Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jón Óðinn fékk til sín mikið af fólki sem leið illa: „Kerfið uppteknara af refsingu en hjálp”

Jón Óðinn fékk til sín mikið af fólki sem leið illa: „Kerfið uppteknara af refsingu en hjálp”

„Ég held að þessi Covidfaraldur hafi sýnt okkur ræki­lega hvaða störf skipta máli. Það þarf nýjan sam­fé­lags­sátt­mála þar sem vinna með fólk eru metin hærra en þeirra sem braska með pen­inga,” segir Jón Óðinn Waage fyrr­ver­andi lög­reglu­maður og júd­ó­þjálf­ari til 32 ára.

Jón Óðinn hefur getið sér nafn fyrir afar hnittna og skemmti­lega pistla sem skjóta föstum skotum og er hann óhræddur við að segja sínar skoð­anir. Hann hefur verið búsettur í Svíþjóð síðan haustið 2015.

„Ég var einn af þeim sem fór illa út úr Hruninu. Ég eign­að­ist hús árið 2006 og tók 65% lán. Mín 35% hurfu svo á næstu þremur árum og hjóna­bandið líka. Síðar tók ég ég saman við aðra konu sem var að koma úr alveg eins pakka.”

Þau þrauk­uðu í fjögur ár með fimm börn á grunn­skóla­aldri. Lífið var hvert leigu­hús­næðið á fætur öðru. „Árið 2015 vorum við búin að fá nóg af þessu. Konan mín er kenn­ari og gull­smiður og hafði menntað sig í Svíþjóð. Svo það lá eðli­lega við að við flyttum þangað.”

Jón Óðinn starfar í dag í grunn­skóla. „Ég sé um hóp af krökkum sem allir eru búnir að gef­ast upp á. Þetta eru frá­bærir krakkar en þau passa bara ekki inn í skóla­kerfið sem mis­kunn­ar­laust hefur níðst á þeim.

Ég byrj­aði til dæmis með einn þrettán ára gutta sem var sagður hættu­legur. Í dag er hann 18 ára og einn af mínum bestu vinum. Á þessum fimm árum sem ég hef unnið við þetta, hef ég unnið með í kringum þrjá­tíu ein­stak­lingum sem öll hafa kennt mér meira en ég þeim.”

Sem júd­ó­þjálf­ari á Íslandi fékk Jón Óðinn til sín mikið af ein­stak­lingum sem ekki leið vel. „Mér fannst kerfið oft upp­tekn­ara af refs­ingu heldur en hjálp. Og því miður er ég að upp­lifa svip­aða hluti hér í Svíþjóð.”

Aðspurður um mesta mun­inn á að búa í Svíþjóð og á Íslandi segir Jón Óðinn það ekki vera spuningu. „Það er efna­hag­ur­inn. Hér lækka lánin við hverja afborgun. Ég hef reynt að útskýra verð­trygg­ingu fyrir Svíum en þeir eiga erfitt með að skilja hana og trúa mér tæp­lega. Það er líka flest ódýr­ara hér.” Jón Óðinn segir að öðru leiti ekki mikin mun á þessum sam­fé­lögum. „Fólk er almennt ólíkt og ef maður kemur vel fram við aðra fær maður yfir­leitt það sama til baka.

Mín kenn­ing er sú að það hafi orðið stórt sið­rof á Íslandi í kringum 2002 og landið sé að fást við afleið­ingar þess núna. Afleið­ing­arnar birt­ast yfir­leitt í því hvað sam­fé­lags­um­ræðan er orðin ill­rætt og svæsin. Það er sárt að fylgj­ast með því.”

Jón Óðinn telur að Covid far­ald­ur­inn hafi sýnt fólki ræki­lega hvaða störf skipti máli. „Fólk þarf að hætta að láta ómerki­lega tæki­fær­is­sinna og hags­muna­potara etja almenn­ingi gegn hvor öðrum.” Hann segir að þar sé hann að vísa til stjón­mála­manna og tals­manna hinna ýmsu sam­taka. „Það er ekk­ert að því að ganga vel í við­skiptum og reyndar nauð­syn­legt fyrir hvert sam­fé­lag. En það þarf að vera með raun­veru­legri fram­legð og sam­fé­lags­legri ábyrgð.”

Sjálfur er Jón Óðinn nýstig­inn upp úr Covid. Hann tók veik­indin út heima hjá sér af hörkunni af íslenskum sið. „Þetta var þriggja vikna orku­leysi, hjarta­verkur, höf­uð­verkur og önd­un­ar­erf­ið­leikar. Það kom þó eitt­hvað út úr þessu þar sem allt bragð­að­ist eins og mold svo ég lagði hell­ing af.”

Hvað telur Jón Óðinn að við þurfum að gera til að skapa betra og rétt­lát­ara sam­fé­lag? „Ég trúi því í ein­lægni að lyk­il­orðið að betri heimi sé sam­kennd. Við þurfum öll, hvert og eitt, að líta inn á við og finna til sam­kenndar. Ef við gerum það komum við betur fram við hvort annað og verðum öll bæði glað­ari og ham­ingju­sam­ari. Voða væmið, en samt satt,” segir Jón Óðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina