Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Athafnamaðurinn og hörkutólið Orri Björnsson: „Að vinna Grettisbeltið var auðvitað hápunkturinn“

Athafnamaðurinn og hörkutólið Orri Björnsson: „Að vinna Grettisbeltið var auðvitað hápunkturinn“

Skarp­héð­inn Orri Björns­son, alltaf kall­aður Orri, er hörku athafna­maður sem er að gera frá­bæra hluti í fyr­ir­tæk­inu Algalíf þar sem hann er for­stjóri. Hann var líka eitt sinn Glímu­kóngur Íslands og er einn besti kepp­andi sem tekið hefur þátt í Gettu betur. Mannlíf tók hús á Orra og spurði hann nokk­urra spurn­inga.

Jæja Orri, segðu mér aðeins frá um upp­eldið og æsk­una, og fjöl­skyldu.

Ég er fæddur í Reykja­vík 1971 og bjó fyrst í mið­bænum og svo í Selja­hverf­inu fram á ung­lings­árin þegar fjöl­skyldan flutt­ist til Hafn­ar­fjarðar. Ég á tvö yngri systk­ini, bróður og systur. Við vorum líka svo heppin að vera í sterkum tengslum við móð­ur­ætt­ina sem býr í sveit norður í Húna­vatns­sýslu sem víkk­aði sjón­deild­ar­hring okkar systk­in­anna. Fjöl­skyldan hefur alltaf verið sam­heldin; haft mik­inn áhuga á íþróttum og sam­fé­lags­málum.

Þú tókst þátt í Gettu betur og vaktir mikla athygli fyrir þekk­ingu þína, hvað gaf sú keppni þér?

Ég kláraði stúd­ents­prófið í Flens­borg­ar­skól­anum í Hafn­ar­firði og skömmu eftir að ég byrj­aði þar voru próf fyrir Gettu betur. Mér gekk vel og var val­inn í liðið sem varð sig­ur­sælt og komst mjög langt í keppn­inni. Á þessum tíma held ég að Gettu betur hafi verið stærri við­burður en nú er, enda mun minna fram­boð af afþr­ey­ingu en núna. Þannig að skyndi­lega var maður í kast­ljós­inu og margir bæj­ar­búar vissu hver maður var. Það var bæði sér­stök og skemmti­leg til­finn­ing. En keppnin gaf mér fyrst og fremst sjálfs­traust til að taka með mér út í lífið og svo kynnt­ist ég mörgum sem ég held góðum tengslum við enn þann dag í dag. Þannig að víð­sýni, þekk­ing, kjarkur og vin­átta eru stóru verð­launin sem ég fékk út úr þát­töku í Gettu betur.

Gettu betur lið Flens­borgar árið 1991, sem hafn­aði í öðru sæti það árið. Bjarni, Orri og Svanur.

Þú varst glímu­kappi, og Glímu­kóngur árið 1994. Hvenær byrj­að­irðu og hvað varð þess vald­andi, og hvað var svo skemmti­legt og heill­andi við glímuna?

Faðir minn var tengdur KR og krafta­í­þróttum og það var eig­in­lega þannig sem ég tengd­ist glímunni. Fljót­lega kom í ljós að ég átti eitt­hvað erindi í þessa íþrótt sem reynir bæði á tækni, snerpu og kraft. Svo skemmir ekki fyrir að þetta er hin sanna þjóðar­í­þrótt Íslend­inga og hefur mikla teng­ingu við sögu okkar og menn­ingu. Ég eign­að­ist marga vini í glímunni og sá vin­skapur lifir enn þótt árin líði. Þess utan fékk ég að ferð­ast bæði inn­an­lands og utan til að keppa og sýna glíma sem jók mér auð­vitað víð­sýni og þekk­ingu. Að vinna svo Grett­is­beltið var auð­vitað punkt­ur­inn fyrir ofan i-ið á glímu­ferl­inum og sannur heiður að vinna æðstu verð­laun í íþrótt sem maður hefur gefið sig allan í.

Svo fórstu í fyr­ir­tækja­rekstur og Algalíf varð að veru­leika – segðu mér frá því hvernig hug­mynd varð að veru­leika og svo að mjög stórum veru­leika. 

Ég hóf störf í lyfja­geir­anum fyrir um það bil 25 árum, fyrst hér á landi en svo leiddi fer­ill­inn mig út um allan heim. Ég hef búið og starfað í Búlgaríu, Kenía og Noregi, þar sem ég leiddi meðal ann­ars ýmis verk­efni í lyfja- og líf­tækni­geir­unum og var t.a.m. sér­stakur ráð­gjafi á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Allt þetta varð svo til þess að ég öðl­að­ist sér­hæfða þekk­ingu og reynslu sem ekki margir búa yfir. Þegar fyrstu til­raunir hófust í Noregi með fram­leiðslu á astax­an­t­íni úr örþör­ungum leit­uðu for­svars­menn þess verk­efnis til mín. Fljót­lega varð ljóst að Ísland væri ákjós­an­legur vett­vangur fyrir verk­efnið ákvörðun var tekin um að reisa verk­smiðju hér. Ég hef verið svo hepp­inn að fá að leiða verk­efnið hér og þrátt fyrir ýmis áföll hefur það gengið vel. Starfs­menn eru nú um 40 með veltu sem slagar í tvo millj­arða. Við erum að stækka og verðum 80 manna fyr­ir­tæki með fimm til sex millj­arða veltu innan tveggja ára. Mark­að­ur­inn er stöðugt að vaxa og okkur hefur tek­ist að byggja upp frá­bært teymi í félag­inu. Ég þakka því fyrst og fremst þennan góða árangur.

Hvernig gekk að koma fyr­ir­tæk­inu á legg og hvernig sérðu fram­tíð þess fyrir þér?

Auðvitað gekk ýmis­legt brösu­lega á fyrstu árum Algalífs eins og gengur hjá svona nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum í líf­tækni­geir­anum. Við vissum lítið hvað við vorum að gera, en lærðum af reynsl­unni og mis­tök­unum. Við reyndum að fá aðstoð frá erlendum sér­fræð­ingum en komumst að því að þeir vissu lítið meira en við. Nú er svo komið að við erum lík­lega með hag­kvæm­ustu fram­leiðslu allra á fæðu­bóta­efn­inu astax­anthíni, sem er það sem fram­leiðslan snýst um. Nú er stækk­unin á fullum skriði, við erum að fara úr 5.500 m2 í 12.500 m2 og fram­leiðslan að þre­fald­ast. Á næsta ári munum við líka byrja fram­leiðslu á öðrum þör­ungi sem gefur af sér annað verð­mætt fæðu­bóta­efni, en við höfum verið í til­raunum með hann í nokkur miss­eri. Við reiknum því með stöð­ugum vexti á næstu árum og ára­tugum, enda virð­ist mark­að­ur­inn í miklum vexti um allan heim.

Orri er Sjálf­stæð­is­maður og hefur gegnt ýmsum hlut­verkum fyrir flokk­inn.

Muntu á kom­andi árum halda áfram í póli­tík með­fram Algalífi, er dag­skráin hjá þér ekki ansi þétt?

Ætli ég myndi ekki skil­grein­ast sem frjáls­lyndur íhalds­maður í póli­tík. Ég hef lengi verið virkur liðs­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum og var m.a. for­maður Stefnis, sem er félag ungra Sjálf­stæð­is­manna í Hafn­ar­firði, í stjórn full­trúa­ráðs­ins þar og svo mætti áfram telja. Áhugi minn varð­andi stjórn­mála­þát­töku hefur alltaf beinst meira að sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu en lands­mál­unum. Síðustu kjör­tíma­bil hef ég tekið virkan þátt sem vara­bæj­ar­full­trúi auk þess sem ég hef setið í nefndum, ráðum og stjórnum fyrir hönd flokks­ins og bæj­ar­ins. Mér finnst þetta skemmti­legt og gott að geta lagt sitt af mörkum fyrir nær­sam­fé­lagið með þessum hætti. Ég ætla að halda því áfram.

Bara að lokum Orri, hver eru þín helstu áhuga­mál?

Ég er bóka­ormur og les mikið. Ævisögur stjórn­mála­manna og sagn­fræði eru þar ofar­lega á blaði og póli­tík myndi lík­lega flokk­ast sem eitt af aðal­á­huga­mál­unum. En ég hef líka mik­inn áhuga á íþróttum og fylgist ágæt­lega með þar. Ekki bara glímu, heldur líka öllu hinu. Þess utan hef ég gaman af því að ferð­ast og hef gert mikið af því bæði í starfi og leik. Svo er auð­vitað vinnan líka áhuga­mál. Maður leiðir ekki nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki eins og Algalíf án þess að hafa brenn­andi áhuga á líf­tæki­geir­anum og þör­unga­ræktun. Hvað þá að maður nái árangri án þess að vera vak­inn og sof­inn yfir öllu því sem snertir rekst­ur­inn og þann geira sem maður hefur valið sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina