Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Baldur Freyr Einarsson upplifði hrikalega barnæsku og varð manni að bana: „Syntu, hundurinn þinn“

Baldur Freyr Einarsson upplifði hrikalega barnæsku og varð manni að bana: „Syntu, hundurinn þinn“

Baldur Freyr Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Lausn­ar­innar, fjöl­skyldu- og áfalla­mið­stöðvar, segir í hlað­varp­inu Mann­líf­inu með Reyni Trausta­syni frá erf­iðri æsku sinni, sjálfs­morð­stil­raunum, neysl­unni, lík­ams­árásinni árið 2002 sem leiddi 22 ára gamlan mann, Magnús Frey Svein­björns­son til dauða, trú­ar­legu upp­lifun­inni og beinu braut­inni sem hann fann.

„Ég missti litlu systur mína þegar ég var búinn að vera edrú í þrjú ár. Hún var í partíi uppi í Árbæ og var gefin ein­hver pilla sem var eitruð og dó í partí­inu. Strák­ur­inn sem gaf henni pill­una fékk síðar dóm,“ segir Baldur Freyr um þann harm sem hann glímdi við þegar systir hans lést vof­veif­lega. Maðurinn var dæmdur fyrir að koma deyj­andi stúlkunni ekki til hjálpar og taka af henni mynd­band, nak­inni og deyj­andi.

Hann segir að gömlu vinir sínir hafi spurt sig hvort þeir ættu ekki að sjá um þennan gaur fyrir hann sem og að þeir hafi sagt að eng­inn hafi átt að koma svona fram við systur hans. „Ég var alveg möl­brot­inn yfir að hún skyldi hafa dáið. Hún var í lands­lið­inu í fót­bolta og var hetjan eða vonin í fjöl­skyld­unni okkar. Ég breytti vænd­is­hús­inu sem ég var með í áfanga­heim­ili og fór að taka menn inn af göt­unni og var búinn að berj­ast við þetta myrkur í allan þennan tíma og svo liggur litla systir mín í valnum. Ég sat þarna og var svo ringlaður og ég vissi ekki hvað sneri upp eða niður. Vinur minn sagði mér að kinka kolli,“ segir Baldur og þannig átti hann að sam­þykkja að hann vildi að ráð­ist yrði á þann sem lét systur hans hafa lyfið. Og hann kink­aði kolli.

„Morg­un­inn eftir var ég úti að hlaupa og þá leið mér eins og litla systir mín væri að hlaupa með mér. Ég sá hana ekk­ert; bara til­finn­ing sem ég fékk. Ég fann að tárin byrj­uðu að mynd­ast í aug­unum á mér og svo heyrði ég rödd hennar í huga mér segja: Hvernig viltu muna eftir mér? Þá brotn­aði ég niður og hringdi strax í þennan vin minn og sagði „ekki gera neitt“.“

Baldur segir að ef ráð­ist hefði verið á mann­inn þá myndi hann alltaf tengja það við systur sína. „Ég veit ekki hvort ég sæti hérna í dag ef ég hefði sagt já við þessu af því að eitt leiðir af öðru.“

Baldur heim­sótti síðan umræddan mann, sem lét systur hans hafa lyfið, í fang­elsi og fyr­ir­gaf honum. „Ég tók utan um hann og sagði að hann væri alltaf vel­kom­inn til okkar og að faðmur okkar væri útréttur fyrir hann. Og ég meinti það,“ segir Baldur og á þarna við Lausnina, fjöl­skyldu- og áfalla­mið­stöð, þar sem hann er fram­kvæmda­stjóri.

Hún var í lands­lið­inu í fót­bolta og var hetjan eða vonin í fjöl­skyld­unni okkar.

Syntu, hundurinn þinn

Baldur Freyr Ein­ars­son ólst upp í Keflavík og var óregla á heim­il­inu sem og ofbeldi sem teng­ist sam­býl­is­manni móður hans um tíma. Baldur segir að þau hafi flutt um 13 sinnum á meðan á um fimm ára sam­bandi móður hans og manns­ins stóð.

„Það var ofboðs­lega erfitt að búa við þetta af því að maður vissi aldrei raun­veru­lega hverju maður átti von á. Það sem kannski fór með mann í þessu upp­eldi var að þegar hann var þarna þá var maður alltaf ein­hvern veg­inn „hvað ger­ist næst?“. Einn dag­inn henti mað­ur­inn Baldri út í sund­laug og sagði „syntu, hund­ur­inn þinn“. „Maður barð­ist fyrir lífi sínu að kom­ast í land. Mér leið eins og ég væri í óra­tíma í loft­inu en svo ein­hvern veg­inn varð hann svo stoltur af mér þegar ég kom í land.“

Maður barð­ist fyrir lífi sínu að kom­ast í land.

Baldur var sex ára þegar hann kynnt­ist blóð­föður sínum og segir að sam­band þeirra hafi ekki verið mikið eftir það. „Ég hitti hann á sumrin og fékk jóla­gjafir og páska­egg. Svo bjó ég hjá þeim í nokkra mán­uði þegar vand­ræðin voru ekki lengur út af því að við vorum að flytja heldur meira af því að maður var kom­inn með hegð­un­ar­vanda.“

Hann talar um mikið óör­yggi á þessum árum og að sér hafi alltaf liðið eins og hann væri ekki nógu góður. Honum fannst eins og hann væri svarti sauð­ur­inn og honum leið eins og hann pass­aði ekki inn. Var lagður í ein­elti. Hann fór sjálfur að beita ofbeldi í skól­anum til þess að sporna gegn því þegar hann var um 12 ára.

Það var mikil reiði í honum. Rosalega mikil reiði. Hann segir að það hafi fyrst og fremst verið vegna ofbeld­is­ins sem hann var beittur, bæði af hálfu sam­býl­is­manns móður hans sem og mis­notkun af hálfu ann­ars manns, en hann þorði ekki að segja frá því fyrr en mörgum árum seinna sem og ein­elt­inu í skól­anum.

Systkini hans voru tekin af heim­il­inu vegna neyslu þar þegar hann var átta eða níu ára en hann bjó þar áfram af því að hann vildi vera hjá móður sinni. „Maður átt­aði sig ekki alveg á því að það hafi ekki verið gripið inn í af því að auð­vitað var mamma fórn­ar­lamb inni í þessum aðstæðum. Svo er það þessi bless­aða með­virkni hjá öllum. Það var verið að taka mig og passa mig og svo var mér aftur skilað til mömmu þegar hún fannst og kom aftur. Fólk heldur oft að það sé að hjálpa en í raun­inni er það að við­halda vand­anum.“

Byrjaði ungur í neyslu

Baldur byrj­aði ungur í neyslu og þá bjó hann í Reykja­vík. „Ég byrj­aði að drekka 11 eða 12 ára. Ég byrj­aði að sniffa og ég var með rosa­lega mikla sjálfs­skaða­hegðun. Ég var að brenna mig og skera mig; brenna mig með sígar­ettum og skera mig og laug að öllum að ég væri til­finn­inga­laus í hend­inni. Það var eins og maður kæm­ist út úr ein­hverjum sárs­auka með því að gera það. Þegar ég not­aði hug­breyt­andi efni og var að sniffa gas eða tippex þá var ég ekki beint háður vímunni heldur var ég háður því að losna við þennan króníska maga­verk sem ég var búinn að vera með síðan ég var barn.“ Hann segir að auð­vitað hafi þetta verið vegna kvíða. „Og þegar ég not­aði þá hvarf þessi kvíða­hnútur. Ég varð miklu meira háður því heldur en nokkurn tím­ann efn­unum eða hvaða efni það var af því að það raun­veru­lega skipti engu máli. Þá byrj­aði ég að gera þetta eins oft og ég gat. Svo leiddi eitt af öðru. Ég hef alltaf verið snið­ugur að redda mér og það hefur kannski bjargað mér í gegnum tíð­ina.“

Ég byrj­aði að sniffa og ég var með rosa­lega mikla sjálfs­skaða­hegðun.

Hann seg­ist hafa verið dug­legur að stela og falsa ávís­anir. „Þegar ég var 10-11 ára þá var ég kom­inn í það að vera að stela úr vösum á æfingum og stela söfn­unu­ar­baukum til þess að geta keypt mér nammi.“

Tveir 14 ára strákar hurfu spor­laust í jan­úar árið 1994 og hefur ekk­ert spurst til þeirra síðan en síð­ast sást til þeirra í verslun í Keflavík. Annar þeirra var frændi og vinur Baldurs. Hann segir hann hafa verið upp­eld­is­bróður sinn. „Maður horfði upp til pabba hans og fannst hann vera svo góður og hann var til staðar fyrir hann. Kannski lang­aði mann innst inni að vera partur af þeirri fjöl­skyldu. Við vorum mikið saman og ég húkk­aði mér mikið far þegar ég var 13-14 ára; þá vorum við flutt í bæinn og ég var mikið að húkka mér far til að hitta þá. Svo man ég þegar ég var vak­inn um miðja nótt af tveimur lög­reglu­mönnum sem sögðu „hvar eru strák­arnir?“. Ég var nývakn­aður og skildi ekk­ert hvað var að ger­ast. Þá héldu þeir að ég vissi hvar þeir væru og væru ein­hvers staðar að fela sig hjá ein­hverjum sem ég þekkti af því að við vorum mikið saman. Lög­reglan fór svo af því að ég vissi ekki neitt. Svo hófst þessi leit sem var ofboðs­lega erfið.“ Hann segir að mamma sín hafi tekið þátt í leit­inni en að hann hafi þurft að vera heima. „Ég var sár yfir því að fá ekki að taka þátt í þessu. Það var alltaf verið að minna mig á að ég sé einskis virði.“

Baldur er spurður hvað hann haldi að hafi gerst. „Við vorum alltaf að leika okkur niðri við klettana, sér­stak­lega í vondu veðri. Það fólst í því mikil spenna að láta öld­urnar berj­ast á klett­unum við hlið­ina á okkur. Ég hef alltaf haldið að annar hafi dottið og hinn hafi reynt að bjarga honum og báðir farið út í. Það er skrýtið að ekk­ert hafi fund­ist í sjónum. Þetta var hrika­legur harm­leikur og það sem er svo erfitt við þetta er að geta ekki hvatt. Venju­lega er kistu­lagn­ing og jarð­ar­för en þarna var ein­hverjum kippt út úr líf­inu og það eru engin svör.“

Baldur seg­ist hafa orðið mjög þung­lyndur eftir hvarf strák­anna. „Mér leið illa fyrir en eftir þetta fór ég að fanta­sera um dauð­ann. Mig lang­aði til að deyja. Ég reyndi alls konar aðferðir til að sofna og minn mesti draumur var að geta sofnað og vakna ekki aftur.“

Baldur segir hvarf strák­anna hafa verið mikið áfall og að þetta sé „rosa­lega blörrað tíma­bil“. „Í hvert skipti sem ég sá ein­hvern ljós­hærðan og síð­hærðan þá varð ég alltaf að hlaupa og kíkja framan í við­kom­andi.“

Mér leið illa fyrir en eftir þetta fór ég að fanta­sera um dauð­ann. Mig lang­aði til að deyja.
Baldur Freyr Ein­ars­son.

Hrotti

Baldur dróst sífellt meira inn í óreglu.

„Ég var að finna nýjar leiðir til þess að vera undir áhrifum. Ég fór að brjót­ast inn til að fjár­magna og spennu­fíknin var líka svo mikil. Ég þurfti alltaf ein­hvern veg­inn að lifa á jaðr­inum. Ég fann síðan að efnin hjálp­uðu mér. Ég var stöðugt að hugsa um að svipta mig lífi og vilja deyja en var alltaf með þessa grímu á lofti þegar ég hitti fólk.“ Hann segir að neyslan hafi verið mikil lausn af því að efnin slökktu á sárs­auk­anum innra með honum.

Hann flutti til Dan­merkur þegar hann var 17 ára og bjó þar um tíma; það var ákveðið að hann færi þangað til að reyna að laga ástandið. Hann segir að félags­skap­ur­inn hafi ekki verið vand­inn heldur hann sjálfur. „Ég var fljótur að koma mér í sams konar félags­skap þar en var þó að vinna. Það var alla­vega gott. Við vorum að smíða lík­kistur og eftir vinnu keyrði ég kist­urnar oft út með eig­and­anum.“ Hann lang­aði til að deyja á þessu tíma­bili og sá sig fyrir sér í kist­unum sem hann var að smíða. „Þegar ég ákvað að hengja mig þarna þá var ég búinn að velja mér kistu. Ég fann að það var kom­inn tími til þess að ég myndi fara. Mér fannst ég vera byrði á öllum og það væri best fyrir alla að ég færi. Það var hugs­unin. Ég skrif­aði bréf og svo hengdi ég mig í belt­inu mínu í bita og svo fann ég hvernig ég var að fjara út. Ég vakn­aði svo á gólf­inu og það var eins og ég hafi verið skor­inn niður en samt var eng­inn inni í her­berg­inu. Ég fór fram en það var eng­inn heima en ég hélt að ein­hver hefði skorið mig niður og farið fram af því að beltið var skorið. Ég sat á gólf­inu og það eina sem komst að var að ég gæti ekki einu sinni drepið mig.“ Hann hugs­aði með sér hví­líkur aum­ingi hann væri.

Þegar ég ákvað að hengja mig þarna þá var ég búinn að velja mér kistu.

Baldur fór til Íslands í sum­ar­frí. Einn dag­inn tók hann fullt af pillum og drakk hálfan lítra af landa og sofn­aði á gólf­inu. Ein frænka hans hringdi í aðra um miðja nótt með slæma til­finn­ingu að hans sögn og bað hana um að kíkja á hann og þá fann hún hann froðu­fellandi á gólf­inu og kom honum á sjúkra­hús þar sem var dælt upp úr honum. „Í fram­hald­inu sagði geð­læknir að ég yrði ann­að­hvort að fara inn á geð­deild eða í með­ferð.“ Hann valdi að fara í með­ferð. Ekki til að hætta í neyslu heldur til að friða fólk. Hann var þá 17 eða 18 ára. „Ég var búinn að gera margar sjálfs­vígstil­raunir en þær sem ég hafði gert þegar ég var yngri, svona 13-15 ára, voru ekki svona alvar­legar.

Hann var hald­inn dauða­hugs­unum.

„Alger­lega. Róm­an­tíkin er öll í dauð­anum.“

Hann leidd­ist út í enn harð­ari glæpi. Hann kynnt­ist nýju fólki og eitt leiddi af öðru. „Áður en ég vissi af var ég orð­inn harðsvír­aður glæpa­maður. Ofbeld­is­maður. Hrotti.“

Hann seg­ist samt alltaf hafa verið með ein­hverja rétt­læt­is­kennd en að sér hafi fund­ist allt vera leyfi­legt ef honum fannst ein­hver brjóta á sér. „Ég sá mig kannski ekk­ert sem þann mann af því að maður þurfti aldrei að taka ábyrgð á ofbeld­inu. Þetta var nán­ast eins og ein­hver tölvu­leikur. Maður fékk ekki teng­ing­una við þetta fyrr en þessi harm­leikur átti sér stað.“

Áður en ég vissi af var ég orð­inn harðsvír­aður glæða­maður. Ofbeld­is­maður. Hrotti.

Mannsbani

Í frétt í Morg­un­blað­inu 31. maí 2003 segir:

„Tveir karl­menn á þrí­tugs­aldri, Baldur Freyr Ein­ars­son og Gunnar Friðrik Frið­riks­son, voru dæmdir í gær í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur til fang­els­is­vistar fyrir stór­fellda lík­ams­árás í Hafn­ar­stræti 25. maí 2002, en hún leiddi rúm­lega tví­tugan mann, Magnús Frey Svein­björns­son, til dauða.

Baldur Freyr er dæmdur í þriggja ára fang­elsi og að auki fyrir tvær aðrar lík­ams­árásir umrætt kvöld. Er hann dæmdur til að greiða þeim sem fyrir árás­unum urðu skaða­bætur. Gunnar Friðrik er dæmdur í tveggja ára fang­elsi. Menn­irnir eru báðir dæmdir til að greiða for­eldrum hins látna um 2,4 millj­ónir í bætur. Ekki kom til álita að skil­orðs­binda refsi­vist mann­anna en frá refsi­vist þeirra dregst óslitið gæslu­varð­hald hvors um sig frá 26. maí 2002.

Menn­irnir neita báðir sök á dauða Magnúsar Freys en játa að hafa veist að honum umrætt kvöld.

Nið­ur­staða dóms­ins er m.a. studd lýs­ingu fjöl­margra vitna af árásinni sem átti sér stað fyrir framan skemmti­stað­inn Spotlight undir morgun laug­ar­dags­ins 25. maí 2002. Þá var einnig stuðst við mynd­bands­upp­töku úr eft­ir­lits­mynda­vél.

Baldur Freyr er dæmdur fyrir að hafa slegið Magnús Frey mörg hnefa­högg í höf­uðið, veitt honum högg með höfð­inu og sparkað í höfuð hans með hné og marg­sinnis sparkað af afli í höfuð manns­ins með hné og fæti eftir að hann féll í göt­una.

Gunnar Friðrik er dæmdur fyrir að hafa sparkað í efri hluta lík­ama Magnúsar Freys þegar hann reis upp eftir atlögu Baldurs Freys, svo að hann féll í göt­una á ný, allt með þeim afleið­ingum að Magnús Freyr hlaut höf­uð­kúpu­brot og blæð­ingu inn á heila og lést hinn 2. júní sl. af völdum heila­blæð­ingar og heila­bjúgs.

Vitni greinir á um hver aðdrag­andi slags­mál­anna var en það er mat dóms­ins að atlaga Baldurs Freys hafi nán­ast verið til­efn­is­laus og ekk­ert rétt­læti jafn hrotta­lega árás. Magnús Freyr hafi lengstum enga vörn sér veitt og styður vitn­is­burður þetta álit dóms­ins svo og mynd­bands­upp­takan.“

Árið er aftur 2021. Sept­em­ber 2021. Viðtalið við Reyni Trausta­son.

„Þetta voru slags­mál niðri í bæ sem end­uðu svona hrika­lega,“ segir Baldur. „Við þekkt­umst eitt­hvað en ég mundi samt ekk­ert eftir honum. Hann var frá Keflavík en ég mundi ekk­ert eftir honum þarna, kann­að­ist ekki einu sinni við hann. Það var rosa­legur harm­leikur. Maður sat í fanga­klef­anum í mörg ár.“

Þetta voru slags­mál niðri í bæ sem end­uðu svona hrika­lega.

Baldur heyrði morg­un­inn eftir slags­málin að ástand Magnúsar væri tví­sýnt. „Það var rosa­legt. Ég fór strax úr partí­inu sem ég var í og fór að hitta vini mína sem ég hafði verið mikið með og sagði þeim frá þessu. Þeir reyndu að stappa stál­inu í mig. Á end­anum bað ég tvo vini mína um að skutla mér til Kefla­víkur heim til pabba stráks­ins sem týnd­ist og ég man að ég grét alla leið­ina til Kefla­víkur. Ég þessi harði gaur, hand­rukk­ari, var bara þarna grát­andi yfir þessu af því að hafa verið að slást við ein­hvern niðri í bæ og hlut­irnir end­uðu svona. Þetta er hræði­legt. Ég man að þegar ég labb­aði til pabba pabba hans,“ segir Baldur og á við pabba frænda síns sem hvarf, „þá brotn­aði ég alger­lega niður. Ég sat svo í stof­unni og grét. Ég var kom­inn með texta­varpið á og horfði á frétt­ina og grét allan dag­inn. Ég var í algjöru áfalli.“

Baldur gaf sig fram á lög­reglu­stöð­inni í Keflavík. Hann fékk að lokum sex ára fang­els­is­dóm og afplán­aði fjögur ár.

Brotnir strákar

Hraunið. Litla-Hraun.

„Ég man þegar ég var að fara úr gæslu­varð­hald­inu; ég var í gæslu­varð­haldi í um 11 daga. Ég man að verð­irnir voru að segja að ég þyrfti að passa mig. Ég var kom­inn í víga­hug að passa mig. Ég hélt að þetta væri alger dýrag­aður. Svo kom ég þarna inn og þá sá ég bara að þetta voru brotnir strákar eins og ég. Maður hefur oft lesið fyr­ir­sagnir um eitt­hvað í blöð­unum um fang­elsi og svona en þó ég hafi verið á þessum stað í líf­inu þá ímynd­aði ég mér aldrei að ég yrði þessi fyr­ir­sögn í ein­hverju blaði. Þetta er svo fjar­lægt ein­hvern veg­inn. En þetta eru bara brotnir strákar eins og ég. Það sem er áhuga­vert í starf­inu mínu í dag hjá Lausn­inni, fjöl­skyldu- og áfalla­mið­stöð þar sem ég er fram­kvæmda­stjóri og vinn líka þar sem ráð­gjafi og mark­þjálfi og hef hjálpað þús­undum manna þessi 14 ár sem ég er búinn að vera að vinna með sjálfan mig og snúa lífi mínu við, er að ég hef ekki enn hitt mann­eskju sem ég hef tekið við­tal við sem ég hef ekki skilið efrir að ég heyri sögu við­kom­andi.“

Hann var í neyslu mestan tím­ann á Hrauninu. Og hann seg­ist hafa verið þar í glæpum; að selja fíkni­efni. Svo komst hann út. Var lát­inn laus. Frelsinu feg­inn.

„Það var nátt­úr­lega rosa mikið frelsi allt í einu en að sama skapi var ég ofboðs­lega las­inn eftir fang­els­is­vist­ina. En þarna var ég aðalgæinn ef svo má að orði kom­ast og allar hug­myndir sem ég fékk voru góðar og allt sem ég sagði var fyndið. Siðferði mitt fór rosa­lega hnign­andi í fang­els­is­vist­inni. Það var komin mikil skemmd í sið­ferðið af þess­ari fanga­vist sem fór rosa­lega illa með mig.“

Siðferði mitt fór rosa­lega hnign­andi í fang­els­is­vist­inni.

Hitti fjölskyldu Magnúsar heitins

Svo varð Baldur edrú árið 2007 og eign­að­ist trúna á Guð.

„Það sem ég upp­lifði strax í því var að ég þyrfti að taka ábyrgð á því sem ég gerði. Ég upp­lifði sterkt að ég þurfti að fyr­ir­gefa öðrum og ég fór í það að vinna með það og tala við fólk sem ég hef brotið á og ég geri mér alveg grein fyrir því að með ævi eins og minni þá er fólk þarna úti sem ég hef brotið á sem ég hef ekki beðið afsök­unar; ekki af því að ég vil það ekki heldur af því hrein­lega að ég man ekki eða vissi ekki hvað það hét. Ég hef hitt alla sem hafa viljað hitta mig og tekið ábyrgð á því sem ég gerði án þess að biðja fólk endi­lega um að fyr­ir­gefa mér heldur meira að taka ábyrgð á því sem ég hef gert.“

Baldur hefur hitt fjöl­skyldu Magnúsar sem lést eftir slags­málin á sínum tíma. „Maður getur ekki gert neitt verra en þetta,“ segir hann og á við að verða manns­bani, „af því að ein­stak­ling­ur­inn er bara far­inn. Ungur drengur sem hvarf í blóma lífs­ins.“ Baldur segir að hann hafi sagt fjöl­skyldu Magnúsar að hann gæti ekk­ert sagt eða gert sem gæti leið­rétt það sem hann gerði þeim en að hann vildi að þau vissu að hann myndi verja ævi sinni í að hjálpa öðrum til þess að sporna gegn því að fleiri svona mál komi upp.

Hann sem áður var í neyslu og sat á Litla-Hrauni vegna lík­ams­árásar sem varð til þess að ungur maður lést er í dag fram­kvæmda­stjóri Lausn­ar­innar, fjöl­skyldu- og áfalla­mið­stöðvar. Markmið hennar er að veita ein­stak­lingum, pörum og fjöl­skyldum stuðn­ing, fræðslu, leið­sögn og þá aðstoð sem til þarf til að eign­ast eðli­legra og betra líf.

Ég læt líf mitt ekki lengur snú­ast um mig heldur snýst líf mitt um að gefa aftur til sam­fé­lags­ins.
Baldur Freyr fann ham­ingj­una. Hér er hann með eig­in­konu sinni, Barböru Hafey Þórð­ar­dóttur.

„Við fluttum Lausnina í Ármúla 40 og út um skrif­stofu­glugg­ann minn sé ég gömlu eit­ur­lyfja­mið­stöð­una og vænd­is­húsið sem ég var með við Ármúlann. Mér finnst það vera mjög tákn­rænt fyrir þessa end­ur­reisn að ég er loks­ins kom­inn hring­inn.“

Hann seg­ist hafa gefið Guði líf sitt. „Ég læt líf mitt ekki lengur snú­ast um mig heldur snýst líf mitt um að gefa aftur til sam­fé­lags­ins. Ég vil hafa áhrif á sam­fé­lagið til góðs. Ein­kunn­ar­orð Lausn­ar­innar er „heil­brigt sam­fé­lag“ af því að ég veit að heil­brigðar fjöl­skyldur búa til heil­brigð börn sem byggja heil­brigt sam­fé­lag.“

Söfnun stendur yfir á Karolina-fund vegna útgáfu bókar Baldurs, Heimtur úr helj­ar­g­reipum.

Viðtalið við Baldur á Mann­líf­inu með Reyni Traustsyni er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina