Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ívar Guðmunds missti föður sinn aðeins 12 ára gamall – Drakk lengi vel tvo lítra af kóki daglega

Ívar Guðmunds missti föður sinn aðeins 12 ára gamall – Drakk lengi vel tvo lítra af kóki daglega

Útvarps­mað­ur­inn og hreysti­mennið Ívar Guð­munds­son var undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.

Ívar hefur löngum verið tals­maður heil­brigðs lífs­stíls og hreyf­ingar og hefur unnið að mark­aðs­setn­ingu á ýmsum heilsu­vöru. Og skal engan undra, því Ívar á að baki marga Íslands­meist­aratitla úr knatt­spyrnu og einnig fjöl­marga verð­launa­pen­inga eftir þátt­töku á ell­efu fit­ness­mótum, ásamt því að vera einka­þjálf­ari. Svo óhætt er að segja að kapp­inn sé upp­fullur fróð­leiks um heil­brigðan lífs­stíl.

Mannlíf komst þó að því að Ívar hefur ekki alltaf verið svona heilsu­sam­legur, því lengi vel drakk hann tvo lítra af kóki á dag. Mannlíf komst einnig að því að Ívar sér eftir því að hafa ekki reynt að verða atvinnu­maður í fót­bolta og segir hann mik­il­væg­ast í líf­inu að vera góð mann­eskja og koma vel fram við alla.

Fjöl­skyldu­hagir? Giftur Dagnýju Dögg Bær­ings­dóttur og saman telja börnin okkar fimm.

Menntun/atvinna? Grunn­skóla­próf, er Dag­skrár­stjóri Bylgj­unnar og Dag­skrár­gerð­ar­maður líka.

Upp­á­halds sjón­varps­efni? Um þessar mundir er það spurn­inga­þátt­ur­inn Kviss sem Björn Bragi stýrir.

Leikari? Anthony Hopkins og Julia Roberts eru í mestu upp­á­haldi hjá mér.

Rit­höf­undur? Stefán Máni er minn upp­á­halds.

Bók eða bíó? Fer miklu meira í bíó en að opna bók.

Besti matur? Nauta­lund frá Sæl­kera­búð­inni sem við höfum haft nán­ast alla laug­ar­daga frá því að covid fór af stað.

Kók eða Pepsí? Coke en drekk lítið af því í dag, drakk svona 2 lítra á dag í mörg ár.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Snæ­fells­nes er í miklu upp­á­haldi og Snæ­fells­jök­ull stendur þar efst.

Hvað er skemmti­legt? Þegar við konan tökum okkur til og förum út á land, stundum til að ganga á skemmti­lega staði og stundum á hótel til að njóta.

Hvað er leið­in­legt? Hef hætt að láta mér finn­ast hlutir leið­in­legir, en ég er lít­ill funda­maður.

Hvaða flokkur? XD.

Hvaða skemmti­staður? Myndi segja Græni Hatt­ur­inn á Akureyri. Sem er þó kannski meira tón­leika­staður, en frá­bært að koma þangað.

Kostir? Jákvæðni og ég er bón­góður 😊

Lestir? Ekki hand­lag­inn og óþol­in­móður, hef þó lag­ast með óþol­in­mæði hin síð­ari ár.

Hver er fynd­inn? Ari Eldjárn og konan mín 😊

Hver er leið­in­legur? Reyni að umgang­ast ekki leið­in­legt fólk, en Donald Trump kemur upp í huga.

Trúir þú á drauga? Nei en í minn­ingu frá barn­æsku man ég eftir að halda að ég hafi séð draug í sveit­inni út í myrkr­inu, var svaka hræddur þá.

Stærsta augna­blikið? Fæðing barna minna er þar efst.

Mestu von­brigðin? Að hafa ekki reynt að verða atvinnu­maður í knatt­spyrnu.

Hver er draum­ur­inn? Er pínu að upp­lifa minn draum, vinna í útvarpi var alltaf draumur og eiga góða fjöl­skyldu.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að halda sæmi­legri geð­heilsu í covid lok­unum 😊 

Ertu búinn að ná öllum þínum mark­miðum? Maður setur sér alltaf ný mark­mið þegar maður nær þeim sem maður setur sér, svo nei

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Afhverju klifraði Elli yfir gler­vegg­inn? Til að sjá hvað er hinum megin 😉

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Henda þvotta­vél­inni, en kom­ast svo að því sama kvöld að hún var full af verð­mætum þvotti. Ég hringdi í stöðv­ar­stjóra Sorpu kl 8.30 að kvöldi og bar mig illa, hann stökk til og hitti mig niður í Sorpu. Við fundum þvotta­vél­ina og ég náði í þvott­inn, hægt að hlæja að þessu í dag.

Sorg­leg­asta stundin? Föð­ur­missir 1978.

Mesta gleðin? Mörg gleði­augna­blik en efst í huga er brúð­kaup okkar Dagnýjar 29.júní 2019.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Vera góð mann­eskja og koma vel fram við alla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina