Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sigríður safnstjóri sló met í faraldrinum: „Covid var heldur betur áskorun“

Sigríður safnstjóri sló met í faraldrinum: „Covid var heldur betur áskorun“
Anna María Pitt, silf­ur­smiður í vinnu­stofu­dvöl – Ljósmynd Vigfús Birg­is­son

Íslensk hönnun hefur verið að ryðja sér til rúms síð­ustu ár og hefur verið spenn­andi að fylgj­ast með upp­gang­inum. Til okkar komu Sigríður Sigrjóns­dóttir for­stöðu­maður og Stella Stef­áns­dóttir, for­maður stjórnar, í áhuga­vert og fræð­andi spjall um hlut­verk og mögu­leika Hönn­un­ar­safns Íslands.

Safn­búðin – Ljósmynd Vigfús Birg­is­son

Á und­an­förnum árum hafa vin­sældir safns­ins auk­ist tölu­vert og saf­n­eign þess stækkað, sem þýðir að farið er að þrengja víða að húsa­kosti þess. Stella segir okkur að núver­andi hús­næði bjóði upp á mögu­leika til að stækka safnið án þess að byggja við húsið og eru

vonir bundnar við að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra taki málið föstum tökum

og ríkið fari að standa við lof­orð um stofn­fram­lag, þannig að hægt sé að bæta safnið.

Rekstur hönn­un­ar­safns­ins
Fyrsti vísir að Hönn­un­ar­safni Íslands kom til árið 1998 þegar gerður var sam­starfs­samn­ingur milli Þjóð­minja­safns Íslands, mennta­mála­ráð­herra og Garða­bæjar um sam­starf og und­ir­bún­ing að upp­bygg­ingu hönn­un­ar­safns í Garðabæ. Í des­em­ber 2006 und­ir­rit­uðu svo bæj­ar­stjór­inn í Garðabæ, mennta- og fjár­mála­ráð­herra samn­ing um Hönn­un­ar­safn Íslands þar sem Garðabær tók að sér stjórn og rekstur safns­ins. Í fram­haldi af þessu var Hönn­un­ar­safn Íslands opnað í fyrsta sinn fyrir almenn­ing.

Í samn­ingnum er kveðið á um árlegt rekstr­ar­fram­lag rík­is­ins og ákveðið stofn­fram­lag frá rík­inu sem skuli nýt­ast til upp­bygg­ingar á hús­næði. Skemmst er frá því að segja að ríkið hefur greitt árlegt rekstr­ar­fram­lag sem nýt­ist í hluta af rekstri, en Garðabær hefur séð um hús­næðið og megnið af rekstr­ar­kostn­aði safns­ins.

Skapa sam­tal og kveikja neista
Sigríður ræðir við okkur um mik­il­vægi hlut­verka safns­ins, en þau eru að safna,

Sig­ur­björn Helgason, fugla­smiður í vinnu­stofu­dvöl – Ljósmynd Vigfús Birg­is­son

skrá, rann­saka og miðla íslenskri hönnun frá alda­mót­unum 1800/1900 til dags­ins í dag. Hlut­verkið er ekki síður að skapa sam­tal, kveikja neista og varpa ljósi á verð­mæta­sköpun sem teng­ist góðri hönnun. Hönnun snýst í grunn­inn um að gera hlut­ina vel, sjá tæki­færin og lausn­irnar, en hönnun er stór hluti af menn­ing­ar­sögu okkar og mik­il­vægur hluti af fram­tíð­inni.

„Þetta gerir Hönn­un­ar­safnið að lif­andi starf­semi sem eykur vit­und, kveikir neista og skapar tæki­færi tengd íslenskri hönnun

frá árinu 1900 til fram­tíðar með því að safna, skrá og miðla. Ég tel að starf­semi síð­ustu ára hafi end­ur­speglað þetta hlut­verk með fram­úr­skar­andi og áhuga­sömu starfs­fólki, spenn­andi sýn­ingum og við­burðum, og fjöl­breyttri flóru lyk­il­hafa og gesta. Safnið hefur því sann­ar­lega verið vett­vangur fyrir líf­legt sam­fé­lag sem lætur sig þessa hluti varða. Þetta sam­fé­lag hefur tekið virkan þátt í að móta safnið og mun gera það til fram­tíðar,“ segir Stella.

Ást­hildur Magn­ús­dóttir vef­ari í vinnu­stofu­dvöl – Ljósmynd Axel Sig­urð­ar­son

Hún er einnig sam­mála Sigríði og segir: Mik­il­vægi hönn­unar fer vax­andi og hefur jákvæð áhrif á sam­keppn­is­hæfni þjóða. Það er óum­deil­an­legt að nýsköpun er býsna mik­il­væg. Fyr­ir­tæki sem fjár­festa í hönnun eru lík­legri til geta af sér öfl­ugri nýsköpun, skapa meiri tekjur og vaxa hraðar.“

Hönn­un­ar­safn Íslands er sam­eig­in­leg minn­ing Íslend­inga um íslenska hönnun og end­ur­speglar hönn­un­ar­arf þjóð­ar­innar. Það er mik­il­vægt að varð­veita og rann­saka þann hönn­un­ar­arf fyrir kom­andi kyn­slóðir.

„Ég held að með því að miðla hönn­un­ar­arfi til barna og ung­menna geti það til fram­tíðar veitt hönn­uðum fram­tíð­ar­innar inn­blástur sem sækir anda­gift í íslenskan hönn­un­ar­arf,“ segir Stella.

Safnið sam­anstendur í dag af fimm rýmum sem hvert hefur sitt hlut­verk:

  • Í and­dyri safns­ins er gesta­vinnu­stofa þar sem hönn­uðir og hand­verks­fólk hefur vinnu- sýn­ingar- og sölu­að­stöðu. Vinnu­stofan er hluti af safn­búð­inni og gefur mögu­leika á sam­tali milli gesta safns­ins og hönn­uð­anna. Fyr­ir­komu­lagið lífgar upp á safn­um­hverfið og gefur inn­sýn í aðferð­ar­fræði og störf hönn­uða.
  • Í safn­búð­inni má finna hönn­un­ar­vöru eftir um 30 íslenska hönn­uði, auk úrvals bóka. Vörurnar tengj­ast starf­semi safns­ins, sýningum, gesta­vinnu­stofu og saf­n­eign­inni.
  • Á efri hæð safns­ins er salur til­eink­aður rann­sóknum og skrán­ingu sem alla jafna fer ekki fram fyrir opnum tjöldum á söfnum. Þetta rými er vana­lega kalla Safnið á röng­unni og það er alltaf eitt­hvað áhuga­vert í gangi þar.
  • Síðast en ekki síst er það sýn­ing­ar­salur safns­ins þar sem nú stendur yfir sýn­ing á verkum Krist­ínar Þor­kels­dóttur sem er mik­il­vægur frum­kvöð­ull í graf­ískri hönnun á Íslandi.
  • En loks er svo að mynd­ast nýtt rými sem heitir Smiðjan þar sem tekið er á móti skóla­hópum og almenn­ingi og boðið upp á smiðjur í tengslum við sýn­ingar safns­ins.

Síðustu mán­uði hefur Sig­mundur Páll Frey­steins­son fata­hönn­uður dvalið á safn­inu við rann­sókn sem ber heitið Nátt­úru­litun í nútíma sam­hengi.

Í októ­ber tekur safnið fram teikn­ingar eftir Högnu Sig­urð­ar­dóttur arki­tekt sem bár­ust frá fjöl­skyldu Högnu í París og þarf að fara yfir og skrá. Þannig að alltaf eru fjöl­margir spenn­andi við­burðir og sýn­ingar á safn­inu allt árið um kring.

Stella telur að ávinn­ingur af stað­setn­ingu safns­ins í Garðabæ sé gagn­kvæmur.

Grunn­skóla­heim­sókn á sýn­ing­una 100% Ull – Ljósmynd Hönn­un­ar­safn Íslands

„Auk meg­in­hlut­verks safns­ins sem Sigríður nefnir þá skiptir ekki síður máli fyrir söfn að mennta, upp­fræða, taka þátt í og móta sam­fé­lag. Ég tel að það sé fengur að Hönn­un­ar­safni Íslands hafi verið einmitt verið val­inn staður í Garðabæ og að sveit­ar­fé­lagið hafi verið til­búið að fóstra safnið. Í dag er safnið einn af horn­steinum nær­sam­fé­lags­ins og líf­legrar flóru menn­ingar og mann­lífs, þjón­ustu og versl­unar á Garða­torgi.

Safnið verður sífellt vin­sælli áning­ar­staður Garð­bæ­inga á rölti um bæinn sinn.“

Hönn­un­ar­safnið er barn­vænt safn og tekur á móti vax­andi fjölda nem­enda ár hvert, en stór hluti starf­semi safns­ins miðar að þessum hópi.

Stærð­fræði­borð fyrir ungt fólk á öllum aldri til­einkað Einari Þor­steini – Ljósmynd Hönn­un­ar­safn Íslands

Söfn eru til­val­inn vett­vangur fyrir börn og ung­menni til að læra og afla sér þekk­ingar. Oft veita söfn inn­sýn í heim sem ekki er gerð ítar­leg skil í skólum eða ann­ars staðar. Heim­sóknir barna og ung­menna á söfn geta skilað marg­vís­legum ávinn­ingi.

Á Hönn­un­ar­safn­inu hefur verið lögð áhersla á að vekja áhuga, auka vit­und og for­vitni barna og ung­menna á hönnun. Í heim­sókn í safnið geta börn og ung­menni kannað nýja þekk­ingu á sviði hönn­unar og svalað for­vitni á eigin for­sendum. Þetta getur örvað sköpun, gagn­rýna hugsun og skapað nýjar teng­ingar við heim­inn í kringum þau.

Aukin áhersla hefur verið lögð á safna­fræðslu í Hönn­un­ar­safn­inu. Á síð­asta ári tók til starfa menn­ing­ar­full­trúi hjá Garðabæ, Ólöf Breið­fjörð. Í sam­starfi við safnið hefur menn­ing­ar­full­trúi þróað fræðslu­heim­sóknir fyrir börn á grunn­skóla­aldri þar sem börnum er boðið upp á sér­hann­aða leið­sögn um sýn­ingar safns­ins og í fram­haldi verk­efni í smiðj­unni sem teng­ist efni­við sýn­ing­anna. Ólöf heldur utan um sam­skipti við skól­ana. Þá hefur safnið tekið þátt í Barna­menn­ing­ar­há­tíð Garða­bæjar og verið ötult við að bjóða upp á við­burði, afþr­ey­ingu, örnám­skeið sem og lengri nám­skeið fyrir börn og ung­menni, m.a. í gegnum Hönn­un­ar­skóla Íslands sem safnið starf­rækir.

Hönn­un­ar­skól­inn tók til starfa árið 2019 og býður upp á nám­skeið fyrir ung­linga þar sem þeir fá inn­sýn í ýmiss konar hönnun undir hand­leiðslu fag­fólks, s.s. arki­tekta, spila­hönn­uða og fata­hönn­uða.

„Árið 2020 tók safnið svo í notkun nýtt rými, Smiðjuna sem Sigríður nefnir, sem m.a. hefur verið nýtt fyrir safna­fræðslu, nám­skeið og smiðjur fyrir börn og ung­menni.

Á árinu var stærð­fræði­þrauta­borð, byggt á hug­verki Einars Þor­steins arki­tekts, vígt í safn­inu og er stað­sett í Smiðj­unni.“

Ekki kjörað­stæður fyrir lif­andi safn
Síðustu þrjú ár hafa farið í að glæða safnið lífi. Á virkum dögum er fjöldi starfs­manna tveir til þrír, á víð og dreif í 1.400 fer­metra hús­næði, þar af er um 800 fer­metra geymslu­rými.

Ást­hildur Magn­ús­dóttir vef­ari í vinnu­stofu­dvöl – Ljósmynd Axel Sig­urð­ar­son

Sigríður segir: „Þetta eru ekki kjörað­stæður fyrir lif­andi safn. Við þurfum að fá fleira fólk og verk­efni í hús, ein­ungis þannig verður til sam­tal og líf. Lausnin fólst í því að bjóða fólki sem teng­ist við­fangs­efnum safns­ins „lykla“ að safn­inu svo það gæti starfað hér að sínum við­fangs­efnum í sam­stafi við safnið. Gesta­vinnu­stofan og rann­sókn­ar­rýmið eru hluti af þess­ari lausn auk þess sem aðrir fræði­menn hafa fengið vinnu­að­stöðu í skrif­stofu­rými  safns­ins.“

Þegar Covid skall á gafst svig­rúm til þess að rýna í staf­ræn rými safns­ins og hvernig þau gætu best end­ur­speglað og bætt við það sem er að ger­ast í safn­hús­inu. Þessi vinna hefur meðal ann­ars skilað sér í því að á síð­asta ári voru hátt í 30.000 gestir sem fylgd­ust með hægvarpi úr vinnu­stofu hönn­uða, fyr­ir­lestrum, smiðjum, sýn­ingum á Facebook og fleira sem boðið var upp á í raf­rænum rýmum safns­ins.

„En Covid var heldur betur áskorun, hvernig getur safn verið lif­andi þegar það er lokað, en við höfum í raun aldrei fengið fleiri gesti, þeir komu í gegnum staf­ræn rými safns­ins,“

sagði Sigríður okkur.

Ánægju­legt er að sjá hvað sveit­ar­fé­lagið Garðabær hefur mik­inn metnað fyrir hönd Hönn­un­ar­safn­ins.

„Eins og áður segir er fyr­ir­hugað að skoða mögu­leika á að stækka og bæta núver­andi húsa­kost Hönn­un­ar­safns­ins á Garða­torgi. Breyt­ingin myndi gefa kost á betra flæði á safn­inu, að sett yrði upp var­an­leg, föst sýn­ing og varð­veislu­rými safns­ins bætt. Allt eru þetta brýn verk­efni og myndu auka veg og virð­ingu safns­ins til fram­tíðar. Grund­völlur að þessum úrbótum er að ná samn­ingum við mennta- og fjár­mála­ráð­herra um efndir rík­is­ins,“ segir Stella að lokum.

Hægt er að fræð­ast betur um safnið á vef­síðu þess eða koma við á safnið sem er opið alla daga kl. 12–17, nema mánu­daga.

Smelltu hér til að lesa brak­andi og feskt helg­ar­blað Mannlífs eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina