Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Læknar hlógu að Agnesi sem missti legið: ,,Versta sumar sem ég hef nokkurn tímann upplifað“

Læknar hlógu að Agnesi sem missti legið: ,,Versta sumar sem ég hef nokkurn tímann upplifað“

Agnes Bark­ar­dóttir, 39 ára móðir og eig­in­kona, vissi að það var eitt­hvað mikið að, en lækn­arnir vildu ekki hlusta og hlógu að henni. Hún lifði í ótta svo árum skipti, sem leiddi til hræði­legra afleið­inga, en þessi slugsa­háttur varð til þess að hún missti legið.

Agnes, vissi að það var eitt­hvað meira að, en hún greind­ist með frumu­breyt­ingar fyrst árið 2011 og svo aftur árið 2016. Hún furðar sig á því að hafa ekki verið send í aukið eft­ir­lit strax, en henni var tjáð að koma í eft­ir­lit á 3ja ára fresti.

Agnes er með víð­tæka menntun á sviði verk­fræði & stjórn­unar og er alþjóð­lega vott­aður Mark­þjálfi. Hún skilur ekki hvernig heil­brigð­is­kerfið gat brugð­ist henni svona illa.

Mál hennar hefur haft langan aðdrag­anda og mun lengri, en hún hefur opnað sig um með áður:

,,Fyrir þó nokkru síðan, bað ég um leg­nám, vegna þess að ég vissi að það væri eitt­hvað, ekki eins og það ætti að vera. Ég er með horm­óna­tengt mígreni, sem ég veit að teng­ist í móð­ur­líf­inu og hef þar af leið­andi tekið horm­ónapillu síð­ustu 7 ár, til að minnka haus­verki. Mér leið aldrei vel og var farin að þróa hræði­lega verki á þessu svæði, sem höfðu áhrif á allt líf mitt”.

Agnes tjáði okkur að í hvert sinn sem hún fór til kven­sjúk­dóma­læknis hafi hún ekki fengið fag­mann­leg við­brögð við hennar vanda­máli.  Hún segir að það hafi verið flissað og hlegið af sér þegar hún minnt­ist á það hvort að leg­nám gæti mögu­lega verið eina leið hennar út úr þessu kvölum. Svörin sem hún fékk voru iðu­lega þau sömu „við tökum ekki heil­brigð líf­færi bara að gamni okkar“.

Henni leið alltaf hálf skringi­lega eftir þessar heim­sóknir til kven­sjúk­dóma­lækn­is­ins, en var ekki almenni­lega viss af hverju. ,,Var ég að biðja um eitt­hvað óger­legt, hugs­aði hún með sér”. Eftir mikla sjálfs­vinnu átt­aði hún sig á því að van­líðan hennar staf­aði af því að ekki var almenni­lega hlustað á hana:

,,Ég var að tjá lækn­inum frá mínum óskum, þó ekki væri nema til að skoða aðeins nánar, en ég mætti engum skiln­ingi, í stað þess var hlegið að mér”.

Í byrjun júlí 2020, eftir miklar rann­sóknir á melt­ingu og ristli, ákvað Agnes að fara í krabba­meins­próf hjá kven­sjúk­dóma­lækni sínum, Henni var sagt að hún myndi fá til­kynn­ingu um nið­ur­stöðu á island.is. Agnes beið eftir nið­ur­stöðum í 6 mán­uði og um miðjan des­em­ber 2020 fékk hún loks­ins að vita að hún ætti að koma í skoðun strax vegna óæski­legra frumu­breyt­inga. Hún fékk tíma fljót­lega eftir ára­mótin í jan­úar 2021, en þá hófst annar stressandi bið­tími.

,,Það var svo á afmæl­is­dag manns­ins míns 26.apríl, að kvöldi til, sem ég fékk sím­hring­ingu frá lækn­inum mínum. Þá var hann að athuga hvort ég hefði ekki fengið upp­lýs­ingar um nið­ur­stöð­una. Hann varð virki­lega reiður þegar hann heyrði að ég hefði ekki ennþá fengið skila­boð með nið­ur­stöð­unum”.

Við tók annar langur bið­tími þar sem að Agnes beið eftir að kom­ast að í leg­háls­speglun. 10 dögum síðar fékk hún sím­tal þar sem henni var tjáð að það hefðu fund­ist kröft­ugar 3.-4.stigs frumu­breyt­ingar og hún þyrfti að fara í keilu­skurð sem fyrst. Agnes segir að henni hafi fund­ist sem lækn­ir­inn hafi ekki gefið sér nægan tíma til að svara spurn­ingum hennar og hún hafi farið inn í helg­ina mjög áhyggju­full

Loks var keilu­skurð­ur­inn fram­kvæmdur 11.júní 2021. ,,Allt í einu var allt að ger­ast frekar hratt miðað við það sem ég hafði upp­lifað af heil­brigð­is­kerf­inu áður, það hræddi mig líka”

Fljót­lega eftir keilu­skurð­inn fékk Agnes sím­hring­ingu frá lækn­inum. Hún fær þær upp­lýs­ingar að hún hafi greinst með 4. stigs frumu­breyt­ingar og þurfi að fara í leg­nám, strax. Lækn­ir­inn var mjög indæll og gaf sér góð­ann tíma til að ræða við Agnesi. Hann gat hins vegar ekki gefið henni nán­ari upp­lýs­ingar um fram­haldið, því hann vissi það ekki. Sjórn­sýsla heil­brigð­is­kerf­is­ins virð­ist svo flókin og sein­leg.

Lækn­ir­inn sagði það ekki galið að afla sér auknar upp­lýs­ingar um þessa gerð frumu­breyt­inga í leit­ar­vél google.

,,Ég fór auð­vitað rak­leiðis í það og fékk þá útskýr­ingu á öllum þeim verkjum sem ég hafði verið með mjög lengi. Ég greindi mig sjálfa og við tók versta sumar sem ég hef nokkurn tíman upp­lifað”.

,,Óttinn að vita af ein­hverju óæski­legu grass­er­andi inni í mér og að vera ekki með neitt plan. Ég vissi ekk­ert, er ég virki­lega með krabba­mein eða er ég kannski bara móð­ur­sjúk? Sumarið mitt fór í það að vera ofsa­lega kvíðin, mig lang­aði ekki að missa hárið mitt, hvað með börnin mín og mann­inn minn? Hvað með for­eldra mína og systur, mig lang­aði ekki að leggja meira á þau. Já, þessi tími var hræði­legur, hreint út sagt”.

Til þess að dreifa hug­anum á meðan að bið­inni stóð skrif­aði Agnes um reynslu sína á heima­síðu sem hún heldur úti ásamt vin­konu sinni Mín Leið Upp www.minleidupp.is.

,,Við­brögðin voru ótrú­leg, en það sem mér þótti ótrú­leg­ast við þetta allt saman var að ég fékk sím­tal frá lækni á Land­spít­al­anum. Hún hafði séð færsl­una mína. Hún sagði svo margt í sam­tal­inu sem ég náði ekki að bregð­ast við, því ég var svo hissa. Meðal ann­ars reyndi hún að róa mig, með því að segja mér að ég ætti tíma í aðgerð og að ég væri í for­gangi. En hún gat ekki sagt mér hvenær aðgerðin yrði fram­kvæmd, því rit­ar­inn væri í sum­ar­fríi. Án þess að fara nánar út í það sím­tal, þá leið mér ekki vel eftir það. Þegar það sinkaði inn og ég ræddi við fólkið mitt um þetta sím­tal, þá gat ég ekki annað hugsað en að það væri verið að reyna að þagga niður í mér” segir Agnes.

16. ágúst síð­ast­lið­inn fékk Agnes loks­ins við­tal við lækni á Land­spít­al­anum. Lækn­ir­innn fór í gegnum það sem var í vændum, nema ekki var hægt að gefa henni upp nákvæman tíma hvenær aðgerðin yrði fram­kvæmd. Talað var um að hún kæm­ist að í aðgerð­ina um 25. ágúst síð­ast­lið­inn, en það var ítrekað við hana að aðgerð­inni gæti mögu­lega verið frestað og að hún þyrfti að vera und­ir­búin fyrir það, vegna mik­illar óvissu á spít­al­anum útaf covid-19.

Enn og aftur tóku við 10 dagar, þar sem að hún þurfti að bíða eftir svari, upp­full að kvíða og van­líðan. 25. ágúst síð­ast­lið­inn kom svo að því að Agnes fór í aðgerð­ina, þar sem að legið var fjar­lægt. Hún kvartar yfir því að hafa ein­ungis fengið að dvelja á kvenna­deild­inni í 2 daga.

Lækn­ir­inn hafi viljað hafa hana lengur inn á spít­al­anum: ,,en hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn á vakt­inni henti mér út og ætl­aði að senda mig á sjúkra­hót­elið. Ég fór frekar heim heldur en að taka pláss þar, frá ein­hverjum sem hafði meiri þörf á því plássi. Þegar upp var staðið var mikið betra að vera heima” segir Agnes.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina