Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fanney lamaðist í skíðaslysi: „Kom aldrei upp sú hugsun að ég gæti mögulega endað í hjólastól“

Fanney lamaðist í skíðaslysi: „Kom aldrei upp sú hugsun að ég gæti mögulega endað í hjólastól“

Fanney Þorbjörg Guð­munds­dóttir lam­að­ist í alvar­legu skíða­slysi í Noregi árið 2011.

Fanney er í ein­lægu við­tali við Vísi í dag, þar sem hún fer yfir lífið hingað til, slysið og end­ur­hæf­ing­una sem tók við, en það varð strax ljóst á sínum tíma að bata­ferli Fann­eyjar ætti eftir að verða langt og strangt. Hún hafði æft skíði frá barn­æsku og var afreks­kona með bjarta fram­tíð í íþrótt­inni.

Slysið varð um jólin árið 2011, en fjöl­skylda Fann­eyjar hafði ákveðið að halda jólin saman í Noregi. Þau eru öll mikið skíða­fólk og þennan dag héldu þau öll saman í brekk­una. Það var hins­vegar í fjórðu eða fimmtu ferð sem skíði Fann­eyjar gripu fast í og hún kastað­ist upp í loftið og lenti á bak­inu.

Hún rann á bak­inu nokkra vega­lengd niður brekk­una og skall að lokum á tré.

„Ég hafði lent á tré og fæ högg á höf­uðið og við það högg háls­brotna ég. Það kemur skilj­an­lega panikk á fólkið í kringum mig en ég var mjög slök allan tím­ann. Ég fann þó strax fyrir því að ég gat ekki hreyft mig en ég var ekki mikið að hugsa um það því ég átti erfitt með að anda og það var það eina sem ég hugs­aði um á þessum tíma­punkti. Að anda sem var þó ein­ungis heldur grunn öndun.“

„Ég man ótrú­lega vel eftir því af því að lík­am­inn fer bara í svona ‘sur­vi­val mode’ þegar maður lendir í svona.“

„Pabbi stóð yfir mér og var að spyrja mig alls­konar spurn­inga. Eftir nokkrar spurn­ingar frá honum svar­aði ég honum höstug­lega að ég gæti ekki hreyft mig, ég gat ekki hugsað um neitt annað en að anda. Þá hætti hann að spyrja.“

Fanney var flutt beint á sjúkra­hús í Osló.

„Ég fór í svona röntgen skanna til að athuga brot og maður þarf að liggja alveg kyrr í skann­anum. Ég hugs­aði um það allan tím­ann að hreyfa mig alls ekki en var samt lömuð og hefði ekki geta gert það þó ég vildi. Það er svo­lítið fyndið að hugsa um það núna.“

„Eins og einhver engill hefði kallað á hann til mín“

Fanney náði að hreyfa tærnar örlítið og for­eldrar hennar sögðu það vera bestu jóla­gjöf sem þau gætu nokkurn tíma fengið. Fjórum dögum eftir slysið fór Fanney í aðgerð, en þegar hún vakn­aði eftir aðgerð­ina fór raun­veru­leik­inn að síast inn.

„Ég man að ég vakn­aði eldsnemma þann 28. des­em­ber og þá var svona fyrsta sinn sem ég fatt­aði raun­veru­lega í hvaða stöðu ég væri. Ég var búin að liggja í ein­hvern tíma, ein með mínum hugs­unum, þegar pabbi kemur inn og ég man að ég hugs­aði að það var eins og ein­hver eng­ill hefði kallað á hann til mín! Ég var alveg að brotna niður og þá kemur minn helsti klettur labbandi inn á hár­réttum tíma­punkti.“

„Við förum að ræða aðstæð­urnar sem ég var í og í hverju ég lenti. Það eina sem ég gat gert var að tala og ég brotna alveg niður og sagði við pabba að ég myndi aldrei geta hlaupið jafn hratt og ég hefði gert áður. Þá sagði hann jú! Þú munt hlaupa miklu hraðar.“

„Hugs­un­ar­hátt­ur­inn var á svo réttum stað hjá fólk­inu í kringum mig. Í gegnum allt ferlið voru allir að peppa mig. Einhvern veg­inn kom aldrei upp sú hugsun að ég gæti mögu­lega endað í hjóla­stól. Ég hafði trú á því að ég myndi ná mér, vissi ekki hversu vel en hafði alltaf trú á bata.“

Varð að leggja sig eftir að hafa gengið 10 skref

Eftir slysið varð Fanney að læra að gera allt upp á nýtt. Það varð hins­vegar fljót­lega ljóst að bar­áttu­andi hennar var mik­ill og jákvæðni hennar smit­aði út frá sér. Hún var alltaf til­búin til að takast á við þau verk­efni sem henni voru sett fyrir á spít­al­anum og var ólm í að bæta sig frá degi til dags. End­ur­hæf­ingin tók hins­vegar mikið á og fyrst um sinn varð hún að leggja sig eftir að hafa gengið 10 skref. Fyrstu skrefin eftir slysið tók hún 14. jan­úar.

Metnaður Fann­eyjar í skíða­í­þrótt­inni kom henni vel í bata­ferl­inu, því hún sýndi sama keppn­is­skap þar og nálg­að­ist batann skipu­lega, setti sér mark­mið og vann mark­visst að þeim.

Fanneyju þótti erfitt að þurfa að treysta á aðra með allt eftir slysið og upp­lifði sig ber­skjald­aða. Hún var þó ákveðin í að vera opin með hlut­ina og skríða ekki inn í skel.

„Ég hefði getað ákveðið að lífið væri ömur­legt en ég var bara mjög til­búin til að berj­ast og halda áfram. Ég hélt ekki van­líðan fyrir sjálfa mig og ég ræddi málið og fékk pepp frá mínum nán­ustu og þannig liðu dag­arnir. Þegar ég fann að bata­ferlið var að ganga vel tók ég ákvörðun um að setja mig alls ekki inn í bóm­ull. Ég ætl­aði bara að halda áfram og gera allt sem mér fannst skemmti­legt, ekki að þora ekki að gera hluti sem ég gerði áður, eins og að fara á hest­bak, skíði og æfa fót­bolta.“

„Mark­miðið var alltaf að kom­ast á þann stað sem ég var á áður en ég lenti í slys­inu. Ég var hrædd­ari við að geta ekki gert alla þessa hluti sem mér fannst svo ótrú­lega skemmti­legt að gera heldur en að gera þá. Það var aldrei hik hjá mér að halda áfram út af því að ég hafði lent í þessu. Til­finn­ingin þegar ég náði að gera eitt­hvað sem ég gat ekki áður var bara eins og að sigra heim­inn. Allt varð rosa­lega hyper til­finn­ing. Ef maður náði mark­miðum var það sjö þús­und sinnum betra en að ná mark­miðum á skíðum áður fyrr.“

Endaði í efstu deild í fótbolta og hljóp Laugarveginn

Þrátt fyrir að Fanney gæti aldrei átt aft­ur­kvæmt sem afreks­kona á skíðum lét hún það ekki stöðva sig í að æfa aðrar íþróttir. Svo fór að þegar Fanney hafði náð nægi­legri heilsu og árangri í end­ur­hæf­ingu fór hún að spila fót­bolta. Á end­anum var hún farin að spila með Þrótti í efstu deild.

„Mig lang­aði svo að taka þátt í að vera í liðs­heild­inni og æfa með vin­konum mínum. Ég þráði svo mikið að vera með og geta verið á sama stað og fyrir slysið. Svo hélt ég áfram að æfa og end­aði á að spila með Þrótti í efstu deild. Ég var alltaf mjög ákveðin í því að kom­ast þangað. Ég ætl­aði ekki að vera bara með.“

Eftir að Fanney varð móðir, fyrir tveimur árum, fór hún að stunda úti­hlaup. Í sumar tók hún svo þátt í Laug­ar­vegs­hlaup­inu og kláraði það á sex og hálfum tíma.

Í dag finnst Fanneyju hún geta allt. Eftir allt bata­ferlið og end­ur­hæf­ing­una, þvert á verstu hrakspár, sé hún stödd þar sem hún er. Hún nýtir eigin reynslu meðal ann­ars til að hvetja aðra og hjálpa þeim:

„Það peppar mig mjög mikið að peppa aðra. Mér finnst svo gaman að sjá fólk gera eitt­hvað sem þau trúðu ekki að þau gætu gert.“

Hér má lesa við­tal Vísis í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina