Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Aðalmeðferð í máli Gráa hersins á föstudag: „Verður fróðlegt að heyra málflutning ríkisins“

Aðalmeðferð í máli Gráa hersins á föstudag: „Verður fróðlegt að heyra málflutning ríkisins“

Grái her­inn boðar til úti­fundar í til­efni af því að aðal­mál­flutn­ingur þriggja félaga Gráa hers­ins gegn Trygg­inga­stofnun f.h. íslenska rík­is­ins vegna skerð­inga stofn­un­ar­innar á elli­líf­eyri og heim­il­is­upp­bót á móti greiðslum frá líf­eyr­is­sjóðum fer fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur kl. 9.15 á morgun.

Helgi Pét­urs­son, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara: „það verður úti­fundur á Aust­ur­velli á föstu­dag­inn þegar aðal­með­ferð skerð­inga­máls­ins í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur er lokið, eða nánar til­tekið klukkan 14.“

Það getur brugðið til beggja vona með nið­ur­stöð­una í mál­inu, en Helgi seg­ist heyra í fólki sem spáir því að málið vinn­ist. „En það verður fróð­legt að heyra mál­flutn­ing rík­is­ins, hvernig það ver það þessar skerð­ingar, af hverju eru þær, hver stendur fyrir þessu og hvaða reikn­ings­kúnstir eru þetta?“

Nánari upp­lýs­ingar um málið:

Þrír félagar úr Gráa hernum, bar­áttu­hópi eldra fólks um líf­eyr­is­mál, hafa höfðað mál á hendur Trygg­inga­stofnun f.h. íslenska rík­is­ins vegna skerð­inga stofn­un­ar­innar á elli­líf­eyri og heim­il­is­upp­bót á móti greiðslum frá líf­eyr­is­sjóðum.

Máls­höfð­unin er reist á því sjón­ar­miði að með skerð­ingu opin­berra líf­eyr­is­greiðslna í hlut­falli við rétt­indi, sem elli­líf­eyr­is­takar hafa áunnið sér í líf­eyr­is­sjóðum með vinnu­fram­lagi sínu og iðgjöldum, sé gengið gegn stjórn­ar­skrár­vörðum eign­ar­rétti líf­eyr­is­taka.

Þessar skerð­ingar nemi allt að 56,9% af greiðslum úr líf­eyr­is­sjóði. Þegar einnig sé tekið til­lit til tekju­skatta sé því um að ræða ígildi eigna­upp­töku á allt að 72,9% greiðslna frá líf­eyr­is­sjóð­unum. Þetta sé brot á 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar og 1. gr. 1. við­auka mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um frið­helgi eign­ar­rétt­ar­ins, og ákvæðum 65. gr. stjórn­ar­skrár­innar og 14. gr. mann­rétt­inda­sátt­mál­ans, sem leggja bann við mis­munun.

Í stefn­unni er það rakið að kerfi skyldu­líf­eyr­is­sparn­aðar, sem komið var á fót með kjara­samn­ingum á árinu 1969, hafi verið ætlað að koma til við­bótar en ekki í stað almanna­trygg­inga. Með núver­andi skerð­ingum sé veru­legur hluti þess ávinn­ings sem rekja má til líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins hins vegar færður frá sjóð­fé­lögum til rík­is­ins. Í stað þess að sjóð­fé­lagar fái sjálfir notið líf­eyr­is­sparn­aðar síns séu rétt­indi þeirra í líf­eyr­is­sjóð­unum notuð til að draga úr útgjöldum rík­is­ins til almanna­trygg­inga.

Bent er á að gerðar séu ríkar kröfur um að inn­grip í eign­ar­rétt­indi upp­fylli þau skil­yrði um lög­mæti, rétt­mæti og með­al­hóf sem leiða af 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar. Íslenska rík­inu sé hins­vegar engin knýj­andi nauð­syn á að skera niður útgjöld sín til líf­eyris aldr­aðra með svo stór­felldum hætti, þar sem þau sam­svari nú aðeins broti af því sem varið er til þessa mála­flokks í nálægum löndum.

Hags­munir ein­stak­ling­anna af því að fá að njóta ávaxt­anna af líf­eyr­is­sparn­aði sínum séu því mun rík­ari en hags­munir rík­is­sjóðs af því að skerða þessi rétt­indi. Þá bitni skerð­ing­arnar á fámennum hópi ellíf­eyr­is­taka auk þess sem líf­eyr­i­s­tökum sé mis­munað inn­byrðis með ýmsum hætti.

Að baki máls­höfð­un­inni stendur Mál­sókn­ar­sjóður Gráa hers­ins sem sér­stak­lega hefur verið komið á fót til að fjár­magna mála­rekst­ur­inn. MAGNA lög­menn flytja mál ein­stak­ling­anna þriggja fyrir dómi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina