Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þorkell sár og reiður vegna Rauða krossins – Missti fótinn og var ýtt út úr sjálfboðaliðastarfi

Þorkell sár og reiður vegna Rauða krossins – Missti fótinn og var ýtt út úr sjálfboðaliðastarfi

„Ég ætl­aði að mæta og vera í aðgerð­ar­stjórn en þá var mér sagt að það hefði annar verið feng­inn í minn stað. Mér fannst þetta vera köld kveðja eftir 13 ára starf sem sjálf­boða­liði hjá Rauða kross­inum á Suð­ur­nesjum,“ segir Þorkell Ingvason, fyrr­ver­andi sjálf­boða­liði Rauða kross­ins. Hann hafði verið sjálf­boða­liði hjá sam­tök­unum, sér­hæfður í vett­vangs­stjórn og fjölda­hjálp­ar­stjórnun.

Þorkell veikt­ist illa í nóv­em­ber í fyrra vegna syk­ur­sýki og æða­kölk­unar. Við tók löng spít­ala­vist. Sjúk­dóm­ur­inn varð til þess að taka þurfti af honum annan fót­inn í febr­úar síð­ast­liðnum. Í fram­hald­inu tók við löng end­ur­hæf­ing þar sem hann þurfti að læra að ganga við gervi­fót. Hann er nú óðum að ná tökum á til­veru sinni og ætl­aði að snúa aftur til þess að leggja Rauða kross­inum lið, sem honum þótti vera ein­stak­lega gef­andi.

Þann 23 októ­ber á að vera stór æfing á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þorkell lét vita að hann hefði áhuga á að fylgj­ast með þar og vera í aðgerð­ar­stjórn svo sem verið hafði und­an­farin 13 ár. Þá kom babb í bát­inn. Framlag hans var afþakkað. Það var Fanney Grét­ars­dóttir, starfs­maður deild­ar­innar á Suð­ur­nesjum, sem til­kynnti honum þá ákvörðun. Þorkell segir ekki við hana að sakast þar sem hún hefði sagt honum að höfn­unin væri að ósk höf­uð­stöðv­anna í Reykja­vík. Þorkell upp­lifði mikla og sára höfnun. Hann setti slá­andi stöðu­færslu inn á Facebook.

„Eftir 13 ár sem félagi í RKI ákveða þeir að það sé ekki gott fyrir ímynd félags­ins að hafa innan sinna raða mann sem er fatl­aðan mann með gerfi­fót. Kaldar kveðjur,“ skrif­aði Þorkell.

Þorkell Ingvason sjálf­boða­liði missti fót­inn.

Hann segir í sam­tali við Mannlíf að engin önnur leið sé að túlka málið en sem svo að fötlun hans hafi ráðið ákvörðun sam­tak­anna í Reykja­vík.

„Þetta var mér áfall. Ég get ekki fundið aðra ástæðu en þá að ég er búinn að missa fót­inn,“ segir Þorkell.

Fanney Grét­ars­dóttir, starfs­maður Rauða kross­ins á Suð­ur­nesjum vildi ekki tjá sig efn­is­lega um málið og vís­aði á höf­uð­stöðv­arnar í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina