Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þórði sveið innkaupaferðin í Bónus: „Þetta myndi fara niður í 6000 ef við værum í ESB“

Þórður Óldal vekur athygli á því sem honum þykir ansi hár reikn­ingur fyrir lítið af vörum í „ódýr­ustu búð lands­ins“, eins og hann segir sjálfur, í Facebookhópnum Vertu á verði – eft­ir­lit með verð­lagi. Á hann þar við versl­un­ina Bónus.

„Ekkert kjöt, eng­inn fiskur, engin heit mál­tíð,“ segir hann gramur.

Hann lætur kvittun fylgja með og er heild­ar­verðið 9.976 krónur. Í inn­kaupa­körf­unni má finna sitt lítið af hverju: mjólk­ur­vörur, brauð­meti, græn­meti, kjöt­á­legg, kaffi, sæt­indi, gos, safa og fleira þess konar, en vissu­lega enga heita mál­tíð.

Enga mál­tíð var að finna í pok­unum hjá Þórði.

Neyt­endur sem skrifa athuga­semdir undir færsl­una eru almennt sam­mála um að verðið sé of hátt og að það hafi hækkað tölu­vert. Sumir vilja tengja málið við stjórn­mál og kom­andi kosn­ingar.

„Sýnum í verki að við viljum ekki sætta okkur við þetta lengur gott fólk,“ segir Hildur og tengir verð­lagið við ráð­andi öfl í land­inu.

„Þetta myndi fara niður í 6000 ef við værum í ESB,“ full­yrðir Valur.

Júlíus segir: „Eftir að kjara­ráðið hækk­aði þing­manna­kaupið um 45% og það aft­ur­virkt um 10 mán­uði, hafa lífs­kjör lág­launa­fólks­ins farið síversn­andi, og voru slæm fyrir. Mikið af þeim vörum sem keyptar voru fyrir ekki svo löngu síðan, hafa hækkað upp úr öllu hófi, og alþing­is­menn og ráð­herrar og aðrir hátekju­hópar eru alveg sama, því hækkun þeirra á laun sín er fyrir utan allar vísi­tölur og guð má vita hvað.“

Sumir benda á að eitt og annað í körf­unni mætti missa sín. Einn nefnir að hátt í 10% af verði körf­unnar sé kók í dós. Út frá því spinn­ast umræður um verð á græn­met­is­fæði – en Þórarinn segir: „Það er lúm­skt hvað hægt er að fá góða nær­ingu fyrir lít­inn pen­ing í því.“

Samkvæmt nýj­ustu verð­könnun ASÍ á mat­vöru og hrein­lætis- og snyrti­vöru frá 8. sept­em­ber, er Bónus oft­ast með lægsta verðið, eða í 94 til­vikum. Krónan var næst oft­ast með lægsta verðið, tólf sinnum. Versl­unin Iceland var oft­ast með hæsta verð­lagið, í 44 til­vikum, en Hagkaup var með næst hæsta verðið, eða í 39 til­vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina