Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Friðriki var ráðlagt að taka myndina af sér úr ferilskránni vegna húðlitar: Fékk strax starf

Friðriki var ráðlagt að taka myndina af sér úr ferilskránni vegna húðlitar: Fékk strax starf

Friðrik Agni Árnason ritar áhuga­verðan pistil og byrjar á þessu:

„Taktu mynd­ina úr fer­il­skránni, þá ertu lík­legri til að vera boð­aður í við­tal, segir vin­kona mín við mig þegar hún lítur yfir fer­il­skrána mína yfir kaffi­bolla í Stokk­hólmi.

Var ég svona ofboðs­lega óaðl­að­andi á þess­ari mynd? Nei nei, það var ekki það. Ég var kannski bara aðeins of brúnn.”

Vinkona Friðriks bætir við:

„Þú ert með svo gott íslenskt nafn. Myndin mun bara rugla fólk. Treystu mér. Taktu mynd­ina út ef þú vilt fá meiri séns á við­tali.” 

Friðrik segir að „þessi vin­kona mín er fædd og upp­alin í Svíþjóð en á for­eldra sem fædd­ust í Íran og hún ber þess merki í útliti. Hún er sem­sagt brún á lit­inn með kol­svart hár og auk þess gull­fal­leg en það er önnur saga.” 

Hann nefnir að „eftir að 40 umsóknir með mynd af mér í fer­il­skránni höfðu farið um víðan völl án árang­urs ákvað ég að hlusta á vin­konu mína og prófa að henda mynd­inni út. Í þessum 40 umsóknum sem ég hafði sent var ég meira að segja búinn að lækka kröfur mínar og vonir. Ég var far­inn að sækja um störf sem ég vissi að ég væri lík­lega of hæfur í.” 

Og þá fóru hjólin að snú­ast:

„Viti menn. Fyrsta umsóknin sem ég sendi án myndar fékk við­brögð. Ég var boð­aður í við­tal. Og þetta var fyrir starf sem ég var full­kom­lega hæfur í og hent­aði mínum hæfi­leikum, reynslu og menntun.

Var þetta til­viljun. Kannski, kannski ekki. En mér fannst þetta alla­vega umhugs­un­ar­vert.

Fyrst var mér eig­in­lega pínu brugðið. Ég var móðg­aður og dóm­harður gagn­vart Svíum. Eru þeir svona miklir ras­istar? Af hverju þurfti ég að taka mynd­ina af mér út til þess að fá við­tal?” 

Það kom Friðriki á óvart hvað „vin­konu minni fannst þetta ekk­ert til­töku­mál. Auðvitað er ras­ismi í Svíþjóð. Hvar hafði ég verið?

Í jafn­réttispara­dís?

Þetta var fyrir næstum því 10 árum sem ég var þarna í Svíþjóð. Þá hafði ég þegar búið í Ástralíu og Ítalíu þar sem ég mennt­aði mig.” 

Friðrik átti síðar eftir að „ferð­ast til Dubai og starfa þar áður en ég sog­að­ist aftur að hrá­leik­anum, feg­urð­inni og fjöll­unum hér heima.

Ég hef menntað mig enn meira. Tekist á við ýmis störf og verk­efni und­an­farin ár.

Þegar ég lít til baka þá sé ég að þetta sem gerð­ist í Svíþjóð er ekki endi­lega eitt­hvað sem heitir ras­ismi heldur ómeð­vituð hlut­drægni. Og við erum örugg­lega flest með hana, ómeð­vitað og gagn­vart ólíkum hlutum í líf­inu.” 

Hann nefnir að „við ætlum okkur ekk­ert að dæma fólk út frá staðl­aðri hug­mynda­fræði um týpu­gerðir. En við gerum það þó samt. Við sjáum fyrir okkur að fyrir þetta hlut­verk eða þetta starf væri best ef týpan væri svona en ekki svona. Og oft er það út frá ein­hverju „normi“ sem er auð­vitað ekki til.

En það er einmitt margra ára „norm” upp­eldi sem hefur alið af sér ómeð­vit­aða hlut­drægni,” segir hann og bætir við:

„Við spottum frá­vik frá þessu svo­kall­aða normi og nennum ekki endi­lega að hafa fyrir því að gefa þessu frá­viki sama séns og hinu venju­lega.

Æ þessi er eitt­hvað svona öðru­vísi og flók­inn, það væri betra ef hann væri bara venju­legur.”

„Á yfir­borð­inu erum við öll mjög með­vituð og að gera okkar besta. Við þurfum bara að gera betur en okkar besta.

Við þurfum að breyt­ast.”

Friðrik segir einnig að „í til­fell­inu að ofan lýsi ég atvinnu­um­sókn­ar­ferli í Svíþjóð. En það er sama form alls­staðar þar sem við erum að sækja um starf. Í grunn­inn er þetta vanda­mál sem snýst um staðl­aðar hug­myndir um það hvernig við útbúum fer­il­skrá og hvaða upp­lýs­ingar fara í hana. Ef ég væri ekki dæmdur á húð­lit þá væri það ald­ur­inn, brosið eða jafn­vel nafnið mitt.

Hvaða upp­lýs­ingar þurfa að liggja til grund­vallar svo fólk geti metið hæfan starfs­kraft? Þarf raun­veru­lega að vita kyn, nafn, húð­lit, hár­gerð og aldur til þess að meta það? Hugsið um það grín­laust.”

Hann spyr hvort ekki sé nóg að sjá reynslu­bank­ann, mennt­un­ina og hvernig við­kom­andi er að nálg­ast starfið í umsókn­inni.

„Ég myndi telja að fyrir sum störf skipti dálk­arnir Annað og Áhugamál í fer­il­skránni mun meira máli en jafn­vel menntun. Því þeir gefa hug­mynd um ein­stak­ling­inn.

Hvernig fólki viljum við vinna með? Í góðum umsóknum fær mann­eskjan að skína og segja frá því hver hún er umfram allt það sem hún hefur lært. Auðvitað þarf þekk­ing og kunn­átta að vera til staðar. En það er ekki allt.

Hvernig væri að fjar­lægja þessar per­sónu­upp­lýs­ingar úr fer­il­skrám? Það ger­ist örugg­lega of oft að fólk fer á mis við besta kandi­datann fyrir starfið sem það er að ráða í því ómeð­vit­aða hlut­drægnin henti honum beint í Nei skúff­una.”

Að lokum leggur Friðrik til að „við tökum út allt það sem kallar fram okkar ómeð­vit­uðu hlut­drægni og gefum öllum jöfn tæki­færi á atvinnu­mark­aði. Tökum út nöfn, tökum út kenni­tölur, tökum út kyn, tökum út mynd. Horfum á reynslu, horfum á hvernig ástríða fyrir starf­inu skín í gegn. Skoðum virki­lega hvaða mann­eskja er hérna að sækja um. Kannski gerir það úrvinnslu­ferlið aðeins flókn­ara en eins og ég sagði: Við þurfum að breyta því hvernig við gerum hlut­ina ef við ætlum raun­veru­lega að breyt­ast sem sam­fé­lag. Þó úrvinnslu­ferli umsókna verði flókn­ara þá er á end­anum til svo mik­ils að vinna. Þú ert nefni­lega ekki að fara vinna með brúnu skinni, spiki, húð­flúri eða skökkum tönnum. 

Þú ert að fara vinna með mann­eskju.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina