Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Rósa er neytandi vikunnar: „Væri til í að sleppa þessum stresstilboðum og lækka bara vöruverð“

Rósa er neytandi vikunnar: „Væri til í að sleppa þessum stresstilboðum og lækka bara vöruverð“
Rósa Ásgeirs­dóttir

Rósa Ásgeirs­dóttir er leik­kona og tón­skáld að mennt. Hún hefur verið með­limur í Leik­hópnum Lottu síðan árið 2008, bæði sem leik­kona og laga­höf­undur. Rósa hefur samið mikið af tón­list fyrir söng­leiki, hljóm­sveitir, sjálfa sig og aðra, en nýverið samdi hún tón­list fyrir leikna barna­þætti á sjón­varps­stöð­inni N4, sem heita Him­in­lif­andi. Rósa hefur líka tal­sett barna­efni. Hún býr í mið­bænum og á rúm­lega eins árs gamla dóttur.

Rósa Ásgeirs­dóttir er neyt­andi vik­unnar hjá Mannlífi.

Hvar kaupir þú eða fjölskylda þín helst inn mat og rekstrarvörur til heimilisins og hversu hár er sá kostnaður að jafnaði á mánuði?

„Krónunni og Bónus. Heildar upp­hæðin er mjög mis­jöfn eftir mán­uðum.“

Hvaða aðferðum beitir þú til að nýta mat sem best?

„Ég kaupi minna í einu af mat sem á það til að skemm­ast, eins og mjólk og þess háttar. Sumt kaupi ég í magni, set í minni ein­ingar og frysti. Þá passa ég að útbúa það vel í fryst­inn svo það komi síður frysti­bragð af matnum. Ég er við­kvæm fyrir því.“

Hvert er þitt helsta sparnaðarráð?

„Fara södd í mat­vöru­búð­ina til að versla ekki allt sem mig langar í þá stund­ina. Versla barna­föt í Barna­lopp­unni eða svip­uðum búðum. Allt árið um kring eru útsölur og afslátt­ar­dagar og ef ég þarf að kaupa eitt­hvað nýtt þá reyni ég að hitta á svo­leiðis daga.“

Er allt rusl flokkað heima hjá þér? Ef svo er, hvaða verklag hefur reynst þér eða fjölskyldu þinni best til að tryggja að allt rusl sé flokkað?

„Já, ég reyni að flokka allt, en ég er langt frá því að vera með allt á hreinu. Það varð öll flokkun mun þægi­legri og ein­fald­ari eftir að ég kom upp sér flokk­un­ar­kerfi sem pass­aði inn í eld­húsinn­rétt­ing­una.“

Hvaða hreinsiefni eru notuð heima hjá þér?

„Gall­sápan er mitt upp­á­hald fyrir blettóttan fatnað og það er senni­lega mest not­aða hreinsi­efnið hér heima ver­andi með barn á heim­il­inu. Svo er ég mikið að vinna með Grone Balance vör­urnar í hrein­gern­ingar og Neutral í þvott­inn.“

Kaupir þú helst ný eða notuð húsgögn?

„Það er allur gangur á því hjá mér, en meiri­hlut­inn af hús­gögn­unum hjá mér eru notuð. Rúmdýnu vil ég þó kaupa nýja.“

Átt þú bíl? Hve miklu eyðir þú að jafnaði í samgöngur á mánuði? 

„Ég er búin að vera flakk­andi á milli þess að eiga bíl og eiga ekki bíl. Núna síð­ast komst ég að því að ég eyddi óþarf­lega mikið í hlaupa­hjól. Ég er nýkomin á bíl aftur og ekki komin nein reynsla á eyðslu ennþá. Nota bíl­inn nær ein­göngu til að skutla og sækja barnið til dag­mömmu og þegar ég þarf að skreppa í gigg eða stórinn­kaup. Ég bý í mið­bænum (101) og það er flest allt sem ég þarf hérna nálægt.“

Leggur þú fyrir? Ef svo er, í hvaða formi er sparnaðurinn?

„Ég er með sparn­að­ar­reikn­ing þar sem ákveðin upp­hæð fer inn á mán­að­ar­lega. Svo var ég að stofna nýjan sparn­að­ar­reikn­ing um dag­inn sem heitir Japan. Vinkona mín spurði á Facebook hvað það væri sem mann lang­aði til að gera í líf­inu en maður hefði aldrei gert. Ég svar­aði „fara til Japan“ og þá svar­aði hún mér að ég ætti að stofna reikn­ing, leggja fyrir 200 krónur á dag og eftir nokkur ár gæti ég farið til Japan og dóttir mín væri þá líka orðin nógu gömul til að fara með og geta munað eftir ferð­inni. Mér fannst þetta svo fyndið að ég dreif í því.“

Hvernig finnst þér verðlag á Íslandi?

„Allt of hátt, helst skrifað með caps lock. Það er í alvöru fárán­legt að það sé ódýr­ara að versla í gegnum erlendar net­síður plús póst­send­ing heldur en að versla hér heima. Fyrst og fremst myndi ég vilja styðja íslenska fram­leiðslu en hef því miður ekki alltaf efni á því. Mér finnst mat­vöru­búðir orðnar rosa­legar.“

Ert þú með fasteignalán? En önnur lán? 

„Já, bæði fast­eigna­lán og náms­lán.“

Hvaða breytingu myndir þú vilja sjá sem neytandi?

„Ég er orðin svo þreytt á útsölum og sumar, vetur, vor og haust­til­boðum, black fri­day, sing­les day, pop-up og hvað þetta allt heitir. Ég væri til í að sleppa þessum stress til­boðum og lækka bara vöru­verð almennt.“

Er eitthvað annað sem þú vilt koma á framfæri að lokum?

„Skannað og skundað appið hjá Krónunni. Gæti ekki mælt meira með því. Tíma­sparn­aður að þurfa ekki að rífa allt upp úr körf­unni aftur og maður getur séð nákvæm­lega hvað upp­hæðin í pok­anum er orðin há. Takk Krónan og megi aðrar búðir taka upp á þessu sama.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina