Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Keikó synti til Noregs og drapst úr lungnabólgu – Hvalurinn vildi ekki frelsið eftir dvöl í Eyjum

Keikó synti til Noregs og drapst úr lungnabólgu – Hvalurinn vildi ekki frelsið eftir dvöl í Eyjum

Haustið 1998 var háhyrn­ing­ur­inn Keikó fluttur frá dýra­garði í Banda­ríkj­unum til Vest­manna­eyja, þar sem hann dvaldi í kví í Kletts­vík þar til honum var að lokum sleppt.

Keikó var heims­frægur háhyrn­ingur, en hann lék burð­ar­hlut­verk í kvik­mynd­inni Free Willy, sem kom út árið 1993 og naut gríð­ar­legra vin­sælda. Sögu háhyrn­ings­ins Willy, sem Keikó leikur í mynd­inni, svipar um margt til sögu Keikó sjálfs. Í kvik­mynd­inni er Willy bjargað úr dýra­garði þar sem hann eyðir dögum sínum van­sæll í búri og skemmtir gestum garðs­ins með því að leika listir sínar. Í for­grunni er vina­sam­band ungs drengs og Willy, en það er dreng­ur­inn sem leggur á ráðin um að frelsa vin sinn úr prís­und­inni.

Frá Íslandi til Kanada, Mexíkó og Hollywood

Saga Keikó hefst þegar hann var hand­samaður undan ströndum Íslands árið 1979, þá aðeins um tveggja ára kálfur. Hann var tek­inn frá móður sinni og seldur til skemmti­garðs­ins Mar­in­eland í Ontario í Kanada. Þar var hann þjálf­aður sem skemmti­kraftur. Árið 1985 var Keikó seldur til Reino Aventura, sem er skemmti­garður í Mexíkó.

Í meira en ára­tug var Keikó haldið föngnum í litlum tanki í skemmti­garð­inum í Mexíkó, algjör­lega ein­angr­uðum og van­sælum. Það var þar sem fram­leið­endur mynd­ar­innar Free Willy fengu hann til að leika í kvik­mynd­inni.

Myndin sló í gegn og fólk um víða ver­öld fékk mik­inn áhuga á háhyrn­ingi mynd­ar­innar.

Þegar aðdá­endur komust að því að Keikó væri haldið föngnum, rétt eins og Willy, urðu til ýmsar her­ferðir til að knýja fram að Keikó yrði sleppt úr haldi sædýra­garðs­ins. Ber þar helst að nefna her­ferð­ina Frelsum Keikó (e. free Keiko). Í ljós kom að vist Keikós í Mexíkó var afar slæm og heilsu háhyrn­ings­ins hafði hrakað mjög. Hann var kom­inn með slæmar sýk­ingar í húð­ina vegna óvið­un­andi vatns­gæða og hann var alltof hor­aður.

Í fram­hald­inu var krafan um að sleppa Keikó lausum á æsku­stöðvum sínum við Ísland afar hávær.

Free Willy (1993)

Keikó frelsaður – þjálfun í Klettsvík

„Eigendur“ Keikó létu að lokum undan og áætl­anir um að flytja hann til Íslands fóru af stað.

Fyrst um sinn var hann fluttur til Oregon í Banda­ríkj­unum, árið 1996, þar sem hann dvaldi í tvö ár. Þar var honum kennt að veiða lif­andi fisk og smátt og smátt var Keikó far­inn að éta fisk­inn sem hann veiddi. Á þessum tveimur árum gekk húð­sýk­ingin alveg til baka og Keikó komst aftur í góð hold; fór úr 3,8 tonnum í um 4,8 tonn.

Að lokum varð það úr að hann var fluttur til Vest­manna­eyja með flutn­inga­vél Banda­ríkja­hers, þar sem stór kví var útbúin fyrir hann í Kletts­vík.

Keikó var í kvínni í Kletts­vík með þjálf­urum sínum og gæslu­mönnum fram til árs­ins 2002, þegar honum var loks sleppt lausum eftir mikla þjálfun. Þjálfunin fór þannig fram að hann var meðal ann­ars lát­inn fylgja báti sem leiddi hann að háhyrn­inga­hjörðum. Þar var reynt að fá hann til að blanda geði við aðra háhyrn­inga. Keikó gekk þó aldrei sér­lega vel að mynda tengst við aðra af sinni eigin teg­und. Hann sótti ávallt frekar í mann­fólk.

Keikó hittir aðra háhyrninga

Þegar Keikó var fyrst form­lega sleppt árið 2002, flaut hann hreyf­ing­ar­laus um í sjónum og fylgd­ist með hinum háhyrn­ing­unum úr fjar­lægð. Hann hafð­ist í fram­hald­inu við í sjónum í tíu daga, en að lokum sneri hann sjálfur til baka í kvína sína.

Þegar sýni voru tekin frá honum kom í ljós að Keikó hafði lítið eða ekk­ert nærst á meðan hann hélt við í opnum sjó.

Tveimur dögum seinna var aftur reynt að sleppa honum lausum. Aftur sigldi bát­ur­inn með honum út á sjó. Í þetta sinn fór Keikó að stinga sér og gera dýfur, sem hann hafði ekki gert í fyrra skiptið.

Þar sem búið var að setja stað­setn­ing­ar­tæki á Keikó var hægt að fylgj­ast nákvæm­lega með ferðum hans. Hann fór yfir­leitt ekki neðar en fjóra metra undir sjáv­ar­mál og þegar hann stakk sér voru dýf­urnar yfir­leitt ekki meira en 26 metrar. Til sam­an­burðar stinga villtir háhyrnar sér yfir­leitt niður á 50 til 75 metra dýpi.

Keikó sást einu sinni stinga sér í félags­skap villtra háhyrn­inga. Það var 30. júlí árið 2002.

Keikó fer á flakk

Fljót­lega eftir það fór Keikó lengra út og end­aði á því að fara alla leið að Nor­egs­ströndum. Hann birt­ist í ágúst­lok í Halsa í Noregi og vakti mikla kátínu heima­manna. Þar sem Keikó sótti enn allra helst í félags­skap manna fékk hann mikla athygli, jafn­vel of mikla. Börn keppt­ust um að leika við hann og ferða­menn flykkt­ust á stað­inn í hrönnum til að hitta háhyrn­ing­inn knáa.

Að lokum þurfti að banna almenn­ingi að fara út í sjó­inn til Keikós og sömu­leiðis að snerta hann.

Á end­anum var farið með Keikó til Taknes­bugtar í nágrenn­inu. Þangað komu þjálf­arar hans og gæslu­menn og sinntu honum, sáu honum fyrir fæði og fóru með hann í sund­ferðir um sjó­inn í nágrenn­inu.

Keikó virt­ist falla það betur að eyða tíma sínum í félags­skap manna, eftir að hafa búið í dýra­görðum nán­ast alla sína ævi.

Keikó dó í Taknes­bugt þann 12. des­em­ber árið 2003, úr bráðalungna­bólgu. Hann var graf­inn á landi, en uppi hafa verið hug­myndir um að með tím­anum megi hugs­an­lega grafa beinin upp og koma þeim fyrir á safni.

Hátíðahöldin, beina útsendingin og flugvélin

Mikil spenna ein­kenndi land­ann í aðdrag­anda komu Keikós. Daginn sem hann var fluttur til Vest­manna­eyja var Stöð tvö með þriggja klukku­stunda beina útsend­ingu frá eyj­unni.

Dagana á undan höfðu öll blöð og frétta­tímar verið smekk­fullir af fregnum af yfir­vof­andi heim­komu Keikós. Í kringum 150 erlendir blaða­menn settu upp búðir í Vest­manna­eyjum til að skjal­festa við­burð­inn.

Bilun í lend­ing­ar­bún­aði flutn­inga­vélar Banda­ríkja­hers varð til þess að þriggja klukku­tíma sjón­varps­út­send­ingin sem átti að vera, varð um það bil helm­ingi lengri. Þetta þótti neyð­ar­legt fyrir Banda­ríkja­her, því þarna átti að nýta þessa sögu­legu stund til að sýna nýja vél hers­ins. Um 20 kynn­ing­ar­full­trúar frá banda­ríska flug­hernum voru á staðnum.

Bilunin varð í lend­ingu vél­ar­innar í Vest­manna­eyjum. Þegar flug­vélin snerti flug­braut­ina brotn­aði hluti af lend­ing­ar­bún­aði hennar og fór upp í væng­inn. Þetta olli því að þessi flennistóra vél sat kyrr á flug­braut­inni frá klukkan tíu og fram yfir hádegi, án þess að nokkur kæmi út eða nokkuð gerð­ist.

Útsend­ingin sýndi því lengi vel ekk­ert nema bið og hreyf­ing­ar­laust flykki Banda­ríkja­hers.

„Maður bara veltir fyrir sér: hvað í ósköp­unum eru menn­irnir að hangsa?,“ sagði Eiríkur Hjálm­ars­son í útsend­ing­unni, en hann var frétta­mað­ur­inn sem fór fyrir útsend­ingu Stöðvar 2.

Loks fóru hlut­irnir að ger­ast og Keikó var fluttur í Kletts­vík­ina. Þar tók hann fyrstu sund­tökin með þjálf­ara sínum.

Í seinni tíð hafa ýmsir haft það á orði að allt til­standið í kringum flutn­ing Keikós „heim“ hafi verið ótta­legur sirkús. Enda var flutn­inga­dag­ur­inn eins og hálf­gerður þjóð­há­tíð­ar­dagur. Lög voru samin um heim­komu háhyrn­ings­ins og hvað eina annað.

Bubbi Morthens sagði hins­vegar að Keikó væri best kom­inn á grill­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina