Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þetta fá stjórnmálaflokkarnir árlega úr ríkissjóði – Framsókn bætir við sig 44,6 milljónum

Þetta fá stjórnmálaflokkarnir árlega úr ríkissjóði – Framsókn bætir við sig 44,6 milljónum

Eftir alþing­is­kosn­ing­arnar árið 2017 varð gríð­ar­leg hækkun á styrkjum til stjórn­mála­flokk­anna úr rík­is­sjóði. Eftir að ný rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri Grænna og Fram­sókn­ar­flokks tók við stjórn­ar­taumum voru heild­ar­fram­lögin hækkuð úr 286 millj­ónum í 648 millj­ónir, eða um tæp­lega 227 pró­sent.

Heild­ar­fram­lög rík­is­ins til flokk­anna voru 728,2 millj­ónir árið 2020. Upphæðin hafði þá lækkað frá árinu 2019, en þá var hún 744 millj­ónir. Töluverð hækkun hafði verið sam­þykkt í fjár­lögum árs­ins 2019, en fram­lögin hækk­uðu um 96 millj­ónir milli áranna 2018 og 2019.

Rík­is­stjórn lands­ins ákveður heild­ar­fram­lögin í hverjum fjár­lögum, en það veltur svo á stærð hvers þing­flokks hve há fram­lögin til þeirra eru. Til þess að eiga rétt á fram­lögum úr rík­is­sjóði þarf stjórn­mála­flokkur að hafa náð að minnsta kosti einum manni á þing í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum, eða hafa hlotið að lág­marki 2,5 pró­sent atkvæða.

Heild­ar­fram­lög rík­is­ins til stjórn­mála­flokk­anna árið 2021 voru 728,2 millj­ónir króna líkt og árið á undan. Þar hlaut Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mest, eða tæpar 174 millj­ónir króna. Vinstri Græn voru næst á eftir Sjálf­stæð­is­flokki, með rúm­lega 120 millj­ónir. Af þeim flokkum sem hlutu fram­lög úr rík­is­sjóði árið 2021 fékk Viðreisn minnst, með sína fjóra þing­menn, eða tæpar 55 millj­ónir króna.

Nú þegar alþing­is­kosn­ingar eru nýaf­staðnar er ekki úr vegi að skoða hver fjár­fram­lögin verða, að því gefnu að upp­hæð­inni verði ekki breytt í fjár­lögum nýrrar rík­i­s­tjórnar.

Tölu­verðar breyt­ingar hafa orðið á fylgi flokk­anna. Til að mynda mun Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hljóta mun hærri upp­hæð úr rík­is­kass­anum eftir stór­aukið fylgi sitt í kosn­ing­unum, en flokk­ur­inn mun fá um 44,6 millj­ónum meira en hann fékk síð­ast. Stærsta tapið er hjá Mið­flokknum, en hann missir 42,6 millj­ónir miðað við nið­ur­stöður kosn­inga. Einn flokkur bæt­ist við, en það er Sós­í­alista­flokkur Íslands. Þrátt fyrir að hafa ekki náð manni inn á þing fékk flokk­ur­inn 4,1 pró­sent fylgi og er því vel yfir 2,5 pró­senta mark­inu og mun því hljóta fram­lög frá rík­inu.

Hér að neðan verða upp­hæð­irnar sem flokk­arnir fengu frá rík­inu árið 2021 bornar saman við þær upp­hæðir sem þeir munu hljóta núna að öllu óbreyttu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn:

Heldur sínum 16 þing­mönnum.

Fékk 173.975.322 krónur – mun nú fá 176.792.396 krónur.

Vinstri Græn:

Missa 3 þing­menn – voru með 11 en fá nú 8 menn inn á þing.

Fengu 120.388.911 krónur – munu nú fá 91.294.434 krónur.

Sam­fylk­ingin:

Missir 1 þing­mann – var með 7 en fær nú 6 menn inn á þing.

Fékk 89.326.315 krónur – mun nú fá 71.731.341 krónur.

Mið­flokk­ur­inn:

Missir 4 þing­menn – var með 7 en fær nú 3 menn inn á þing.

Fékk 81.751.906 krónur – mun nú fá 39.126.186 krónur.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn:

Bætir við sig 5 þing­mönnum – var með 8 en fær nú 13 menn inn á þing.

Fékk 80.705.807 krónur – mun nú fá 125.348.707 krónur.

Píratar:

Halda sínum 6 þing­mönnum.

Fengu 71.016.317 krónur – munu nú fá 62.312.074 krónur.

Flokkur Fólksins:

Bætir við sig 2 þing­mönnum – var með 4 en fær nú 6 menn inn á þing.

Fékk 56.138.831 krónur – mun nú fá 63.761.192 krónur.

Viðreisn:

Bætir við sig 1 þing­manni – var með 4 en fær nú 5 menn inn á þing.

Fékk 54.896.589 krónur – mun nú fá 60.138.397 krónur.

Sós­í­alistar:

Ná ekki manni inn á þing, en hlutu 4,1 pró­sent atkvæða.

Fá fram­lög í fyrsta sinn að upp­hæð 29.706.919 krónur.

Tölur þessar eru, eins og áður sagði, birtar með fyr­ir­vara um breyt­ingar.

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brak­andi fesku helg­ar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina