Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Þegar ég sendi bréf til útlanda er ég hættur að borga undir bréfið hans Sigga á Selfossi“

„Þegar ég sendi bréf til útlanda er ég hættur að borga undir bréfið hans Sigga á Selfossi“
Þór­hildur Ólöf Helga­dóttir, for­stjóri Íslands­pósts. Mynd/sam­sett

„Mig langar aðeins að vekja umræðu á þess­ari verð­breyt­ingu hjá póst­inum sem tekur gildi eftir 10 daga!

Breyt­ingin verður eftir svæðum (bæði verð­lækkun og hækkun eftir svæðum) sem þýðir það að lands­byggðin borgar meira en þeir sem eru t.d. staddir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Ekki nóg með það að póst­ur­inn rukki ólög­leg gjöld fyrir útlendar send­ingar heldur á nú að mis­muna ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum út frá því hvar þau eru stödd á land­inu.“

Þetta segir Daníel nokkur í færslu á neyt­enda­síð­unni „Vertu á verði – eft­ir­lit með verð­lagi“ á Facebook.

Þarna vísar Daníel í breyt­ingu á verð­skrá hjá Póstinum, sem tekur gildi þann 1. nóv­em­ber næst­kom­andi. Samkvæmt heima­síðu Póstsins taka breyt­ing­arnar til send­inga á fjöl­pósti og send­inga á 0-10 kílóa pökkum.

Ástæða breyt­ing­anna er sögð vera „ný lög sem kveða á um að ekki sé heim­ilt að inn­heimta sama gjald fyrir send­ingar um landið allt eins og fyrri lög kváðu á um.“

Enn fremur segir að laga­breyt­ingin verði til þess að fyr­ir­tækið aðlagi gjald­skrá sína, sem muni valda hækk­unum á verði sums staðar, en lækk­unum ann­ars staðar.

„Í árs­byrjun 2020 tóku gildi lög sem kváðu á um að sama gjald­skrá væri fyrir póst­send­ingar, óháð hvar á land­inu send­andi eða mót­tak­andi væri staddur. Markmið lag­anna var að kostn­aður við send­ingar á pósti væri sá sami um allt land.

Útfærsla þessa mark­miðs fól í sér að rík­is­sjóður nið­ur­greiddi hluta send­ing­ar­kostn­aðar fyrir við­skipta­vini á strjál­býlli svæðum til móts við send­anda.

Laga­breyt­ingar frá því í sumar kveða á um að Póstinum er ein­ungis heim­ilt að við­hafa sömu verð­skrá um allt land á bréfum undir 51 grammi.

Engin ákvörðun hefur verið tekin um breyt­ingu á verð­skrá að svo stöddu. Póst­ur­inn mun eftir sem áður sinna póst­send­ingum til allra lands­manna fyrir hönd rík­is­ins,“ segir á heima­síðu Póstsins.

„Senda þetta á Neytendasamtökin“

Það er því ljóst að breyt­ingin er frá rík­inu komin, er laga­legs eðlis og ekki að frum­kvæði Póstsins. Þrátt fyrir þetta virð­ast margir í ofan­greindum Facebook-hópi hafa sitt­hvað að segja um Póstinn og þjón­ust­una þar:

„Hef fengið 2 umbeðin bréf á síð­ustu mán­uðum (allt hitt er rusl­póstur, reikn­ingar eða slíkt). Annað tók 14 daga frá Hverf­is­götu í Selja­hverfi, hitt tók 8 daga frá Hafn­ar­firði í Selja­hverfi. Held það sé ekki verð sem fær mann til að missa trú á þess­ari þjón­ustu heldur bara þjón­ustan sjálf,“ segir Gestur til dæmis.

„Senda þetta á Neyt­enda­sam­tökin. Það þarf að taka þetta fyr­ir­tæki í gegn. Einka­væð­ing pósts­ins er eitt dæmið um algjört klúður. Neyt­endur þurfa að láta heyra í sér,“ segir Hall­fríður. Þröstur bendir henni þó á að það sé einmitt ríkið sem eigi Póstinn:

„Það er ekki búið að einka­væða póst­inn, hann er 100% í eigu rík­is­ins.“

„Takk fyrir að leið­rétta mig með það. En það er greini­lega eitt­hvað mikið að í stjórnun þessa fyr­ir­tækis. Ég hef hringt í Neyt­enda­sam­tökin vegna sér­kenni­lega mik­ils álags á pakka sem ég fékk frá útlöndum. Fékk að heyra að það væru eilíf klögu­mál í gangi vegna svip­aðra mála! Okkur neyt­endum ber skylda til að vera á verði og gera athuga­semdir, ekki síst ef fyr­ir­tækið er rekið fyrir okkar fé,“ segir Hall­fríður þá.

„Ertu að meina að þegar ég sendi bréf til útlanda er ég hættur að borga undir bréfið hans Sigga á Selfossi, og ég borga þess vegna minna?“ segir Ari og þykir laga­breyt­ingin greini­lega hið besta mál.

„Svo er þjón­ustan úti á landi alveg hörmu­leg, og alltaf að minnka. Samt eiga þau að borga meira,“ segir þá Rósa.

Paul þyk­ist hafa lausn­ina:

„Leggja niður Póstinn. Ger­sam­lega ónýt okur­stofnun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina