Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fimm manna fjölskylda flýr myglu -„Við erum í raun bara heimilislaus og allslaus.“

Fimm manna fjölskylda flýr myglu -„Við erum í raun bara heimilislaus og allslaus.“
Fjöl­skyldan. Á mynd­ina vantar elsta barnið Mynd: Guðrún Gunnsteinsdóttir

Fimm manna fjöl­skylda í Hval­fjarð­ar­sveit neyð­ist til að flytja úr leigu­í­búð sinni vegna myglu. Þurfa þau að fleygja allri búslóð sinni.

Álf­heiður Hildur Gunn­steins­dóttir og eig­in­maður hennar, Guð­laugur Smári Jóhanns­son, þurftu ásamt börnum sínum þremur að yfir­gefa á dög­unum íbúð sem þau höfðu verið að leigja. Ástæðan var sú að mygla kom upp í einu her­bergi íbúð­ar­innar. „Það kom stað­fest mygla í hús­inu sem við vorum að leigja, í að minnsta kosti einu her­bergi, í glugg­anum. Eig­and­inn skipti um glugga en ætl­aði sér ekki að gera neitt meira.“

Álf­heiður segir að hún og 11 ára dóttir hennar hafi fundið mikið fyrir mygl­unni. „Við höfum báðar verið mjög veikar. Þetta er farið að há dóttur minni rosa­lega. Ég var rétt í þessu að sækja hana í skól­ann.“ Ein­kennin hjá mæðg­unum eru ekki eins enda fer mygla mis­mun­andi í fólk. „Dóttir mín er með stans­lausan kláða og engin ofnæm­is­lyf hjálpa henni. Hún fær verki í húð­ina sem hlaupa oft um. Stundum er verk­ur­inn við háls­inn, stundum við mag­ann, stundum í bak­inum, stundum á lær­inu. Hún er búin að fara í alls kyns rann­sóknir og leggj­ast inn á Barna­spít­ala Hrings­ins en það finnur eng­inn hvað er að.“

Álf­heiður segir að þau séu nú loks­ins búin að hitta á lækni sem sé hand­viss um að þetta sé út af myglu.
Einkenni Álf­heiðar eru önnur en hjá dóttur hennar eins og áður sagði.

„Ég er sem sagt að detta út af vinnu­mark­aði, í bili alla­vega. Ég hef verið með kvíða, heila­þoku, málstol og almennt orku­leysi og ein­beit­ing­ar­skort. Það er rosa­legt að fá svona heila­þoku og málstol! Og svo er ég alltaf með skrítna verki og stundum doða, alltaf á vinstri hlið­inni. Stundum í lær­inu, stundum í hand­leggnum. Ég starfa á vinnu­stað fyrir fatl­aða en ég bara þoldi ekki áreitið þar, bara engan veg­inn.“

Fjöl­skyldan. Á mynd­ina vantar elsta barnið

Álf­heiður segir að þegar fjöl­skyldan heim­sótti for­eldra hennar norður á Strandir í sumar í 10 daga, hafi dóttur hennar stór­batnað á meðan. „En svo var þetta allt komið aftur tveimur dögum eftir að við komum aftur í íbúð­ina.“

Því neyð­ist fjöl­skyldan til að flytja út og henda öllu sem hún á.

„Lækn­ir­inn okkar segir að við munum aldrei ná okkur, nema við flytjum út úr þess­ari íbúð. Við þurfum líka að henda öllu sem við eigum, öllu.“ Mannlíf spurði Álfheiði hvort það ætti líka við fatnað. „Þurfum að henda fötum og bara öllu sem við eigum,“ svar­aði hún og virk­aði nokkuð upp­gefin. „Við erum í raun bara heim­il­is­laus og alls­laus.“

Vinir og vanda­menn fjöl­skyld­unnar hafa sett af stað söfnun fyrir þau og hægt er að sjá ban­ka­upp­lýs­ingar hér fyrir neðan.

0123-15-039686 Kt 200377-3389

Sjá upp­lýs­ingar um áhrif myglu á heilsu fólks á vefnum Heilsu­torg.is: Myglu­sveppir og heilsa

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina