Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Einar margbraut á sér bakið en kennir nú óhefðbundna líkamsrækt – Fjölbreytnin yfirstígur verkina

Einar margbraut á sér bakið en kennir nú óhefðbundna líkamsrækt – Fjölbreytnin yfirstígur verkina
Dukagjin Idrizi tók mynd

,,Frelsi í eigin lík­ama’’  lýsir til­finn­ing­unni og líð­an­inni best eftir æfingar hjá Primal Iceland.

For­sprakkar Primal Iceland segja í sam­tali við Mannlíf að stöðin þeirra hafi vakið mikla athygli síð­ustu miss­eri fyrir nýstár­lega nálgun þegar kemur að hreyf­ingu.

Primal varð til árið 2017 þegar Einar Carl Axelsson og Helgi Freyr Rún­ars­son leiddu saman hesta sína í Movement Improvem­ent nám­skeið­unum. Í dag heita þessir tímar Primal Movement og er eitt helsta lík­ams­rækt­ar­form hjá Primal Iceland.

Upphafið af þeirra „lík­ams­rækt­ar­ferða­lagi“ byrj­aði eftir að Einar, eig­andi og stofn­andi Primal lenti í alvar­legu slysi. Hann marg­braut á sér bakið í snjó­brettaslysi og rambaði á þessi fræði í leit að lausnum eftir að aðrar leiðir höfðu ekki reynst vel. Einnig hafði Helgi með­eig­andi marg­slitið vöðva í og í kringum nára á yngri árum og hafði gefið frek­ari hreyf­ingu upp á bát­inn. Í leit að lausnum upp­götv­aði hann hinar ýmsu hreyfilistir og fann að fjöl­breyttnin hjálp­aði honum að yfir­stíga þá verki og skort á hreyfi­getu sem meiðslin höfðu valdið honum.

Movement tím­arnir eiga fyr­ir­mynd erlendis í því sem kall­ast ,,Movement Culture’’ og kemur frá Ísraela að nafni Ido Portal. Hug­myndin þar er að sjóða saman hinar mis­mun­andi hreyfilistir og kerfi til þess að búa til heil­steypta tíma sem upp­fylla hreyfi­þarfir manns­lík­am­ans.

,,Þar sem að við höfum sett okkar eigin bragð á það sem við bjóðum upp á, þá er okkar sam­setn­ing lík­leg­ast ein­stök í heim­inum“.

,,Við sækjum þó inn­blástur frá vissu fólki og hafa kerfi á borð við Strong­Fit, Functional Range Systems og Modern Methods of Mobility átt þar stórt hlut­verk“.

Dukagjin Idrizi tók mynd

Frábær viðbrögð

Við­brögðin hafa ekki látið á sér standa og tjáði einn af mörgun iðk­endum Primal frá sinni reynslu.  Þor­steinn Ingi Valdi­mar­son sagði blaða­manni Mannlífs að hann hafi upp­haf­lega farið að stunda hreyf­ingu hjá Primal til að vinna bug á langvar­andi bak­verkjum, ,,en það sem ég hef fengið til við­bótar er svo miklu meira. Movement tím­arnir hafa veitt mér mun betri líðan, auk­inn styrk og lið­leika sem mig dreymdi aldrei um að ná. Ég get með góðri sam­visku sagt að ég hef ekki áður stundað hreyf­ingu sem gefur mér svona mikið, bæði and­lega og lík­am­lega. Ég hlakka til að mæta á hverja æfingu, þar sem eng­inn tími er eins, eng­inn er að keppa við annan en sjálfan sig og lagt er upp með að iðk­endur geri æfingar með réttum hætti. Það sem ein­kennir Primal er árangur, jákvæðni og gleði – það er ekki hægt að biðja um meira.’’

Einar talar einnig um að fólk komi alls staðar að í tíma í Primal og eru hóp­tím­arnir bland­aðir af afreks­fólki í íþróttum og skrif­stofu­fólki, sem fram­kvæma sömu æfingar. Öllum æfingum er svo hægt að skala upp og niður til þess að þær henti öllum, en við kennum fólki að nota eigin lík­ama til þess að stýra erf­ið­leika­stigi æfinga.

Allir þjálf­arar Primal hafa farið í gegnum þær æfingar og kerfi sem unnið er með í tímunum og hafa allir upp­lifað mikla lífs­gæða­aukn­ingu með iðkun sinni.

Hvort sem að það sé betri svefn, auk­inn lið­leiki og styrkur þá finnst þeim ein­kunn­ar­orð Primal vera ,,Frelsi í eigin lík­ama’’  lýsa til­finn­ing­unni og líðan best.

Með því að iðka þessa hreyf­ingu og stunda hana reglu­lega getur það þýtt mikla lífs­kjara­breyt­ingu til hins betra, eins og; betri afköst í íþróttum, meiri vellíðan í dag­legu lífi eða að eiga auð­veldar með að leika við börnin sín.

Dukagjin Idrizi tók mynd

Iðkendur finna fyrir gífurlega miklum framförum

Við­brögðin við nám­skeið­unum hafa ekki látið á sér standa og þeir sem iðka þau sam­visku­sam­lega finna fyrir gíf­ur­lega miklum fram­förum. Hvort sem það er á lík­am­lega eða and­lega svið­inu. Ef ekki bara báðum, segir Einar.

,,Fyrir lang­flest fólk er þessi hreyf­ing algjör­lega ný og því getur verið erfitt að aðlaga sig, úr því að vera mjög lélegur í að vera góð í öllu sem við gerum. Enda snú­ast æfing­arnar ekki ein­ungis um styrk eða lið­leika, heldur er sam­hæf­ing, jafn­vægi og leik­gleði allt partur af æfing­unum líka“.

Markmið Primal er að bæta fólk á öllum sviðum og því er ekk­ert gefið eftir í að setja fólk í krefj­andi aðstæður.

Eitt af höfuð mark­miðum og gildum Primal Movement tím­anna er að stuðla að fjöl­breyttri hreyf­ingu og frelsi í eigin lík­ama. Manns­lík­am­inn hefur mikla hreyfi­þörf, ekki bara eftir magni heldur líka fjöl­breyti­leika.

Tímarnir hjá Primar eru marg­breyti­legir, ekki bara í æfinga­vali heldur líka hvaðan æfing­arnar koma.

,,Einn dag­inn gætir þú verið í hefð­bund­inni styrkt­ar­þjálfun með eigin lík­ams­þyngd og þann næsta að læra hreyfiflæði í bland við nútíma­dans“.

Stöðin hefur stækkað mikið á síðustu árum

Movement tím­arnir hófu göngu sína árið 2015,  en fram að þessu, voru þjálf­arar Primal ein­ungis búnir að vinna inn á öðrum stöðvum eða í of litlu hús­næði.

Primal Iceland varð svo til sem umhverfi fyrir þá tíma, sem og aðra tíma og nám­skeið sem að Einar og Helgi höfðu verið búnir að halda.

Í dag hefur stöðin svo stækkað og er nú boðið upp á mjög fjöl­breytta dag­skrá í formi hóp­tíma, lok­aðra nám­skeiða og einka­tíma.

Þjálf­ar­arnir okkar eru mennt­aðir af marg­vís­legum toga, allt frá sál­fræði, íþótta- og heilsu­fræði, sjúkra­þjálfun, lífs­ráð­gjöf og mark­þjálfun. Óhefð­bundn­asta menntun þjálf­ara í Primal mun þó lík­leg­ast vera dokt­ors­gráða í eðl­is­fræði.

Bak­grunnur þjálf­ar­anna er að sama skapi fjöl­breyttur. Þeir hafa meðal ann­ars þjálfun í list­dans, parkour, bolta- og bar­daga­í­þróttum og leik­list­ar­bak­grunn. Öll þessi þjálfun og þekk­ing kemur sér vel innan veggja Primal.

Movement sam­anstendur af hinum ýmsu hreyfilistum og því sækj­ast þjálf­arar hjá okkur iðu­lega í þau nám­skeið og þá menntun sem að þeim finnst passa inn í hug­mynda­fræði Primal.

Primal Iceland stendur, þar að auki fyrir sér­stöku námi fyrir þjálf­ara sína í þeirri hug­mynda­fræði til þess að auka og sam­ræma þekk­ingu.

Þau hjá Primal hafa einnig verið dug­leg að sækja nám­skeið erlendis og bjóða erlendum gesta­kenn­urum til Íslands með nám­skeið bæði fyrir þjálf­ara og iðk­endur. Þessi nám­skeið eru sér­hæfð sbr. lið­leika- eða styrkt­ar­þjálfun, nútíma­dans eða sirku­slistir.

Fyrir þá sem hafa leitt hug­ann að hreyf­ingu og hafa áhuga á Primal, segja þeir: ,,að best sé að hafa sam­band við Primal og sjá hvað hentar best. Við fáum mikið af fólki til okkar sem hefur ekki hreyft sig í ein­hvern tíma og þá er mik­il­vægt að fyrstu skrefin séu tekin á réttum stað. Ef að ein­hver stoð­kerf­is­vanda­mál eru til staðar, þá mælum við alltaf með einka­tíma fyrst til þess að taka stöð­una“.

,,Ef að við­kom­andi hefur ágætis reynslu af hreyf­ingu, þá mælum við þó bara með að prófa Movement tím­ana og taka þátt“.

,,Við höfum unnið með alla ald­urs­hópa úr öllum stigum sam­fé­lags­ins.

Allt frá 5 ára upp í u.þ.b. 90 ára. Áhuga­fólk, atvinnu- og afrek­s­í­þrótta­fólk og fólk sem vill eiga auð­veldar með að leika við börn eða barna­börn“.

Dukagjin Idrizi tók mynd

Næst á döfinni

Movement tím­arnir eru alltaf í gangi en sam­hliða því bjóðum við upp á margs­konar nám­skeið og tíma.

Þar má nefna streitu­stjórn­unar nám­skeiðið Sigrum Streit­una, hand­stöðu­nám­skeið og sér­hæfða styrktar-lið­leika­tíma að nafni Kinstretch.

Við erum alltaf með nóg af járnum í eld­inum og með haustinu eru mörg ný nám­skeið að fara af stað hjá okkur frá nokkrum af okkar kenn­urum. Þar má nefna nám­skeiðin:

  • Kröft­ugar Konur: Námskeið fyrir konur sem vilja auka sjálfs­traustið, losna við slen og kvíða og finna kraft­inn sem býr innra með þeim.
  • Stirðir Strákar: Markmið nám­skeiðs­ins er að auka hreyf­an­leika eða mobility með því að vinna með styrk og lið­leika í bland.
  • Primal Yoga: Yoga nám­skeið með Primal ívafi.
  • YouAre Primal: Öndunar og kulda­þjálfun ásamt æfingum fyrir tauga­kerfið.

Primal býður einnig upp á einka­tíma þar sem kemur mjög skýrt fram að bæði streita sem og skert hreyfi­geta og styrkur í mik­il­vægum hreyfi­ferlum lík­am­ans hafa mikil áhrif á lífs­gæði fólks. Primal notar því aðferðir til þess að hjálpa fólki að vinna úr þeim kvillum sem fylgja því.

Dukagjin Idrizi tók mynd

Lestu allt um málið og meira til í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs hér eða flettu blað­inu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una