Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sigurður tvívegis nálægt dauðanum: „Datt bara einu sinni í það en það rann ekki af mér í rúm 30 ár“

Sigurður tvívegis nálægt dauðanum: „Datt bara einu sinni í það en það rann ekki af mér í rúm 30 ár“
Sigurður Ing­ólfs­son

„Ég var einu sinni næstum búinn að yrkja mig út úr skóla. Þá tók ég The Raven eftir Edgar Allan Poe og snéri honum upp á skóla­meist­ara Mennta­skól­ans á Akureyri. Svo fór ég til hans og spurði hvort ég mætti ekki lesa þetta á ljóða­kvöldi, kvöldið eftir. Hann las þetta og föln­aði svo hægt og rólega og sagði svo orð­rétt, Sigurður, ég ætla að biðja þig að vísa úr mínum húsum, ég er þreyttur og hef unnið mikið en ég get sagt þér það að ef þú hefðir lesið þetta upp að mér for­spurðum hefð­irðu verið umsvifa­laust rek­inn úr skóla.“

Dr. Sigurður Ing­ólfs­son er vin­sæll meðal þeirra sem til hans þekkja. Hann er fynd­inn, djúpur og heið­ar­legur. Og svo er hann heil­mik­ill karakter. Hann titlar sig sem þýð­anda og ljóð­skáld en snemma á næsta ári kemur út níunda ljóða­bók hans. Mannlíf plat­aði hann í við­tal.

Sigurður er frá Akureyri og stund­aði nám við Mennta­skól­ann á Akureyri en fór svo í bók­mennta­fræði í Háskóla Íslands, tók svo kennslu­fræð­ina en flutti svo til Frakk­lands. Þar tók hann dokt­ors­gráðu í frönskum bók­menntum og sam­tímaljóð­list. „Það er miklu skemmti­legra að skrifa um eitt­hvað sem er skrifað núna en ekki eitt­hvað dautt sem hefur verið skrifað um milljón sinnum.“

Byrjaði snemma að semja ljóð

Eftir Frakk­land fór Sigurður ásamt þáver­andi eig­in­konu sinni og tveimur sonum austur á Egils­staði hvar Sigurður kenndi frönsku. Í Mennta­skól­anum á Egils­stöðum var hann kall­aður Dr. Zorro en á þeim árum hafði hann langt hár sem hann setti upp í stert og var með franskt skegg sem minnti helst á Zorro. Eftir að starfi hans lauk við skól­ann fékkst hann við ýmis­legt, meðal ann­ars rit­stjórn og skrif. Nú býr Sigurður í mið­borg Reykja­víkur og starfar sem þýð­andi og svo gefur hann út ljóða­bækur endrum og eins. Þá stundar hann einnig nám við guð­fræði­deild Háskóla Íslands.

„Ég byrj­aði að semja ljóð strax í barn­æsku. Byrjaði við að fikta við fer­skeytl­una en fyrsta vísan sem ég samdi var hræði­leg. Af því að ég hrúg­aði bara fullt af stuðlum í allar setn­ingar,“ segir Sigurður og hlær. „Halldór frændi minn, fyrr­ver­andi skóla­stjóri í Þor­láks­höfn spurði mig ein­fald­lega hvort ég vissi ekki að það ættu bara að vera tveir stuðlar í hverri setn­ingu og einn höf­uð­stafur.“ Sigurður heldur áfram og segir blaða­manni hver hafi kennt honum mest hvað ljóð­list­ina varðar. „Svo lærði ég mest af honum Birni Andrési Ing­ólfs­syni, föð­ur­bróður mínum. Hann er algjör spesí­alisti í almenni­legri brag­fræði.“

„Guð minn almáttugur, ekki hann!“

Í Mennta­skól­anum á Akureyri seg­ist Sigurður hafa lifað hálf­gerðu prí­vat­lífi, mætti í prófin en „ég var bara út á þekju ein­hvern­veg­inn en einn besti vinur minn sagði mér að það fyrsta sem honum datt í hug þegar hann sá að ég var að koma í bekk­inn hafi verið, Guð minn almátt­ugur, ekki hann!“

Fyrsta ljóða­bók Sigurðar, Húm, kom út árið 1986. „Hún var svona ung­æð­ings­leg og ég ætl­aði bara að fá Nóbelinn strax. Og íslensku bók­mennta­verð­launin,“ bætir Sigurður við hlæj­andi. „En svo voru nú ein­hverjar þýð­ingar í bók­inni sem ég er ennþá ánægður með, Poe, Goethe og Shelley.“ Síðan þá hafa komið út eins og áður segir þó nokkrar ljóða­bækur eftir Sigurð og er hann hvergi nærri hættur.

Blaða­manni lék for­vitni á að vita hvaða skáld hann hefði mest dálæti á og sagði Sigurður því auðsvarað. „Fyrsta skáldið sem ég féll kylli­flatur fyrir var Davíð Stef­áns­son frá Fagraskógi. Og svo var það Steinn Steinarr. En síðan hafa það verið frönsku skáldin, Charles Baudelaire, Arthur Rimbaud og fleiri. Svo er Sigurður Pálsson reyndar líka í sér­stöku upp­á­haldi hjá mér.“

Sigurður við Geld­inga­gosið

Varð næstum úti sem barn

Sigurður er ekki laus við drama á líf­leið­inni eins og kannski flestir sem fengnir eru í við­töl sem þessi en hann hefur tvisvar sinnum verið nálægt dauð­anum. Eftir seinna skiptið sem hann nán­ast dó, segir Sigurður að þegar fólk spyrji hann hvort það hafi ekki verið alveg hræði­legt, svari hann alltaf eins; „Ja, maður er þá búinn að prófa þetta einu sinni.“
Fyrra skiptið gerð­ist þegar hann var aðeins fjög­urra ára gam­all og ber hann þess enn merki. „Ég var alveg búinn að sætta mig við það að vera að deyja, fjög­urra ára gam­all. Sá bara í hvað stefndi og ok, það er þá bara þannig.“

Á þessum tíma bjó Sigurður með for­eldrum sínum og bróður á Sval­barðs­eyri, í Jak­obs­húsi svoköll­uðu. „Ég vildi búa til stromp á snjó­hús sem ég og vinir mínir vorum búnir að búa til úr skafli. Við byrj­uðum fyrir hádegi en eftir hádegi vildi eng­inn koma með mér til að klára stromp­inn. Þannig að ég fer einn út. Ég byrja að gera gat á snjó­húsið en svo pomp­aði ég bara niður og sat þar fastur um miðj­una. En ég tek vett­ling­ana af mér til að reyna að nota hend­urnar til að losa mig en þegar það klikkar og ég ætla að setja þá aftur á mig eru þeir foknir burt. Ég rétt sá grilla í þá en þeir gerðu það bara til að stríða mér.“

Úti var mikið frost en rétt áður en Sigurður missti með­vit­und man hann eftir að hafa séð tvo hand­leggi taka á móti sér. „Og ég hélt bara að ég væri að deyja. En nei, þetta var bara karl­inn í næsta húsi en konan hans hafði svo gaman af því að sauma á dag­inn en í þetta skiptið bil­aði sauma­vélin hjá henni og hún tók því upp kík­inn sinn og horfði út um glugg­ann til að kíkja í kringum sig. Sá hún þá ein­hverja þúst vera að sprikla og náði í karl­inn sinn og sagði honum að athuga með þetta. Hann kom út og kippti mér úr skafl­inum. Þetta var hann Sigmar karl­inn og á ég honum líf mitt að launa.“

Sigurður var fluttur á sjúkra­hús með kalsár á fingrum en þeir voru glærir á lit að sögn móður hans. Í dag er hann með mis­langa fingur, sökum kals­ins. Sigurður var nokkuð ódæll á sjúkra­hús­inu. „Svo vakna ég bara sprell­lif­andi á sjúkra­hús­inu og var bara stein­hissa. Ég var þarna innan um nokkrar konur sem mér fannst alveg eld­gamlar en ætli þær hafi ekki verið svona 18, 19 ára. Ein þeirra var mjög sæt en ég var svo­lítið hrekkj­óttur þarna og var alltaf að fela mig fyrir hjúkk­unum þegar þær komu. Þessi sæta leyfði mér að fela sig undir sæng­inni sinni og þar fékk ég bara fría anató­míu, segir Sigurður og skellir upp úr.“

Sigurður reyndi einnig að strjúka af sjúkra­hús­inu í tvígang. „En ég var stopp­aður að minnsta kosti einu sinni en var þá kom­inn alla leið út á gang og var að reyna að fá ein­hvern til að ýta á lyftu­takk­ann fyrir mig. Í hitt skiptið var ég kom­inn alla leið í and­dyrið. Mér hund­leidd­ist þarna og svo var mat­ur­inn vondur.“ Það sem Sigurði fannst, fjög­urra ára gömlum, þó leið­in­leg­ast við sjúkra­hús­dvöl­ina var að geta ekki lesið enda þá með ónot­hæfa fingur til að fletta blað­síðum. „Þannig að ég þró­aði með mér tækni í því að fletta með tánnum.“ Aðspurður seg­ist Sigurður ekki not­ast við þessa aðferð lengur, „ég efast um að ég nái bók­inni upp.“

„Prófessional fyllibytta“

Heilsan hans Sigurður hefur ekki alltaf verið upp á sitt besta en hann seg­ist vera „pró­fessional fylli­bytta.“ „Ég datt reyndar bara einu sinni í það en það rann ekki af mér í rúm 30 ár.“ Eftir alla drykkj­una er Sigurður nú með nokk­ur­vegin ónýta lifur, geð­hvarfa­sýki og syk­ur­sýki 2. „Og geng bara á lyfjum. Ég hætti að drekka fyrir ca 3-4 árum og það var bara auð­velt. Ég hafði áður farið í 100 og eitt­hvað með­ferðir og fannst allt heimsku­legt sem þar fór fram. Svo einn dag­inn vakn­aði ég, auð­vitað á sjúkra­hús­inu og sagði við sjálfan mig, fuck, ég nenni þessu ekki lengur. Svo fór ég bara heim og hætti að drekka. Nema jú, ég fékk mér tvisvar sinnum rauð­víns­glas til að athuga hvort ég yrði alveg brjál­aður í áfengi. Svo var ekki og þá gat ég hætt með góðri sam­visku. Af því að þá var ég ekki að hætta sem alki heldur sem fylli­bytta. Allavega í mínum huga en sam­kvæmt skil­grein­ing­unni er ég auð­vitað bull­andi alka­hólisti.“ Sigurður er alvanur sjúkra­hús­dvöl en hann seg­ist hafa dvalið á öllum sjúkra­húsum lands­ins, „nema á Ísafirði, ég á það eftir,“ segir Sigurður og hlær. „Ég er að hugsa um að fara á Ísafjörð og ná sjötta fót­brot­inu mínu þar.“

Sigurður les í Dav­íðs­húsi á Akureyri

Að lokum segir Sigurður nokkuð alvar­legur í fasi, að hann hafi byrjað að semja ljóð „til að verða frægur og ná í stelpur en nú sé það sér lífs­nauð­syn­legt því „nú er ég Bi-polar og gömul fylli­bytta og hvað eina, en ljóðið er það eina sem ég get algjör­lega ein­beitt mér að. Annars er haus­inn á mér bara á ein­hverju flökkti. Svo finnst ég mér líka hafa eitt­hvað að segja.“

Heima

Þegar líður hugur heim

og hugsar öllum þeim

sem sáðu í þennan akur sem við eigum,

þakkir fyrir það

og þennan fagra stað.

Ég anda skógi og saman sum­rið teygum.

Um allan Eyja­fjörð

er ein­hver heilög jörð

og fugla­söng og fjar­ræn ljóð ég heyri.

Það líf sem líður hjá

þau ljóð sem vakna fá

ég heyri ef ég hugsa um Akureyri.

Sigurður Ing­ólfs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una