Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sanna: „Hér er haldið utan um ríkustu 10% fjölskyldurnar sem eiga 56% af heildareignum heimilanna“

Sanna: „Hér er haldið utan um ríkustu 10% fjölskyldurnar sem eiga 56% af heildareignum heimilanna“

Sós­í­alist­inn Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir segir að „lág­tekju­fólkið býr ekki í landi tæki­fær­anna sem birt­ast okkur í bláum bros­andi skila­boðum stjórn­mála­fólks á strætó­skýlum. Skila­boðin leit­ast við að telja okkur trú um að hér sé allt fullt af tæki­færum sem megi ná fram með skatta­lækk­unum sem muni virkja kraft­inn í fólki og fyr­ir­tækjum.“

Sanna vill meina að „kraft­ur­inn hefur eitt­hvað klikkað á því að trítla niður til hinna efna­minni, þar sem land tæki­fær­anna miðar við þarfir hinna eigna­mestu. Hér er haldið vel utan um rík­ustu 10% fjöl­skyld­urnar sem eiga 56% af heild­ar­eignum heim­il­anna. Land tæki­fær­anna færði skatt­byrði af hæstu tekju­hóp­unum til milli- og lág­tekju­hópa,“ segir Sanna og bætir við:

„Fyrir 30 árum greiddi mann­eskja á lág­marks­launum ekk­ert í skatt en greiðir nú rúmar 55 þús­und krónur. Á meðan skatt­byrði hinna tekju­hæstu lækkar eftir því sem tekjur aukast, tekur land tæki­fær­anna skatta af öryrkjum sem er gert að lifa af tekjum sem duga ekki. Sem dæmi greið­ast tæpar 25 þús­und krónur í skatt af lægstu örorku­bótum.“

Hún segir að land tæki­fær­anna gefi „rík­asta fólk­inu brauð, bak­arí og nóg af hveiti en brauð­mol­arnir skila sér ekki til öryrkja sem margir þurfa að treysta á mat­ar­út­hlut­anir hjálp­ar­sam­taka. Í sam­fé­lag­inu sem við búum við í dag mega öryrkjar ekki fá tekjur sem duga út mán­uð­inn, mega ekki vinna án skerð­inga og fá ekki greitt fyrir hluta­starf sem þeir missa. Til þess þarf við­kom­andi að hafa verið í að lág­marki 25% starfs­hlut­falli. Þrátt fyrir að sama hlut­fall af launum öryrkja og alls ann­ars starfs­fólks, fari í Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð, eiga öryrkjar ekki rétt á að fá áður­nefndan atvinnu­missi bættan hjá Vinnu­mála­stofnun.“

Og bætir við:

„Skerð­ingar mæta öryrkjum sem afla sér ein­hverra tekna og þeim öryrkjum sem leyfa börnum sínum eldri en 18 ára með inn­komu að búa hjá sér. Við búum í sam­fé­lagi sem er gegn­sýrt af ein­stak­lings­hyggju, þar sem réttur til félags­legs stuðn­ings, líkt og hús­næð­is­stuðn­ings, fellur niður um leið og ákveðnu tekju­þaki er náð. Ekkert til­lit er tekið til aðstæðna eða þarfa fjöl­skyld­unnar.

Völ­und­ar­hús er það sem ég upp­lifi við að reyna að skilja það reglu­verk sem rétt­indi, eða frekar rétt­inda­leysi öryrkja byggja á. Augljóst er að kerfið er svo sann­ar­lega ekki hannað til að auð­velda fólki fyrir. Mán­að­ar­legar greiðslur vegna örorku eru settar saman úr fleiri en einum lið og margir þættir hafa áhrif á end­an­legar tekjur, líkt og mögu­leg rétt­indi úr líf­eyr­is­sjóði. Nið­ur­staðan er samt sem áður ávallt sú sama: Öryrkjum er gert að lifa við skerta efna­hags­lega stöðu.“

Hún segir síðan að „inn­heimtu­fyr­ir­tæki fá síðan tæki­færi til að græða á þeim sem ekki geta greitt reikn­inga sína, þar eru öryrkjar hópur í sam­fé­lag­inu sem er sífellt refsað fyrir að eiga ekki pen­ing. Sé litið til Reykja­vík­ur­borgar má sjá að ef leigj­andi hjá Félags­bú­stöðum, fyr­ir­tækis sem sér um rekstur félags­legs hús­næðis getur ekki greitt leig­una, þá fer hún í inn­heimtu til Motus. Slíkt leiðir til versn­andi láns­hæf­is­mats hjá Creditinfo, sem svo leiðir af sér að ekki er hægt að fá fyr­ir­fram­greiðslu hjá banka. Þrátt fyrir þetta telj­ast öryrkjar oft of tekju­háir til að fá lán hjá félags­þjón­ust­unni og aðstoð til að greiða skuldir og er gert að reiða sig á fjöl­skyldu og/eða mat­ar­stofn­anir.“

Sanna segir að „skað­legar afleið­ingar nýfrjáls­hyggj­unnar á stjórn­kerfi og sam­fé­lag, birt­ast okkur víða. Ein­stak­ling­ur­inn er gerður ábyrgur fyrir and­streymi í lífi sínu og þar með er ekk­ert til­lit tekið til und­ir­liggj­andi sam­fé­lags­legra þátta sem skapa ójöfnuð og víta­hring fátæktar. Rann­sóknir hafa sýnt fram á hversu skað­legt það er á heilsu þegar ein­stak­lingar upp­lifa að ábyrgðin sé öll þeirra vegna skulda­stöðu þar sem hug­myndir um skömm og mis­bresti eru algengar til­finn­ingar.

Inn­heimtu­að­gerðir með til­heyr­andi kostn­aði er ekki leiðin til að vinna gegn skulda­vanda. Að refsa fólki fyrir aðstæður sem það kom sér ekki í, er ekki leiðin til að vinna gegn órétt­læti og ójöfn­uði. Sós­í­alistar vilja byggja hag­kerfið upp af kær­leik og hverfa frá því að auður hinna ríku vaxi á byrðum hinna fátæku. Byggjum upp kær­leiks­hag­kerfi þar sem fólki er ekki haldið við afkomu­ótta og gert ókleift að nýta hæfi­leika sína og sköp­un­ar­kraft til að bæta líf sitt og sam­fé­lag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina