Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Galleríið heldur Sýninguna“ – Samsýning 20 ólíkra myndlistarmanna í gömlu kartöflugeymslunum

„Galleríið heldur Sýninguna“ – Samsýning 20 ólíkra myndlistarmanna í gömlu kartöflugeymslunum

Gunnella Ólafs­dóttir og Laufey Jens­dóttir  sýn­ing­ar­stjórar settu saman áhuga­verða sam­sýn­ingu 20 ólíkra mynd­list­ar­manna sem allir tengj­ast Gall­er­í­inu á Skóla­vörðu­stíg 20.  Sýning Gall­er­ís­ins er fyrsta sýn­ingin sem haldin er í sér­hönn­uðum sýn­ing­ar­sal í hús­næði sem flestir þekkja sem gömlu kart­öflu­geymsl­urnar í Ártúns­brekku og er sýn­ing­ar­sal­ur­inn að aust­an­verðu við boga­bygg­ing­arnar og tengir þær saman.

Gall­er­íið var opnað á haust­dögum 2019 og hefur lagt upp með að skapa sér sér­stöðu með fram­boði verka ólíkra mynd­list­ar­manna og hefur síðan fengið góðar und­ir­tektir. Innan raða þeirra er bæði að finna vel þekkta lista­menn sem hafa náð langt á sínum ferli og einnig lista­menn af nýrri kyn­slóð sem hafa vakið verð­skuld­aða athygli fyrir sína list strax í upp­hafi fer­ils síns. Sýningin sam­anstendur því af fjöl­breyttum list­formum: þar verða olíu­mál­verk, vatns­lita­verk, grafík, ljós­myndir, skúlp­t­úrar, prent­verk og hönnun.

Markmið Gall­er­ís­ins með sýn­ing­unni er að útvíkka sýni­leika Gall­er­ís­ins og gefa þeim

mynd­list­ar­mönnum sem eru í sam­starfi við það eft­ir­tekt­ar­vert tæki­færi til auk­innar kynn­ingar með ferskum stór­við­burði í sögu­frægu hús­næði. 

Verkin eru lang­flest unnin sér­stak­lega fyrir Sýn­ing­una og lagði sýn­ing­ar­stjórn upp með að verkin væru í stærri kant­inum þar sem sýn­ing­ar­rýmið býður upp á það.  

Hver mynd­list­ar­maður fékk fullt frelsi til sinnar sköp­unar og mun því fjöl­breyti­leik­inn vera ein­kenn­andi á Sýn­ing­unni.  Titill sýn­ing­ar­innar er ein­fald­lega „Sýningin“ sem sýnir bæði húmor­íska skírskotun í ein­fald­leik­inn og segir allt sem segja þarf þegar gall­erí tekur sig til og heldur mynd­list­ar­sýn­ingu.  Það er einnig sam­svörun í heiti Gall­er­ís­ins – ein­fald­lega „Gall­er­íið heldur Sýn­ing­una.“

Sýn­ing­ar­sal­ur­inn í kart­öflu­geymsl­unum var upp­haf­lega reistur í Hval­firði sem sprengju­geymsla fyrir her­skip Banda­ríkja­manna í síð­ari heims­styrj­öld­inni en eftir stríð var hún flutt á núver­andi stað og nýtt sem kart­öflu­geymsla í ára­tugi. Bygg­ingin hefur nú verið end­ur­byggð frá grunni og byggt hefur verið við hana en fram­hlið hús­anna heldur sér.

„Það er mikil áskorun og vinna að koma upp svo stórri sýn­ingu margra, ólíkra mynd­list­ar­manna en þetta er ein­stak­lega áhuga­vert sýn­ing­ar­hús­næði sem býður upp á marga mögu­leika,“ segir Gunnella okkur en „það ríkir mikil til­hlökkun í hópnum yfir að fá tæki­færi til að taka á móti gestum sýn­ing­ar­vik­una 23.-31. októ­ber.“

Sýningin verður opnuð laug­ar­dag­inn 23. októ­ber, kl. 14-18 og verða léttar veit­ingar á boðstólum.

Sýningin verður síðan opin milli kl. 12-18 alla daga til og með 31. októ­ber.  

Facebook:   Gall­er­íið 

Sýnendur eru:

Árný Björk Birg­is­dóttir 

Charlotta María Hauks­dóttir 

Erna Jóns­dóttir 

Gunnella 

Harry Bilson

Íris Auður Jóns­dóttir

Jón Baldur Hlíðberg

Jón Þor­steins­son frá Ljár­skógum

Karl Jóhann Jónsson 

Kristín Hálf­dán­ar­dóttir

Krist­jana S. Williams

Kolbrún Frið­riks­dóttir

Laddi

Laufey Jens­dóttir

Margrét Erla Júl­í­us­dóttir

Margrét Laxness

Óskar Thoraren­sen

Sara Vilbergs

Tinna Royal

Vilborg Gunn­laugs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina