Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðni Ágústsson í Mannlífinu: „Nú er ég kominn með dauðann í skrokkinn.“

Guðni Ágústsson í Mannlífinu: „Nú er ég kominn með dauðann í skrokkinn.“
Guðni Ágústs­son. Mynd / Skjáskot RÚV.

Guðni Ágústs­son, fyrrum ráð­herra, alþing­is­maður og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, var gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varp­inu Mann­lífið á dög­unum.

Guðni hefur þurft að taka heilsu sína í gegn, en fyrir nokkrum árum greind­ist hann með syk­ur­sýki 2. Guðna var veru­lega brugðið þegar hann fékk grein­ing­una.

Ég var nú svona feitur skrokkur orð­inn, stjórn­mála­maður sem hafði fitnað mjög á því tíma­bili. Ég man eftir því þegar ég var að verða þing­maður og faðir minn var að deyja, Ágúst á Brúna­stöðum, sem þekkti þetta á eigin skinni. Þá lá hann sína bana­legu þegar ég var vara­maður inni á þingi 1986. Ég kem til föður míns, með Þráin Valdi­mars­son. Margrét er þar og fullt af fólki. Ég er búinn að vinna próf­kjör.

Þráinn segir við Ágúst, sem er mjög veikur þegar þetta var en and­lega heill: „Ágúst minn, nú er hann bara að verða þing­maður, strák­ur­inn. Hvernig líst þér á það?“

„Hann klórar sig fram úr því,“ segir faðir minn. „Hann klórar sig fram úr því, en ég hef bara áhyggjur af öðru,“ með sinni djúpu, miklu rödd. Helmingi dýpri en mín og hljómmeiri. Það setur alla hljóða og Þráinn segir: „Hverju hef­urðu áhyggjur af Ágúst minn?“

„Ég hef bara áhyggjur af því að hann verði of feitur!“ Svo tekur hann í hend­ina á Margréti og segir: „Margrét mín. Sjáðu nú um það að halda í við hann í mat og drykk.“

Síðustu skila­boðin. Ég varð samt 105 kíló. Ég gleymdi þarna bara síð­ustu ráð­legg­ingum föður míns. Verð þetta þungur. Svo þegar ég er hættur þing­mennsku og er enn þetta þungur.. það var svona árátta hjá mönnum að stjórn­mála­menn ættu að vera stórir og feitir og dimm­radd­aðir. Ég hafði dimmu rödd­ina og allt til að bera þannig.

Þá kemur það í ljós að á næsta stigi, segja lækn­arnir, er syk­ur­sýki.

Ég fer beint í vin minn og jafn­aldra, Kára Stef­áns­son – við erum fæddir með þriggja daga milli­bili – og segi: „Kári, nú er ég kom­inn með dauð­ann í skrokk­inn. Syk­ur­sýki.“

„Syk­ur­sýki! Þú getur læknað þig af því, hel­vítis aum­ing­inn þinn,“ segir hann. „Þú þarft ekki læknis við. Hættu í sykrinum, éttu minna og grenntu þig. Farðu út að ganga.“

Ég gerði ekk­ert annað en að taka út syk­ur­inn, sæl­gætis, gosið, bjór­inn.. allt varð þetta að fara. Á nokkrum árum létt­ist ég niður fyrir 90 kíló.

Margrét nátt­úru­lega vakti við hrot­urnar, eins og svona fal­lega músík á nótt­unni. Nú losn­aði hún við þær. Ég létt­ist og það er allt annar svefn. Ég sef eins og barn. Ég fer út að ganga og fór í World Class reyndar líka. Nú segi ég bara: „Undir 90 kílóum skaltu vera og mundu boð­orð föður þíns.“

Ég var að koma úr mæl­ingum og lang­tíma­syk­ur­inn og allt er mjög gott í skrokknum. Og það sem meira er, ég er með mínar mjaðmir, mín hné, mína ökkla.

Við erum tólf bræð­urnir og þegar ég segi við þá: „Hva, þú ert kom­inn með í mjöð­mina! Ég fæ ekk­ert, ég hlýt að vera úr eðal efni.“

„Nei, nei,“ segja þeir. „Þú hefur aldrei gert neitt. Þú hefur aldrei unnið neitt ærlegt hand­tak!“

Hér má hlusta á við­talið við Guðna í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við