Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fegurðardísin Elísa Gróa: „Skammaðist mín fyrir persónuleika minn og byrjaði að ganga í svörtu“

Fegurðardísin Elísa Gróa: „Skammaðist mín fyrir persónuleika minn og byrjaði að ganga í svörtu“
Elísa Gróa Stein­þórs­dóttir

Elísa Gróa Stein­þórs­dóttir var í gær­kvöldi kjörin Miss Universe Iceland og mun taka þátt í alþjóð­legu keppn­inni Miss Universe í Ísrael senni­lega í des­em­ber.

„Þessi sigur þýðir mikið fyrir mig. Ég er búin að vera að keppa í þessum keppnum í sex ár og mig langar til að sýna fólki sér­stak­lega á Íslandi að það er bara allt í lagi að keppa í svona keppnum,“ segir Elísa Gróa en þetta var í fjórða skipti sem hún tók þátt í Miss Universe Iceland auk þess sem hún tók árið 2015 þátt í keppn­inni Ungfrú Ísland.

Árið 2019 keppti hún fyrir hönd Íslands í tveimur keppnum: Miss Eco International í Egypta­landi, og Miss Tourism World í Kína.

„Þessar keppnir eru svo góðar fyrir sjálfs­mynd­ina og sjálfs­traustið og mér finnst vera snið­ugt að koma svona fram á sviði sem maður sjálfur en ekki sem módel fyrir ein­hvern annan. Það er ástæðan fyrir því að ég hélt áfram í þessum keppnum. Ég er ekki sama mann­eskja og ég var fyrir sex árum þegar ég byrj­aði að keppa í þessum keppnum. Þetta gerir mikið fyrir mann og mér finnst vera mik­ill heiður að fá að keppa fyrir Íslands hönd í Miss Universe sem er stærsta keppnin í heim­inum.“

Elísa Gróa seg­ist ung hafa byrjað að fylgj­ast með feg­urð­ar­sam­keppnum og heill­uðu glam­úr­inn og glimmerið og bætir hún við að hún safni síð­kjólum.

„Stíllinn minn er bara glimmer, glimmer og glimmer. Það er ekk­ert ein­falt við stíl­inn minn. Ég er rosa­lega „bleik“ mann­eskja og á mikið af bleikum hlutum. Ég á meira að segja bleikan bíl. Allt prinsessu­legt og með glimmer er minn stíll,“ segir Elísa Gróa sem dreymdi um að verða prins­sessa þegar hún var lítil stelpa og var almennt klædd eins og prinsessa á ösku­dag­inn. „Núna er ég orðin drottn­ing,“ segir hún og hlær, „en ég fékk kór­ónu og upp­fyllti draum­inn minn frá því ég var lítil.“

Elísa Gróa er förð­un­ar­fræð­ingur að mennt og fyrir utan að vinna sem slíkur hefur hún unnið sem flug­freyja und­an­farin ár.

„Ég ætl­aði alltaf að verða flug­freyja; ég ákvað það þegar ég var níu ára gömul.“ Hún seg­ist vera í drauma­starf­inu en að hún sjái fyrir sér að vinna líka í fram­tíð­inni tengt keppnum erlendis sam­bæri­legum þeim sem hún hefur tekið þátt í; verða jafn­vel þjálf­ari eða dóm­ari.

Sjálfsvígsforvarnir

Elísa Gróa segir að sigrinum fylgi mikið pró­gramm.

„Ég svaf lítið í nótt,“ segir hún um miðjan dag dag­inn eftir þegar hún er stödd í ljós­mynda­stúd­íói.

„Ég mætti í mynda­töku í morgun og er þar ennþá og í kvöld á ég að skrifa undir samn­inga. Und­ir­bún­ing­ur­inn fyrir keppn­ina í Ísrael felst svo meðal ann­ars í að ég mun dvelja í tvær til þrjár vikur lík­lega í Banda­ríkj­unum þar sem ég mun velja föt til að keppa í auk þess sem ég mun fara á ýmis nám­skeið meðal ann­ars til að æfa mig í að ganga á sviði en það mik­il­væg­asta er að fá fræðslu og kennslu í ræðu­mennsku og hvernig maður getur orðið inn­blástur fyrir fólk og tala um mik­il­væg mál­efni. Partur af þessu er að láta gott af sér leiða og vera góð fyr­ir­mynd.“

Nýkrýnd Miss Universe Iceland segir að það mál­efni sem standi henni næst séu sjálfs­vígs­for­varnir og tal­aði hún um þau á svið­inu á meðan á keppn­inni stóð. Hún nefnir Pieta-sam­tökin.

„Ég hef verið að styrkja sam­tökin frá því þau voru stofnuð en þau bjóða upp á fría sál­fræði­þjón­ustu fyrir þá sem eru í sjálfs­vígs­hættu og stuðn­ings­hópa fyrir aðstand­endur. Mér finnst þetta vera mik­il­vægt mál­efni, sér­stak­lega núna í þessum heims­far­aldri þar sem fólki var sagt í ár eða jafn­vel meira að vera heima hjá sér en það eru ekki allir öryggir heima hjá sér. Hlutfall þeirra sem taka eigið líf hefur hækkað í heims­far­aldr­inum og mér finnst vera mik­il­vægt að tala um þetta. Fólk þarf að fá hjálp strax. Það er til dæmis hægt að hringja í Pieta allan sól­ar­hring­inn þar sem sjálf­boða­liðar og fag­að­ilar vinna. Við stelp­urnar í keppn­inni höfum verið að styrkja Pieta-sam­tökin í allt sumar og söfn­uðum yfir 100.000 krónum. Það er eitt­hvað sem er mik­il­vægt fyrir mig og ég er mjög ánægð með að stelp­urnar hafi sam­þykkt að vera með mér í þessu.“

Náinn ætt­ingi Elísu Gróu tók eigið líf á sínum tíma sem hafði auð­vitað áhrif á alla í fjöl­skyld­unni. „Eftir það sá ég hvað það þarf að tala meira um þetta og að athuga hvort and­leg heilsa þeirra sem standa manni næst sé í lagi. Þetta getur gerst allt í einu ef við­kom­andi talar ekki um líðan sína eða leitar sér ekki hjálpar. Það er ekki hægt að vita hvernig mann­eskj­unni líður þannig að mér finnst vera mik­il­vægt að tala um þessi mál.“

Vertu þú sjálf

Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum hjá nýkrýndri feg­urð­ar­drottn­ingu. Hún segir að hún hafi skamm­ast sín fyrir sjálfa sig á tíma­bili.

„Ég var þá ekki viss um að ég ætti stað í þessum heimi. Ég upp­lifði mjög dökkan kafli í lífi mínu þegar ég var 18-23 ára. Mér var oft strítt fyrir að vera „of mikið“ ef hægt er að orða það þannig. Of áber­andi. Of stelpu­leg. Of glöð. Ég þurfti ein­hvern veg­inn að tóna mig niður. Það varð til þess að ég skamm­að­ist mín fyrir per­sónu­leika minn og ég byrj­aði að ganga í svörtum fötum, sem ég geri ekki í dag, og lét lítið fyrir mér fara.

Ég komst yfir þetta með stuðn­ingi frá fólk­inu mínu og líka með því að byrja að keppa í þessum keppnum. Ég er ekki sama kona og ég var fyrir sex árum. Þessar keppnir gerðu svo mikið fyrir mig. Ég lærði að maður verður að nýta per­sónu­leika sinn og stíl og ég veit í dag að ég er alltaf mest fínt klædd alls staðar sem ég fer, ég er alltaf „over the top“. Og ég er bara búin að læra að njóta þess. Ég ætla bara að vera ég og þessar keppnir hafa hjálpað mér mjög mikið með það. Það geta ekki allir staðið á sviði í síð­kjól og hvað þá sund­fötum og verið ánægðir með lík­ama sinn og verið með sjálfs­traustið í þetta.

Það þarf rosa­lega mikið sjálfs­traust til að standa svona á sviði og hvað þá að þessu var streymt í beinni; það gátu allir séð keppn­ina hvar sem var í heim­inum. Ég hefði örugg­lega ekki getað gert þetta fyrir nokkrum árum en mér fannst þetta ekk­ert mál. Þetta var bara skemmti­legt.“

Elísa Gróa verður án efa fyr­ir­mynd ungra stúlkna í hlut­verki sínu sem Miss Universe Iceland.

„Ég hef oft hugsað út í hvað ég hefði sagt við mig sem ung­ling ef ég gæti hitt mig sem ung­ling. Stærsta ráð sem ég get gefið er: Hættu að hugsa um hvað öðrum finnst af því að líf þitt er fyrir þig. Þetta líf er svo stutt og vertu bara þú sjálf. Það skiptir ekki máli hvað allir aðrir segja eða hvað þú heldur að allir aðrir séu að hugsa um þig. Ekki gef­ast upp. Eltu drauma þína og vertu þú sjálf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina