Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Í fréttum var þetta helst-Sigmundur skrópaði í Silfrinu, talningar í tjóni og Glúmur gefst ekki upp

Í fréttum var þetta helst-Sigmundur skrópaði í Silfrinu, talningar í tjóni og Glúmur gefst ekki upp

Í fréttum var þetta helst:

Alþing­is­kosn­ing­arnar voru fyr­ir­ferða­miklar í fréttum Mannlífs und­an­farið en eins og alþjóð veit hélt núver­andi rík­is­stjórn velli og rúm­lega það. Taln­ingin gekk þó ekki snuðru­laust fyrir sig og er enn óvissa varð­andi end­ur­taln­ingu í Norð­vestur kjör­dæmi en hefur sú taln­ing verið kærð til lög­reglu. Blaða­kona Mannlífs var fyrst með frétt­ina um að Ingi Tryggva­son, for­maður yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hyggð­ist ekki sinna starf­inu aftur. Land­helg­is­gæslan var einnig í fréttum en Blaða­maður Mannlífs opn­aði á mál er varð­aði kyn­ferð­is­lega áreitni Skip­herr­ans Thorben Lund á hendur tveggja kvenna sem starfa á varð­skip­inu Tý. Þá vakti frétt um Facebook færsla nokkra, mikla athygli í lið­inni viku. Þar sagði maður frá því er hann horfði upp á fátækan eldri borg­ara taka út þann litla pen­ing sem hann átti inni á banka­reikn­ing Íslands­banka og velti fyrir sér sam­fé­lag­inu sem við byggjum í hér í landi tæki­fær­anna. Hér eru brot úr fréttum sem vakið hafa athygli und­an­farið:

Sigurður Ingi með öll spil á hendi eftir stór­sigur – Inga Sæland sóp­aði til sín fylgi


Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er með öll spil á hendi eftir stór­sigur flokks­ins í nótt. Flokk­ur­inn bætir við sig fimm þing­mönnum, eins og staðan er núna í taln­ing­unni, og fær 13 alls.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur sínum þing­manna­fjölda og er áfram með 16 þing­menn. Flokk­ur­inn tap­aði tæp­lega 1 pró­sentu­stigi. Vinstri grænir urðu aftur á móti fyrir áfalli og töp­uðu þremur þing­mönnum og eru með 8 þing­menn í dag í stað 11 áður. Fyrir liggur að þetta er áfall fyrir Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og skila­boð um að stjórn­ar­sam­starfið sé ekki æski­leg. Sam­an­lagt eru stjórn­ar­flokk­arnir með enn stærri meiri­hluta en áður eða 37 þing­menn en vand­inn er sá að styrkur flokk­anna hefur gjör­breyst og ljóst að Sigurður Ingi mun kalla eftir því að leiða rík­is­stjórn, sem jafn­framt þýðir að VG getur engan veg­inn sætt sig við.

Mið­flokkur Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar hrundi í kosn­ing­unum og er aðeins með þrjá þing­menn inni í stað sjö áður. Þá eru það Sós­í­alistum gríð­ar­leg von­brigði að hafa ekki náð inn manni en flokk­ur­inn er eins og staðan er núna í morg­unsárið með 4,2 pró­sent fylgi og þar með undir þrös­k­uldi um lág­marks­fylgi.

Fréttin:Sigurður Ingi með öll spil á hendi eftir stór­sigur – Inga Sæland sóp­aði til sín fylgi

Afhroð Mið­flokks­ins: Sig­mundur Davíð skróp­aði í Silfrinu


Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, á erfitt eftir að rúm­lega helm­ingur þing­flokks hans hvarf út í busk­ann og eftir stendur þriggja manna þing­flokkur þar sem sjö sátu áður. Mið­flokk­ur­inn fékk rúm­lega 5 pró­senta fylgi og rétt skreið yfir þau landa­mæri lífs og dauða sem færa flokkum þing­sæti. Frægt var þegar Sig­mundur var felldur af stóli for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og hann rauk á brott af fund­inum í fússi. Sigurður Ingi Jóhanns­son tók þá við flokknum og vann núna stór­sigur. Svipað er uppi á ten­ingnum núna. Sig­mundur hafði boðað komu sína í Silfrið en afboð­aði sig á sein­ustu stundu í stað þess að taka ósigri sínum með sóma.
Fréttin: Afhroð Mið­flokks­ins: Sig­mundur Davíð skróp­aði í Silfrinu

Glúmur við­ur­kennir brot­lend­ingu: „Mér hefur mis­tek­ist hrapal­lega í minni fyrstu póli­tísku orr­ustu“



„Nú er ljóst að mér hefur mis­tek­ist hrapal­lega í minni fyrstu póli­tísku orr­ustu. Ég kenni engum um nema sjálfum mér,“ skrifar Glúmur Bald­vins­son, einn af odd­vitum Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokks­ins, um þá brot­lend­ingu að flokkur hans var með aðeins 0.,4 pró­sent fylgi.

Glúmur er ein­lægur í loka­upp­gjöri sínu. Hann ætlar ekki lengur að feta slóð föður síns, Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar og afa, Hanni­bals Valdi­mars­sonar, sem báðir unnu glæsta sigra í stjórn­málum. Öll Fréttin: Glúmur við­ur­kennir brot­lend­ingu: „Mér hefur mis­tek­ist hrapal­lega í minni fyrstu póli­tísku orr­ustu“

Ingi úti­lokar kosn­inga­svindl en hættir sem for­maður: „Allar vanga­veltur um slíkt er bara bull“


Ingi Tryggva­son, for­maður yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, ætlar ekki að gefa kost á sér aftur.

Í við­tali við Mannlíf segir hann að kjör­stjórn Norð­vest­ur­kjör­dæmis hafi borist ábend­ing frá Lands­kjör­stjórn, morg­un­inn eftir að loka­tölur höfðu verið til­kynntar. Ábend­ingin var sú að litlu hefði munað í tveimur kjör­dæmum í sam­bandi við upp­bót­ar­menn og í kjöl­farið hafi kjör­stjórnin fundað í hádeg­inu og farið í að telja atkvæðin aftur.

Í kjör­stjórn Norð­vest­ur­kjör­dæmis sátu Ingi Tryggva­son for­maður, Bragi Rúnar Axelsson, Katrín Páls­dóttir, Ingi­björg I. Guð­munds­dóttir og Guðrún Sig­hvats­dóttir.

Þegar Ingi var spurður út í inn­sigli sem kjör­stjórn er skylt að nota sagð­ist hann halda að betra væri að leggja áherslu á að læsa her­bergj­unum.

,,það er spurn­ing hvort fólk viti það hvað felst i inn­sigli,‘‘ sagði Ingi og bætti við að ef ein­hver ætl­aði sér inn í her­bergið kæmi inn­sigli ekki í veg fyrir það. Enda væri um lím­miða að ræða sem auð­velt væri að taka af og setja aftur á.

Öll fréttin: Ingi úti­lokar kosn­inga­svindl en hættir sem for­maður: „Allar vanga­veltur um slíkt er bara bull“

„Ég get full­yrt að kosn­inga­lög voru brotin – Auð­veld­lega hægt að bæta við seðlum úr rusl­inu“


„Það sem ger­ist er að allt í einu voru fleiri seðlar heldur en voru skráðir í byrjun,“ segir einn umboðs­mann­ana sem var við­staddur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi um kosn­inga­helg­ina.

Margar spurn­ingar hafa vaknað eftir að tölu­verðar beyt­ingar urðu áúrslitum eftir að atkvæði voru talin aftur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Ræddi Mannlíf við umboðs­mann­inn, sem vill ekki láta nafn síns getið, og rekur hann röð mis­taka sem áttu sér stað. Hann tekur einnig fram að engir umboðs­menn hafi verið við­staddir fyrir pírata eða fram­sókn­ar­flokk­inn.

Umboðs­mað­ur­inn segir að öll gögnin hafi verið inn­sigluð í upp­hafi taln­ingar en í lok dags­ins þegar skilið var við gögnin hafi ekki verið gengið frá þeim eins og reglur segja til um. Þá hafi margir getað nálg­ast gögnin. Þá hafi ein­hver „vafa­at­kvæði“ verið metin gild.

Öll fréttin: „Ég get full­yrt að kosn­inga­lög voru brotin – Auð­veld­lega hægt að bæta við seðlum úr rusl­inu“

Þetta er skip­herra Gæsl­unnar sem sendur var í leyfi – Meint kyn­ferð­is­leg áreitni til rann­sóknar


Skip­herr­ann sem leystur hefur verið frá störfum tíma­bundið hjá Land­helg­is­gæsl­unni heitir Thorben Jósef Lund. Rannsókn er hafin innan Gæsl­unnar á meintri kyn­ferð­is­legri áreitni skip­herr­ans gagn­vart tveimur konum sem vinna um borð í varð­skip­inu Tý.

Thorben tók við skip­herra­stöðu sinni á Tý ásamt öðrum skip­herra í fyrra en alls eru þrír skip­herrar við störf hjá Gæslunni. Ekki hefur Land­helg­is­gæslan viljað stað­festa að Thorben sé hinn meinti brota­maður og þannig losa hina skip­herrana úr snör­unni en sam­kvæmt áreið­an­legum heim­ildum Mannlífs er það Thorben sem hefur verið leystur frá störfum á meðan rann­sókn stendur yfir.

Blaða­maður Mannlífs spurði for­svars­menn stétt­ar­fé­laga bæði meintra þolenda og meints brota­manns um við­brögð við fréttum um málið en báðir aðilar neit­uðu að tjá sig. Formaður stétt­ar­fé­lags þolend­anna sagði þó að félagið for­dæmdi allt ofbeldi, kyn­ferð­is­legt sem og annað ofbeldi.

Ekki hefur tek­ist að ná sam­bandi við Thorben Lund né aðra skip­herra Land­helg­is­gæsl­unnar við gerð þess­arar fréttar.

Fréttin: Þetta er skip­herra Gæsl­unnar sem sendur var í leyfi – Meint kyn­ferð­is­leg áreitni til rann­sóknar

Guðmundi afar brugðið í Íslands­banka: „Ég fór sjálfur inn í humátt á eftir honum“


Guð­mundur segir frá sam­skiptum sínum við mann­inn inni á spjall­svæði Sós­í­alista­flokks­ins á Facebook. Færsluna kallar hann „Örsaga úr landi tæki­fær­anna“ og við skulum gefa Guðmundi orðið:

„Eldri mađur sem gekk viđ hækju sótti Íslands­banka núna í morg­unsáriđ. Hann sem var snyrti­legur en illa skýldur fyrir kuld­anum, húkti þarna undir hús­horni í norđ­anátt­inni þar til ađ bank­inn opnađi. Ég fór sjálfur inn í humátt á eftir honum þegar bank­inn opnar, hljóp útúr hlýjum bílnum rétt í því þegar Gunnar Smári er að ljúka máli sínu á bít­inu. Ég lenti svo fyrir aftan þennan „ósýni­lega“ mann hjá gjald­ker­anum,“ segir Guð­mundur og heldur áfram:

„Hann tal­aði frekar hátt vegna heyrna­skerđingar og bađ um stöð­una á reikn­ingnum. Hann taldi ađ hann ætti að eiga um 3.000 kr, ef hann hefði reiknađ rétt. Gjald­ker­inn sagði honum að hann ætti heilar 13.000 kr inni á kort­inu, og mađ­ur­inn gladd­ist mikið við þessar óvæntu fréttir. Hann bað um að fá 5.000 kr. og tjáir gjald­ker­anum að þetta væri mjög óvænt, hann kæm­ist þá í búđina.“

Öll fréttin: Guðmundi afar brugðið í Íslands­banka: „Ég fór sjálfur inn í humátt á eftir honum“

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brak­andi fesku helg­ar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina