Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þingmaðurinn Anna Kolbrún glímir við krabbamein: „Þetta var dauðadómur þegar ég greindist“

Þingmaðurinn Anna Kolbrún glímir við krabbamein: „Þetta var dauðadómur þegar ég greindist“
Anna Kolbrún Árna­dóttir

„Þetta var dauða­dómur í mínum huga þegar ég greind­ist,“ segir Anna Kolbrún Árna­dóttir, alþing­is­maður Mið­flokks­ins, sem hefur glímt við brjóstakrabba­mein í ára­tug sem hefur dreift sér víða um lík­amann. Hún segir að um sjald­gæfa teg­und brjóstakrabba­meins sé að ræða sem grein­ist sjaldan í ungum konum en hún var 41 árs þegar hún greind­ist. „Ég fékk þær upp­lýs­ingar strax að það yrði ekki hægt að skera meinið í burtu eða fara í geisla og hef ég verið síðan í lyfja­með­ferð og fer núna á þriggja vikna fresti.“

Anna Kolbrún hefur meðal ann­ars fengið æxli í eitla, háls og kvið­ar­hol og svo mynd­að­ist á sínum tíma vökva­söfnun eða bólgur við hjartað. „Það var í eina skiptið sem ég fór í skurð­að­gerð en það var til að bregð­ast við vökva­söfn­un­inni við hjartað.“ Æxli greind­ist síð­ast í leg­háls­inum. „Ég var dálítið fegin að það var sömu teg­undar og hin af því að það hefði verið verra ef það hefði verið önnur teg­und; þá hefði þurft að fara að hræra í lyfj­unum og gera ein­hverjar erf­ið­ari ráð­staf­anir.“

Anna Kolbrún seg­ist vita þegar nýtt æxli sé að stækka. „Ég finn þegar eitt­hvað er að ger­ast. Ég veit að það er þá eitt­hvað vesen inni í mér.“

Hún seg­ist vera löngu hætt að telja þegar nýtt æxli, sem hún kallar bólgu, finnst.

Ég finn þegar eitt­hvað er að ger­ast. Ég veit að það er þá eitt­hvað vesen inni í mér.

Ekkert „ef“ heldur „þegar“

Álagið er búið að vera mikið í ára­tug. Álag, áhyggjur og ótti en Anna Kolbrún ber sig vel.

„Þetta er ein­hvern veg­inn alltaf yfir og allt í kring. Svo er spurn­ing hvort maður hleypi því að eða hvort maður reyni að kom­ast fram hjá hugs­un­unum. Auðvitað hugsa ég oft um fjöl­skyld­una og þegar eitt­hvað ger­ist því það er ekk­ert „ef“ heldur „þegar“. Ég veit það ekki; ég er kannski bara svona praktískt þenkj­andi. Ég virka kannski voða­lega hörð í þessu en það er kannski bara mín leið. Fólk hefur spurt hvernig ég hafi það og ég hef reynt að segja það en þá er fólk ekki að hlusta. Og þá fer maður að velja dálítið úr við hvern maður talar og segir frá af því að stundum hef ég sagt of mikið og fólk getur kannski ekki með­tekið það af því að því finnst það vera svo svaka­legt sem maður er að segja. Maður þarf þess vegna að finna þennan með­al­veg og fara rólega í gegnum lífið.“

Hún sagð­ist kannski virka voða­lega hörð.

„Ég græt með sjálfri mér og mínum nán­ustu en ég lít stundum betur út heldur en mér líður. Ég þakka það að ég er mjög skipu­lögð þannig að ég geti hagað lífi mínu svona; ég næ að ná þessu ein­hvern veg­inn mjög vel saman í ein­hverju sam­spili. Sál­ar­lífð er upp og niður. Ég er að eðl­is­fari jákvæð og ég sé yfir­leitt tæki­færi í flestum aðstæðum.“

Hún seg­ist halda bara áfram. Að lifa líf­inu lif­andi. „Maður þarf að halda áfram þannig að það hentar mér að hafa nóg fyrir stafni. Ég man að þegar lækn­ir­inn spurði á sínum tíma hvort ég gleymdi því stundum að ég væri veik að þá gat ég svarað því ját­andi. Og það er ákveð­inn sigur í sjálfu sér þegar manni líður þannig. En svo inn á milli ligg ég alveg flöt í rúm­inu og get mig ekki hreyft; það eru yfir­leitt lyfin sem hafa þessi áhrif. Þessar auka­verk­anir eru þekktar. Fólk heldur að maður missi hárið í lyfja­með­ferð og þá sé maður veikastur en hitt er ekki sýni­legt. Ég hef aldrei misst hárið af því að ég er ekki á þannig lyfjum.“

Anna Kolbrún segir að nú sé staðan þannig að allt er „til friðs“. „Við tökum stöð­una þriðju hverja viku ef við getum sagt sem svo. Ég fór í tölvu­sneið­mynda­töku um dag­inn og það var engin versnun þannig að núna finnst mér ég vera örugg í ein­hvern tíma. Og von­andi sem lengst. En ef ég á að segja eins og er þá átti ég ekki von á því að ég yrði svona lengi lif­andi þegar ég greind­ist fyrst. Stundum ger­ist þetta svo hratt að fólk fær ekki tíma til þess að und­ir­búa sig. Þó að höggið verði alltaf þá skiptir tím­inn svo miklu máli í þessu. Það er kannski kost­ur­inn, hin hliðin á þessu, að hafa verið að kljást við þetta svona lengi; að maður fékk þó þennan tíma til að takast á við það sem kemur upp á hverju sinni. Ég þekkti nokkuð marga sem fóru á örfáum mán­uðum eftir að þeir greindust og þá hugsa ég um þennan tíma. Það er ýmis­legt þarna sem skiptir máli.“

Ég græt með sjálfri mér og mínum nán­ustu en ég lít stundum betur út heldur en mér líður.

Að vera í núinu og meta sína nánustu

Anna Kolbrún hefur nóg fyrir stafni og það dreifir hug­anum. Hún við­ur­kennir að það hjálpi. „Það er bara mjög mik­il­vægt. Og ég held að það sé mik­il­vægt fyrir allar mann­eskjur að hafa hlut­verk í líf­inu.“

Hún býr fyrir norðan og fer þangað þegar hún er ekki í þing­inu fyrir sunnan. „Mér finnst ég þurfa að kom­ast heim til þess að fá jarð­teng­ingu; það er þegar maður staldrar við og nær að draga and­ann. Ég held að það sé kannski það sem skiptir máli; að missa sig ekki. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa þessu öðru­vísi.“

Anna Kolbrún, er hvergi bangin þrátt fyrir bar­áttu við hinn ill­víga sjúk­dóm. Hún tekur þátt í ksn­inga­bar­átt­unni, skipar 2. sætið á lista Mið­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.  Hún er spurð hvað hún hafi lært af þess­ari reynslu. „Ég hef lært að meta að vera í núinu og meta mína nán­ustu. Þetta er ekki klisja; þetta er það sem lífið er. Þetta má ekki hljóma eins og hræsni en ég hef lært að sleppa tökum á því sem hefur ekki góð áhrif á mig.“

Hún segir að ein­hvern tím­ann komi skell­ur­inn þegar það verður komin það mikil versnun að lyf ráða ekki lengur við þetta. „Þangað til finnst mér ég bara vilja halda áfram. En ég veit líka að þetta getur tekið mánuð og þá er það búið.“

Hún er spurð hvort hún ótt­ist dauð­ann. „Nei, í sjálfu sér ekki. Ég held að ég ótt­ist ekki að deyja en það er vont að vita af þeim sem verða eftir ein­hvern veg­inn; sínum nán­ustu. Ég er ekki búin að skipu­leggja neitt; ég nenni ekki að standa í þessu.“ Hún kímir. „Ég veit ekki hvernig ég á að útskýra það. Það er ákveðin kald­hæðni að segja þetta en það er bara þannig.“

Hún er spurð hvort hún haldi að það taki eitt­hvað annað við hinum megin. „Já, ég ímynda mér það en ekki endi­lega að það sé eitt­hvað líf eftir þetta líf. En ég held að maður geti fylgst með þeim sem mann langar til að fylgj­ast með.“

Ég held að ég ótt­ist ekki að deyja en það er vont að vita af þeim sem verða eftir ein­hvern veg­inn; sínum nán­ustu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina