Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lára læknir vill ekki tala undir rós: „Maðurinn minn sagði „jæja, núna verð ég skrímslið““

Lára læknir vill ekki tala undir rós: „Maðurinn minn sagði „jæja, núna verð ég skrímslið““
(Mynd: Aldís Páls.)

Lára G. Sig­urð­ar­dóttir læknir skrif­aði pistil undir fyr­ir­sögn­inni „Hættu­legt hold­ar­far“ sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag. Hann hefur vakið athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru ekki allir sáttir. Svona er pistill­inn sem birt­ist í blað­inu:

„Þú hefur fitnað,“ sagði kærast­inn ákveð­inn á meðan við horfðum á bíó­mynd. Ég var sautján, hann nítján. Á þessum tíma vann ég í Fjarð­ar­kaupum þar sem freist­ingar voru á hverju horni. Í vas­anum leynd­ist nammi­poki og í pásum var stoppað í bak­arí­inu.

Í síð­ustu viku var umfjöllun um offitu barna í þætt­inum Kveik. Þar kom fram að börnum með offitu fer fjölg­andi hér á landi og fleiri leita nú á Land­spít­ala með fitulifur, kæfisvefn og und­an­fara syk­ur­sýki.

Eitt þekktasta dæmi um þróun offitu kemur frá eyj­unni Nárú í Kyrra­haf­inu. Íbúar eyj­unnar voru við eðli­legt holda­far á meðan þeir nærð­ust á fiski, ávöxtum og græn­meti. Þegar þeir öðl­uð­ust sjálf­stæði árið 1968 urðu þeir skyndi­lega ríkir af fos­fat-námu­vinnslu. Þeir þurftu ekki lengur að veiða fisk og rækta græn­meti og fóru að flytja inn unnar vest­rænar mat­vörur. Með hinum nýju lífs­háttum urðu þeir feitasta þjóð jarð­ríkis en 95 pró­sent íbúa Nárú eru í yfir­þyngd og 61 pró­sent of feitt.

Samkvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni eru of feit börn í auk­inni hættu á að deyja um aldur fram og grein­ast með hjarta­sjúk­dóm, heila­blóð­fall, krabba­mein og syk­ur­sýki. Hægt er að afstýra þessu en þá þarf bæði nán­asta umhverfi og sam­fé­lagið í heild að vinna saman með því að bæta aðgengi að sál­fræð­ingum, heilsu­sam­legum mat og gera lík­ams­rækt aðgengi­legri. Þurfa íþróttir til dæmis alltaf að snú­ast um verð­launa­pall? Og í betri heimi myndu skóla­sál­fræð­ingar grípa börnin áður en þau verða of feit því and­legir erf­ið­leikar geta hæg­lega steypt þeim í víta­hring mat­ar­fíknar.

Ég hugs­aði um að senda kærast­ann (sem nú er eig­in­maður minn) öfugan út en ákvað heldur að losa mig við nammi­pok­ann.“

Samkvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni eru of feit börn í auk­inni hættu á að deyja um aldur fram og grein­ast með hjarta­sjúk­dóm, heila­blóð­fall, krabba­mein og syk­ur­sýki.
(Mynd: Saga Sig.)

Offita tengd ýmsum sjúkdómum

Mannlíf hafði sam­band við Láru sem sagði að eftir að hún horfði á Kveik hafi hún farið að hugsa um hið sígilda dæmi um þróun offitu hjá íbúum Nárú í Kyrra­hafi sem oft er tekið fyrir í far­alds­fræði sjúk­dóma­þró­unar. „Um 40% íbú­anna eru með syk­ur­sýki tengd offitu. Þó svo að offita geti að ein­hverju leyti stafað af efna­skipta­trufl­unum þannig að sumum er hætt­ara við að fá offitu eins og við vitum þá breytir það því ekki því eins og Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin hefur bent rétti­lega á er offita, og ég tala nú ekki um á meðal barna, eitt­hvað sem við verðum að taka alvar­lega því hún skerðir lífs­gæði og lífs­lengd.

Offita eykur ekki ein­ungis hættu á að grein­ast með alvar­legan sjúk­dóm svo sem hjarta­sjúk­dóm, heila­blóð­fall, krabba­mein og syk­ur­sýki heldur einnig líkur á að lát­ast um aldur fram. Með pistl­inum er ég ekki að horfa í holda­far útlits­lega heldur hætt­una sem fylgir því að lifa óheil­brigðu lífi. Maður getur að sjálf­sögðu verið búst­inn en heil­brigður. Í mínum huga þurfum við að horfa á þróun offitu meðal barna sem lýð­heilsuvá sem þarf að bregð­ast við og horfast í augu við áhætt­una sem þessi börn horfast í augu við. Við náum engum árangri með því að tala undir rós. Allt of mörg börn hrökkl­ast til dæmis úr íþróttum af því að þau kom­ast ekki í keppn­islið, það þekki ég af eigin raun. Af hverju getum við ekki haft meira fram­boð af íþróttum þar sem börnin koma saman til að hafa gaman?“

Í mínum huga þurfum við að horfa á þróun offitu meðal barna sem lýð­heilsuvá sem þarf að bregð­ast við og horfast í augu við áhætt­una sem þessi börn horfast í augu við.

Lára er spurð um við­brögð hennar við þeirri gagn­rýni sem fólk hefur sett á sam­fé­lags­miðla eftir að pist­ill hennar birt­ist. „Maðurinn minn sagði „jæja, núna verð ég skrímslið“ þannig að hann var undir það búinn miðað við hvernig kommenta­kerfið er. Auðvitað má fólk hafa sínar skoð­anir. Ég skrif­aði ekki að ég hefði farið í megrun eftir ahuga­semd hans um að ég hefði fitnað; ég varð með­vit­aðri um hvað ég borð­aði en það er ofþyngd í ætt­inni og við fitnum auð­veld­lega. Ég leit á athuga­semd hans á jáv­æðan hátt enda kann ég að meta hrein­skilni. Eftir að ég skoð­aði sjálfa mig þá átt­aði ég mig á að þetta var rétt hjá honum.

Ef hann hefði ekki bent mér á þetta þá er ég ekki viss hvert hefði stefnt því eins og lík­lega fleiri var ég syk­ur­fík­ill svona eftir á að hyggja. Í morg­un­mat fékk ég mér sæta­brauð og spar­aði mig alltaf fyrir stóran eft­ir­rétt. Nú kaupi ég sjaldan sæt­indi á heim­ilið því það endar venju­lega ekki vel. Fólk má að sjálf­sögðu hafa sínar skoð­anir en mér finnst svona ummæli oft vera órlétt­lát af því að stundum er verið að túlka eitt­hvað annað heldur en maður er að segja og hlut­irnir eru þannig teknir úr sam­hengi.“

Offita og krabbamein

Talið berst að inn­kaupum fólks. „Það er nóg að horfa ofan í inn­kaupa­kerrur; allt snakkið, sæl­gætið, gos­drykkir og til­búnar vörur sem eru nær­ing­ar­snauðar en hins vegar er þeta fullt af hita­ein­ingum og ónátt­úru­leg efnum sem eru nei­kvæð fyrir efna­skipti og orku­vinnslu lík­am­ans.“

Offita er áhættu­þáttur ýmissa krabba­meina til dæmis í brjóstum, eggja­stokkum, blöðru­háls­kirtli, lifur, gall­blöðru, nýrum og ristli. „Til dæmis fram­leiðir fitu­vefur östrogen sem getur aukið hættu á krabba­meinum í brjóstum.

Á end­anum erum það við sjálf sem berum ábyrgð á eigin heilsu. Ef við for­eldr­arnir drekkum mikið gos­drykki og borðum skyndi­fæði þá gera börn það líka. Þau gera meira það sem fyrir þeim er haft en ekki sagt.

Aðal­at­riðið er að átta sig á að offita hefur í för með sér ákveðna áhættu fyrir börnin og hægt er að koma í veg fyrir hana en Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin hefur gefið út leið­bein­ingar til að styðj­ast við.“

Offita er áhættu­þáttur ýmissa krabba­meina til dæmis í brjóstum, eggja­stokkum, blöðru­háls­kirtli, lifur, gall­blöðru, nýrum og ristli.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una