Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Vilhjálmur: „Vaxtahækkanir eru eignarfærsla frá skuldsettum heimilum yfir til fjármálakerfisins“

Vilhjálmur: „Vaxtahækkanir eru eignarfærsla frá skuldsettum heimilum yfir til fjármálakerfisins“

„Nú hefur þriðja stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans litið dags­ins ljós en á nokkrum mán­uðum hafa stýri­vextir bank­ans hækkað úr 0,75 pró­sentum í 1,5 pró­sent,“ segir Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness og bætir við:

„Það liggur fyrir að svona vaxta­hækkun þegar hún hefur skilað sér út að fullu hefur mikil áhrif á hag og ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­il­anna. Í því sam­hengi er rétt að vekja athygli á því sem fram kemur í Tíund blaði frá rík­is­skatt­stjóra að íslensk heim­ili og ein­stak­lingar skuld­uðu 2.266 millj­arða króna árið 2019. Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að almenn­ingur átti sig á því að vaxta­hækk­anir eru ekk­ert annað en eign­ar­færsla frá skuld­settum heim­ilum yfir til fjár­mála­kerf­is­ins og 0,75% vaxta­hækkun þýðir eign­ar­til­færslu sem nemur tæpum 17 millj­örðum á ári þegar og ef öll stýri­vaxta­hækk­unin skilar sér í formi hækk­unar á vöxtum fjár­mála­kerf­is­ins.“

Vil­hjálmur segir að „ástæðan fyrir þess­ari vaxta­hækkun er vegna auk­innar verð­bólgu en 12 mán­aða verð­bólgan í dag er 4,4% en takið eftir að verð­bólgan án hús­næð­isliðar í vísi­töl­unni er ein­ungis 2,9%. Það liggur fyrir að ástæða fyrir mik­illi hækkun hús­næð­is­verðs sem rekja má til trega sveit­ar­fé­lag­anna til að úthluta lóðum sem hefur leitt til fram­boðs­skorts. Það und­ar­lega í þessu er að við hækkun á fast­eigna­verði skap­ast sjálf­krafa hækkun á fast­eigna­gjöldum sem sveit­ar­fé­lögin fá. Með öðrum orðum lóða­skortur sem leiðir til hækk­unar á fast­eigna­verði skilar sveita­fé­lög­unum umtals­vert auknum tekjum og því má segja að sveit­ar­fé­lögin hafi nán­ast hvata til að við­halda lóða­skorti til að ýta undir hækkun á fast­eigna­verði enda skilar það þeim hærri fast­eigna­gjöldum eins og áður sagði.“

Vil­hjálmur bendir á að „nú segir Seðla­banka­stjóri að stýri­vaxta­hækkun sé stýri­tæki sem þeir beita m.a til að draga úr einka­neyslu til að ná niður verð­bólgu. Það má vera rétt, en er nauð­syn­legt að gera það með því að ástunda mis­kunn­ar­lausa eigna­til­færslu frá skuld­settum heim­ilum yfir til fjár­mála­kerf­is­ins. Getum við tekið upp nýtt fyr­ir­komu­lag sem Seðla­bank­inn hefði til að draga úr einka­neyslu almenn­ings til að ná verð­bólgu niður. Mitt mat er, já það er svo sann­ar­lega hægt að gera án þess að fjár­magn renni ekki í millj­arða vís í hvert sinn sem stýri­vextir eru hækk­aðir til fjár­magns­eig­enda. Ég tel að það eigi að breyta þessu þannig að ekki sé verið að draga úr einka­neyslu almenn­ings með þeim hætti að flytja jafn­vel 16 millj­arða frá heim­il­unum eins og þessar vaxta­hækk­anir munu leiða af sér. Það væri miklu skyn­sam­legra að breyta þessu þannig að Seðla­bank­inn hefði heim­ild til að hækka fram­lag í sér­eigna­sjóði af launa­tekjum til að draga tíma­bundið úr einka­neyslu.“

Vil­hjálmur segir það vera ljóst að meiri sátt myndi ríkja um það „ef Seðla­bank­inn hefði heim­ild til að gefa það út að allt launa­fólk myndi t.d auka fram­lag sitt tíma­bundið í sér­eigna­sjóð um 0,75% af sínum heild­ar­launum til að slá tíma­bundið á einka­neysl­una. Upphæðin færi inn á sér­eigna­reikn­ing við­kom­andi launa­manns, en með því væri ekki verið að færa millj­arða frá almenn­ingi yfir til fjár­mála­kerf­is­ins heldur inn á reikn­ing hjá ein­stak­lingum sem myndi draga úr einka­neyslu. Fjár­mun­irnir væru eftir sem áður eign fólks­ins.“

Vil­hjálmur spyr „hvaða sann­girni er í því að það séu bara skuld­sett heim­ili og fyr­ir­tæki sem verða fyrir barð­inu á vaxta­hækk­unum sem á að draga úr einka­neyslu en þeir sem skuld­lausir eru leggja ekk­ert til mál­anna við að ná verð­bólg­unni niður.

Ég tel það í það minnsta frá­leitt að verið sé að færa millj­arða til fjár­mála­kerf­is­ins þegar það liggur fyrir að hægt væri að finna önnur stýri­tæki til að draga úr einka­neyslu almenn­ings án þess að verið sé að færa millj­arða frá þeim yfir til fjár­mála­el­ít­unnar.“

Hann bendir á að „það er morg­un­ljóst að þessi leið myndi tryggja að ekki sé ástunduð grimmi­leg eign­ar­til­færsla frá skuld­settum heim­ilum yfir til fjár­mála­kerf­is­ins í skjóli þess að draga þurfi tíma­bundið úr einka­neyslu almenn­ings­ins til að kveða niður verð­bólg­una.

Eina sem þarf til að breyta þessu er kjarkur, vilji og þor, en að sjálf­sögðu mun fjár­mála­el­ítan leggj­ast gegn svona hug­myndum þar sem komið yrði í veg fyrir að fjár­mála­kerfið myndi fá að vaða ofan í vasa vinn­andi fólks og skuld­settra heim­ila með skítugum krumlum sínum í hvert sinn og Seðla­bank­inn ákveður að hækka stýri­vext­ina.

Finnum nýja leið til þess þar sem hags­munir launa­fólks og heim­il­anna verða hafðir í for­grunni en ekki enn og aftur hags­munir fjár­mála­el­ít­unnar eins og núver­andi fyr­ir­komu­lag kveður á um.

Munum að þetta fyr­ir­komu­lag Seðla­bank­ans um að draga úr einka­neyslu launa­fólks til að ná niður verð­bólgu er ekk­ert nátt­úru­lög­mál heldur mann­anna verk sem auð­veld­lega er hægt að breyta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við