Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Vala Matt: „Ég vil frekar vera þreytandi jákvæð og bjartsýn en eyðileggjandi neikvæð“

Vala Matt: „Ég vil frekar vera þreytandi jákvæð og bjartsýn en eyðileggjandi neikvæð“

Fjöl­miðla­konan dásam­lega Val­gerður Matth­í­as­dóttir, eða Vala Matt, eins og hún er iðu­lega kölluð er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Vala er mik­ill fag­ur­keri og hefur löngum verið þekkt fyrir að vera afar smekk­leg og smart. Það skal því engan undra að hún hafi lokið masters­prófi í húsa­arki­tektúr við Kon­ung­legu dönsku Lista­aka­dem­í­una.
Und­an­farið hefur Vala prýtt skjái lands­manna í þætt­inum Ísland í dag, sem notið hefur mik­illa vin­sælda.
Mannlíf komst að því að Vala er vinnu­alki, hana dreymir um að geta búið með annan fót­inn í Kaup­manna­höfn og hún hefur alltaf reynt að nýta sér jákvæð gildi Pollýönnu.

Fjöl­skyldu­hagir? Frá­skilin. Á eina dóttur og eina fóst­ur­dóttur og fjögur barna­börn.

Menntun/atvinna? Masters­próf, MA, sex ára nám í húsa­arki­tektúr við Kon­ung­legu dönsku Lista­aka­dem­í­una í Kaup­manna­höfn. En ég hef mest unnið við fjöl­miðla­störf und­an­farna ára­tugi og þá bæði í sjón­varpi, útvarpi og prent­miðlum.

Upp­á­halds sjón­varps­efni? Íslensk sjón­varps fram­leiðsla ýmis konar, bæði á léttu efni og alvar­legra. Og þátt­ur­inn Ísland í dag á Stöð 2 er í mestu upp­á­haldi hjá mér því hann sam­einar þetta svo snilld­ar­lega.

Leikari? Af erlendum leik­urum er til dæmis breski leik­ar­inn Anthony Hopkins í miklu upp­á­haldi. Ég tók einu sinni sjón­varps við­tal við hann sem er mér ógleym­an­legt því hann opn­aði sig svo ótrú­lega og var svo per­sónu­legur og ein­lægur. Og hér á Íslandi er ein besta leik­kona lands­ins án efa hin marg­verð­laun­aða Edda Björg­vins­dóttir sem hefur sannað sig bæði sem grín og drama leik­kona á heims­mæli­kvarða. En auð­vitað væri hægt að nefna mun fleiri.

Rit­höf­undur? Svo margir í upp­á­haldi, en af erlendum höf­undum sem höfðu áhrif á mig sem ung­ling eru til dæmis Ernest Hemingway og John Steinbeck í miklu upp­á­haldi. Og W. Somerset Maugham er mér mjög kær. Ég las bæk­urnar hans þegar ég var yngri og ég grét yfir þeim mörgum og þær kenndu mér svo margt um mann­legt eðli. Svo er Eleanor H. Porter ein af mínum upp­á­halds höf­undum því hún skrif­aði bók­ina sem hafði mest áhrif á mig í æsku, Pollýönnu. Og ég hef reynt að nota hennar jákvæðni trix alla mína ævi. Sem hefur þó stundum reynst mér erfitt hér á þess­ari eyju þar sem fuss og svei og nei­kvæðni hefur oft þótt fínna. En ég veit að það eru þónokkrir þekktir sál­fræð­ingar sem nota hennar heim­speki. Ég á marga upp­á­halds íslenska höf­unda en vil ekki gera upp á milli þeirra og það væri of langt mál að telja þá upp.

Bók eða bíó? Hvoru tveggja. Ég er alin upp af kenn­urum og skóla­stjórn­endum þar sem bækur voru uppi um alla veggi og bókum haldið að okkur systk­inum alla bernsk­una, þannig að ég elska bækur. Og ég er sjálf með bækur um allt. En svo er kvik­mynda list­formið svo stór­kost­legt og getur hrifið mann og snert á svo margan hátt.

Besti matur? Alltaf þegar ég hef verið spurð að þessu nefni ég alltaf fyrst humar en svo hafa risa­rækjur nú bæst við og eru þær alveg að slá út hum­ar­inn. Mið­jarð­ar­hafs matur er í miklu upp­á­haldi. Ég elska ind­versk og ítölsk krydd sem gera allan mat betri. Svo finnst mér sigin grá­sleppa algjört lost­æti.

Kók eða Pepsí? Ég er hætt að drekka gos nema til hátíða­brigða. Elska að drekka sóda­vatn. Og nátt­úr­lega íslenska vatnið sem er best í heimi.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Íslensk nátt­úra í dásam­legri kyrrð þar sem ég heyri aðeins fugla­söng í Lóunni, því sú upp­lifun fær mig til að anda djúpt og upp­lifa svo mikla innri ró.

Hvað er skemmti­legt? Svo margt. Hlátur til dæmis. Það sem ég elska er að vera með fólki sem ég get hlegið með. Dætur mínar. Systkini. Vinir og vin­konur. Sem eru öll dúndur skemmti­leg. Og svo vina­grúppan sem ég er í og hitt­ist alltaf reglu­lega sem sam­anstendur af skemmti­leg­asta fólki lands­ins, þeim Eddu Björg­vins, Guðnýju Laxness, Röggu Gísla, Diddú og Bergþóri Páls og Alberti Eiríks. Dýrmætt að vera með vel gefnu og skemmti­legu fólki, bæði fjöl­skyldu og vinum.

Hvað er leið­in­legt? Streitan sem ég kem mér alltaf í og ég hef verið að kljást við í svo mörg ár.

Hvaða flokkur? Sá flokkur sem berst harð­ast fyrir lít­il­magn­ann í þjóð­fé­lag­inu og þá sem hafa minnst milli hand­anna og eiga erfitt. Og sá flokkur sem berst einnig fyrir því að koma auð­lindum sjávar í eigu og for­sjá þjóð­ar­innar.

Hvaða skemmti­staður? Ég elska að fara á kaffi­hús og veit­inga­staði með skemmti­legu fólki. Og ég myndi klár­lega flokka það undir skemmti­staði. Góður félags­skapur og dásam­legur matur er eitt af því skemmti­leg­asta sem ég upp­lifi.

Kostir? Ég reyni að leita uppi skemmti­legt, vel gefið og mann­bæt­andi fólk og gleði og miðla því til sem flestra í gegnum þá fjöl­miðla sem ég hef unnið á. Ég hef oft sagt að ég vil frekar vera þreyt­andi jákvæð og bjart­sýn en eyði­leggj­andi nei­kvæð. Og svo mega menn bara fussa og sveia yfir því.

Lestir? Þeir eru margir. En ef ég nefni nokkra, þá á ég til dæmis stundum erfitt með að „kon­frontera“ fólk og segja upp­hátt þegar mér mis­líkar eitt­hvað sem fólk segir eða gerir og mér sárnar og ég byrgi það þá inni sem er alls ekki hollt. Svo er ég of mik­ill vinnu­alki og það hefur haft slæm áhrif á svo margt í mínu lífi.

Hver er fynd­inn? Svo margir. Erfitt að nefna einn. Húmor gerir lífið betra og er einnig eitt af því sem ég hef sótt mikið í gegnum lífið til þess að gera erf­iða tíma auð­veld­ari. Og ég hef kynnst frá­bæru fólki sem kann að sjá spaugi­legu hliðar lífs­ins og það er mér alveg ómet­an­legt. Og svo er nauð­syn­legt að hafa húmor fyrir sjálfum sér. Þess vegna hef ég alltaf hlegið hæst sjálf þegar ég hef verið tekin fyrir í Ára­mótaskaup­inu.

Hver er leið­in­legur? Neikvæða liðið sem þolir ekki hlátur og gleði. Og sem ég kalla harð­líf­isliðið.

Trúir þú á drauga? Nei. En ég hef upp­lifað yfir­nátt­úru­lega hluti sem erfitt er að útskýra.

Mestu von­brigðin? Að missa föður minn og bróður, því þeir lét­ust fyrir aldur fram.

Hver er draum­ur­inn? Að geta í fram­tíð­inni búið með annan fót­inn í Kaup­manna­höfn þar sem Tinna dóttir mín og strák­arnir hennar búa.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að vinna með flottum hópi fjöl­miðla­fólks, þeim Sindra Sindra, Evu Laufeyju, Sigrúnu Ósk og Frosta Loga í þætt­inum Íslandi í dag á Stöð 2. Þar er fjallað um allt sem er mann­legt og áhuga­vert. Er mjög stolt af þeim þætti. Og sýna áhorfs­töl­urnar að þátt­ur­inn er að snerta við fólki og það þykir mér vænt um.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Nei alls ekki. Það er svo margt í píp­unum að það hálfa væri nóg.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Man eftir einum núna en það þarf helst að segja hann upp­hátt til að hann virki, en ekki skrifa hann á blað. En hann er svona og er frá Eddu Björg­vins…Besta „pick up“ línan „Getur þú nokkuð lánað mér 5000 kall svo ég geti boðið þér uppá glas?“ Er hlæj­andi núna við að rifja hann upp. Óborg­an­legt þegar Edda segir hann með leik­rænni snilld.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Þau eru svo mörg en það þarf að heyra þeim lýst upp­hátt og helst leika þau með skemmti­legum til­þrifum.

Sorg­leg­asta stundin? Þegar ég hef orðið fyrir ást­vina­missi.

Mesta gleðin? Að vera með þeim sem ég elska. Og vita að þau séu heil heilsu og ham­ingju­söm. Og að fá hlát­ur­sköst. Það jafn­ast ekk­ert á við það að hlæja. Nátt­úru­legt mor­fín lík­am­ans, end­or­fínið streymir við það um allan lík­amann með ólýs­an­legri vellíðan.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að vera jákvæð, láta gott af sér leiða og reyna að finna gleði og innri ró eins oft og hægt er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina