Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Drífa Snædal forseti ASÍ: „Framganga Play er þeim til skammar“

Drífa Snædal forseti ASÍ: „Framganga Play er þeim til skammar“
Drífa Snædal.

„Þegar ég byrj­aði að vinna fyrir verka­lýðs­hreyf­ing­una þá trúði ég því varla að á íslenskum vinnu­mark­aði væru hópar sem væri búið að svipta rödd sinni, þyrðu ekki að koma fram og greina frá aðstæðum sínum og væru kúg­aðir til að vinna fyrir laun undir lág­marks­launum,“ segir Drífa Snædal for­seti ASÍ og bætir við:

„Síðan er ég reynsl­unni rík­ari og hef ítrekað hitt fólk sem hefur ekki rödd og eina vonin er að stétt­ar­fé­lögin leggi lið og ljái rödd og styrk, sem þau gera dag­lega.“

Hún segir að „það tekur hins vegar stein­inn úr þegar heilt flug­fé­lag er byggt á grunni kjara undir lág­marks­launum og býður ódýr far­gjöld á grunni þess að hafa „ódýr­ara starfs­fólk“. Þessi saga Play hefur verið rakin áður og mið­stjórn ASÍ og for­manna­fundur ályktað og hvatt til snið­göngu á félag­inu þar til það gerir rétt­mætan kjara­samn­ing. Hið svo­kall­aða stétt­ar­fé­lag sem samið var við er ekki raun­veru­legt stétt­ar­fé­lag, fólkið sem vinna átti eftir samn­ing­unum tók ekki þátt í gerð þeirra og félagið, ÍFF, er ekki sjálf­stætt frá atvinnu­rek­and­anum.“

Drífa segir að „til­raunir hafa verið gerðar til að ná alvöru kjara­samn­ingum við Play og þeim gef­inn kostur á að ganga til samn­inga við félag sem raun­veru­lega er skil­greint sem félag flug­freyja, hefur reynslu af kjara­samn­ingum og hefur sýnt það að það standi við bakið á sínum félags­mönnum þegar í harð­bakk­ann slær. Play hefur því miður ekki gripið slíkt tæki­færi.“

Bætir við:

„Nú ber svo við að síð­ustu vikur og mán­uði hef ég ítrekað fengið óskir um lið­sinni frá starfs­fólki Play og ábend­ingar um slæman aðbúnað þeirra. Mér hafa einnig borist nafn­laus bréf frá fólki sem ótt­ast afleið­ingar af því að koma fram undir nafni. Starfs­fólkið er í erf­iðri stöðu, það vill vinna við flug og hefur metnað fyrir því að nýtt flug­fé­lag geti starfað á íslenskum mark­aði. En það vill líka sann­gjörn kjör og að stétt­ar­fé­lagið starfi að hags­munum starfs­fólks­ins, ekki atvinnu­rek­end­anna. Fram­ganga Play er þeim til skammar og á meðan ekki er tekið á henni grefur það undan öllum vinnu­mark­aðnum og er ógn við rétt­indi launa­fólks almennt. Þessu máli er fjarri lokið og verka­lýðs­hreyf­ingin heldur áfram bar­átt­unni gegn aðferðum Play og fyrir rétt­indum launa­fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina