Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gunnar Smári hraunaði yfir Samtök iðnaðarins – „Hjá ykkur hefur hver króna eitt atkvæði“

Gunnar Smári hraunaði yfir Samtök iðnaðarins – „Hjá ykkur hefur hver króna eitt atkvæði“
Gunnar Smári Mynd: Skjáskot

Gunnar Smári mætti gunn­reifur á kosn­inga­fundi Samtaka Iðn­að­ar­ins í Hörpu í gær. Lét hann Sigurð Hann­es­son, fram­kvæmd­ar­stjóra sam­tak­ana heyra það.

Gunnar Smári Egilsson, fram­bjóð­andi Sós­í­alista­flokks­ins, steig í pontu til að svara spurn­ingu sem Sigurður hafði borið upp til allra fram­bjóð­enda, sem snéri að því hver stefna þeirra flokka væri hvað snerti atvinnu­lífið og þá sér­stak­lega þau fyr­ir­tæki sem sam­tökin standa fyrir. Var Gunnar Smári ekki á því að svara þess­ari spurn­ingu og útskýrði hvers vegna.

Hann sagði að nú væri verið að ganga til þing­kosn­inga sem sé lýð­ræð­is­vett­vang­ur­inn, valdið væri almenn­ings og að rík­is­valdið væri fram­kvæmd­ar­armur þess. Þá sagði Gunnar Smári sinn flokk, Sós­í­alista­flokk­inn byggja stefnu sína á fjölda­hreyf­ingum á borð við BSRB, ASÍ og Öryrkja­banda­lag­inu, „það eru lýð­ræð­is­leg sam­tök þar sem hver maður hefur eitt atkvæði, Samtök Iðn­að­ar­ins eru ekki slík sam­tök. Þau eru ekki lýð­ræð­is­leg sam­tök.“

Sigurður spurði þá hálf móðg­aður „hvað hef­urðu fyrir þér í því, af hverju seg­irðu það Gunnar?“ Gunnar Smári svar­aði því til að í Samtökum Iðn­að­ar­ins hefði „hver króna eitt atkvæði. Þannig að þeir sem eru fjár­hags­lega sterk­astir fara með völdin í ykkar félagi. Þið kallið ykkur Samtök iðn­að­ar­ins en þið eruð ekki sam­tök til dæmis Hassans sem rekur sauma­verk­stæði á Hverf­is­götu og sem gerði við úlpuna mína. Heldur eruð þið fyrst og fremst að reka hags­muni þeirra allra fjár­sterk­ustu.“

Sigurður Hann­es­son reyndi að malda í móinn og sagði að Hassan gæti fengið inn­göngu inn í sam­tökin og fór að útskýra hvernig hann gæti það en Gunnar Smári bað aftur um orðið og sagði „þið fenguð hér að messa yfir okkur áðan eins og skóla­stjórar að taka nem­endur í kennslu­stund.“

Áfram hélt Gunnar Smári að predika yfir Sigurði „Ég er að benda á að stjórn­mál snú­ast ekki um að Samtök iðn­að­ar­ins eða Samtök atvinnu­lífs­ins, sam­tök þeirra sem fara með völd í sam­fé­lag­inu, fjár­sterk­ustu aðil­ana í íslensku sam­fé­lagi, komi og setji stjórn­mála­fólk í ein­hverja kennslu­stund og spyrji: Ert þú fylgj­andi tæki­fær­unum? Og rétta mann bæk­ling sem er sá dýr­asti þess­arar kosn­inga­bar­áttu þar sem þið eruð að fara fram á rík­is­styrki, skatta­af­slætti.“

Þarna greip Sigurður fram í fyrir Gunnari Smára og sagð­ist ekk­ert kann­ast við þetta. Gunnar Smári lét þetta inn­skot ekki á sig fá og hélt áfram „Ef maður myndi bera þetta saman við hóg­værar kröfur Öryrkja­banda­lags­ins sem er að biðja um að fá að borða út mán­uð­inn.“ Sigurður greip þá orðið aftur og þakk­aði honum fyrir svarið og bætti við „þú ert ekki maður tæki­fær­anna.“ Lét Gunnar Smári sem hann hefði ekki heyrt þetta og sagði Samtökin vera með kröfur sem „eru mörgum millj­örðum hærri en kröfur þessa fólks, þið eruð fyrst og fremst að tala fyrir hönd ein­hverra hund­rað manna.“ Sigurður svarar þá „við erum reyndar með 1400 félags­menn en allt í lagi.“

Gunnar Smári sagði þá að honum þætti leið­in­legt að vera ósam­mála honum en það væri óþarfi fyrir Sigurð að móðg­ast yfir því, „ég er ekk­ert móðg­aður þó þú segir skoð­anir sem ég er ósáttur við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina