? Gott heil­brigð­is­kerfi?“

Halldóra vill meina að „mæli­kvarðar sem þessir breyta ekki aðeins hvöt­unum í hag­kerf­inu og auka gagn­sæið, því þá veit fólk hvort skatt­pen­ingar þeirra séu raun­veru­lega að bæta sam­fé­lagið, heldur stuðla jafn­framt að alvöru lausnum gegn vímu­efna­vand­anum. Við sköpum efna­hags­legt svig­rúm fyrir fólk til að huga að til­gangi og ástríðu, í stað þess að þræla sér út til þess eins að ná ekki einu sinni endum saman. Þannig fyrst getum við ræktað þá þætti sam­fé­lags­ins sem ýta undir heil­brigða tengsla­myndun sem dregur úr vímu­efna­vand­anum, því jú: And­stæðan við fíkn er ekki að vera alls­gáður. And­stæðan við fíkn eru tengsl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina