Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kolbrún hundskammar sögukennarann orðljóta í Garðabæ: „Skrif Páls um Helga Seljan eru til skammar“

Kolbrún hundskammar sögukennarann orðljóta í Garðabæ: „Skrif Páls um Helga Seljan eru til skammar“
Páll Vil­hjálms­son

„Tíminn og orkan sem ákveðnir starfs­menn Samherja hafa eytt í að ata Helga auri, og leggja hann í ein­elti og vakta ferðir hans, var hins vegar ekki til umfjöll­unar hjá Páli. Kannski finnst honum þær aðferðir hafa verið í góðu lagi. Ef svo er þá er það dæmi um afar sér­kenni­legt hug­ar­far,“ skrifar Kolbrún Berg­þórs­dóttir blaða­maður í leið­ara Frétta­blaðs­ins í dag í til­efni að rógs­her­ferð Páls Vil­hjálms­sonar, blogg­ara Morg­un­blaðs­ins og sögu­kenn­ara við Fjöl­braut­ar­skól­ann í Garðabæ, á hendur Helga Seljan, marg­verð­laun­uðum frétta­manni Rík­is­út­varps­ins.. Páll hefur upp­skorið for­dæm­ingu víða vegna skrifa sinna um að Helgi sé geð­veikur og að ekki ætti að treysta honum til að fara með dag­skrár­vald á rík­is­fjöl­miðli. Þetta skrifar hann á þeim grund­velli að Helgi hafi sjálfur lýst glímu sinni við þung­lyndi.

„Í skrifum sínum virt­ist Páll ganga út frá því að þetta gerði Helga ófæran til að sinna starfi rann­sókn­ar­blaða­manns, eða jafn­vel hvaða starfi sem er. Helst mátti af skrifum Páls ráða að almennt væri ekk­ert mark á Helga tak­andi. Páll virt­ist einnig telja að nú væri komin skýr­ing á því af hverju Helgi hefði unnið svo vask­lega við að rann­saka mál Samherja; hann væri hald­inn þrá­hyggju,“ skrifar Kolbrún.

Kolbrún Berg­þórs­dóttir

Í nið­ur­lagi leið­ar­ans fagnar Kolbrún því að sögu­kenn­ar­inn, sem lýsti Sam­herj­a­menn sak­lausa í nýlegum pistli, hafi ekki verið rek­inn. Tján­ing­ar­frelsið verði að vera leið­ar­ljósið.

„Ekkert breytir því þó að skrif hans um Helga Seljan séu honum til skammar. Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Helga Vala Helga­dóttir, orð­aði þetta af nákvæmni þegar hún sagði um þau skrif: „Þetta er nú meiri smá­sál­ar­hroð­inn.“

Leiðari Kol­brúnar í heild sinni:

Gott sam­fé­lag verður ekki skapað með ref­sigleði að vopni. Ákæra á til dæmis ekki að jafn­gilda sekt og fólk sem segir fárán­lega, jafn­vel hræði­lega hluti, á ekki sjálf­krafa að missa atvinnu sína og lífs­af­komu. Í sam­tíma okkar sjáum við þó ríka hneigð í þessa átt. Ref­sigleðin er grass­er­andi og hinn alræmdi dóm­stóll göt­unnar telur hana sjálf­sagða og eðli­lega og rétt­lætir hana auð­veld­lega með því að til­gang­ur­inn sé að upp­ræta illsku og for­dóma, sem við viljum nátt­úr­lega ekki búa við. Það er hins vegar alls ekki sama hvernig hlut­irnir eru gerðir. Sá sem sak­aður er um alvar­legt brot verður að fá tæki­færi til að svara ásök­unum í stað þess að vera sam­stundis kýldur niður og rúinn ærunni. Sá sem talar dólgs­lega á svo sann­ar­lega skilið að honum sé svarað, en á ekki að þurfa að þola það að vera rek­inn úr starfi. Á dög­unum skrif­aði Páll Vil­hjálms­son, kenn­ari og blogg­ari, pistil um frétta­mann­inn Helga Seljan, eftir að sá síð­ar­nefndi sagði í vin­sælum sjón­varps­þætti að hann hefði glímt við and­leg veik­indi og um tíma lagst inn á geð­deild. Í skrifum sínum virt­ist Páll ganga út frá því að þetta gerði Helga ófæran til að sinna starfi rann­sókn­ar­blaða­manns, eða jafn­vel hvaða starfi sem er. Helst mátti af skrifum Páls ráða að almennt væri ekk­ert mark á Helga tak­andi. Páll virt­ist einnig telja að nú væri komin skýr­ing á því af hverju Helgi hefði unnið svo vask­lega við að rann­saka mál Samherja; hann væri hald­inn þrá­hyggju. Tíminn og orkan sem ákveðnir starfs­menn Samherja hafa eytt í að ata Helga auri, og leggja hann í ein­elti og vakta ferðir hans, var hins vegar ekki til umfjöll­unar hjá Páli. Kannski finnst honum þær aðferðir hafa verið í góðu lagi. Ef svo er þá er það dæmi um afar sér­kenni­legt hug­ar­far. Páll starfar enn sem kenn­ari, þrátt fyrir skrif sín um Helga Seljan. Ein­hverjir vildu að hann yrði rek­inn úr starfi vegna þeirra. Skóla­meist­ari skól­ans, sem Páll starfar við, er afar ósáttur við skrif hans og gerir athuga­semdir við þau, en telur rétt að Páll haldi starf­inu. Það er skyn­sam­leg afstaða. Við búum í landi þar sem tján­ing­ar­frelsi á að vera ríkj­andi. Páll nýtur þess, eins og hann á að gera. Ekkert breytir því þó að skrif hans um Helga Seljan séu honum til skammar. Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Helga Vala Helga­dóttir, orð­aði þetta af nákvæmni þegar hún sagði um þau skrif: „Þetta er nú meiri smá­sál­ar­hroð­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina