Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Reyndu að húkka sér far á Norðfjörð: „Þið eruð ekkert að fara á ballið er það?“

Reyndu að húkka sér far á Norðfjörð: „Þið eruð ekkert að fara á ballið er það?“
Heimskast

Ýmislegt mis­gáfu­legt hefur maður gert á djamm­inu um ævina en ein helgi ber af þegar kemur að heimsku­pörum, Versl­un­ar­manna­helgin.

Sumarið 2004 sirka, skrapp ég á Akureyri um Versl­un­ar­manna­helg­ina en þá hét hátíðin senni­lega Halló Akureyri!. Mig minnir að fyrstu kvöldin hafi bara verið skemmti­leg en á sunnu­deg­inum fæ ég óvænt sím­tal. Tobbi, vinur minn sem fluttur var til Berlínar var óvænt mættur á Egils­staði. Ég brun­aði austur og var kom­inn í pott­inn heima hjá for­eldrum Tobba um kvöldið.

Við Tobbi spjöll­uðum um lífið og til­ver­una, þýskar leð­ur­buxur og til­gang lífs­ins og drukkum guða­veigar, bjór. Við höfðum ákveðið að fara ekki á ballið á Neista­flugi í Nes­kaups­stað. En þegar líða tók á kvöldið og áfengið farið að streyma um æðarnar í stað blóðs, fór okkur vin­unum að langa svo­lítið á ball. Um mið­nætti hringdum við í Björn, pabba Tobba sem átti það til að vinna fram á nótt á arki­tekta­stof­unni sem hann van hjá. Björn harð­neit­aði að keyra okkur á Norð­fjörð enda klukkan orðin allt of margt.

Við ákváðum því að húkka okkur far. Þá tók um eina og hálfa klukku­stund að keyra frá Egils­stöðum til Norð­fjarðar, yfir Fagra­dal­inn og svo yfir einn hæsta fjall­veg lands­ins, í gegnum Odd­skarðs­göngin gömlu. Við tókum með okkur nesti, rest af Passoa sem blandað var við flatt Sprite.

Eftir eina og hálfa klukku­stund var áfengið búið og hvor­ugur bíl­anna sem við sáum á leið­inni stopp­uðu fyrir okkur. Pabbi Tobba hringdi og spurði hvar við værum. „Við erum bara að húkka far á Fagra­dalnum,“ sagði Tobbi þvoglu­mæltur. Pabbi Tobba and­varp­aði en sagði svo „ég skal þá skutla ykkur.“

Eftir fimm mín­útna akstur á hinum fagra dal bað ég Björn vin­sam­leg­ast að stoppa bíl­inn. Þegar ég kom út hlýddi ég lík­ama mínum sem vildi endi­lega losa mig við eitrið sem ég hafði inn­byrt í formi drykkja. Ferða­lagið hélt áfram. Í fimm mín­útur í við­bót. Þá bað Tobbi um að fá gubbu­stopp. Eftir að hann kom aftur inn í bíl­inn náðum við að halda í okkur í um það bil fimm mín­útur í við­bót en báðum þá báðir um stopp. Við gubbuðum í kross. Þegar við komum aftur inn í bíl­inn leit Björn í bak­sýn­is­speg­il­inn og í fljót­andi augu okkar. „Þið eruð ekk­ert að fara á ballið er það?“

„Nei,“ sögðum við í kór og ját­uðum okkur sigr­aða. Bílnum var snúið við.

Fannst þér þessi saga góð? Þú getur hlustað á hana og fleiri líkar í Mann­lífs­hlað­varp­inu HEIMSKast. Einnig má finna hlað­varpið á Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina