Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Rakel: „Ég á langa og erfiða fjölskyldusögu í tengslum við krabbamein og tek ekki þessa áhættu“

Rakel: „Ég á langa og erfiða fjölskyldusögu í tengslum við krabbamein og tek ekki þessa áhættu“

„Ég er sér­leg áhuga­mann­eskja um breyt­inga­skeiðið og 45 ára var ég byrjuð að huga að því hvernig best væri að und­ir­búa sig fyrir það. Við förum allar, reyndar öll, í gegnum breyt­inga­skeiðið á ein­hverjum tíma­punkti en það er mis­mun­andi hvernig það hittir okkur,“ segir Rakel Fleckenstein Björns­dóttir, jóga- og qigongkennari, sem ætlar að fræða okkur aðeins um nálgun horm­óna­jóga á breyt­inga­skeiðið.

Upplýsingarnar sem liggja fyrir eru takmarkaðar

Sumar konur skauta létti­lega í gegnum það á meðan aðrar eru und­ir­lagðar. Þær eru ótelj­andi sög­urnar af konum sem upp­lifa hræði­lega tíma, miklar breyt­ingar og í langan tíma, allt upp í 12 ár. Upp­lýs­ing­arnar sem fyrir liggja um mögu­leg ein­kenni breyt­inga­skeiðs­ins eru mjög tak­mark­aðar. Ein­kennin eru nefni­lega mun fleiri en okkur grunar.

Ég á langa og erf­iða fjöl­skyldu­sögu í tengslum við krabba­mein og tek ekki þessa áhættu.

„Og úrræðin eru fá, ann­að­hvort bítur þú á jaxl­inn, mögu­lega í 12 ár, eða tekur inn horm­óna­lyf með öllum þeim auka­verk­unum sem þeim fylgja. Þetta síð­ara hugn­að­ist mér ekki. Ég á langa og erf­iða fjöl­skyldu­sögu í tengslum við krabba­mein og tek ekki þessa áhættu. Ég er samt alls ekki á móti horm­óna­lyfjum. Sumar þurfa á þeim að halda í ein­hvern ákveð­inn tíma og horm­óna­jóga getur svo hjálpað þeim að kom­ast af lyfj­unum.  Horm­óna­jóg­anu fylgja engar þekktar auka­verk­anir, bara bætt heilsa og ávísun á ynd­is­legt breyt­inga­skeið.“

Fór til Þýskalands til að læra fræðin

Rakel hefur alltaf stundað ein­hverjar íþróttir og verið með­vituð um heil­brigt líf­erni. Lengi vel æfði hún sund en svo tók jóga­á­hug­inn við og átti hug hennar, sem og lífs­orku­æf­ing­arnar qigong.

Ég er eini kenn­ar­inn á Íslandi sem hef rétt­indi til að kenna horm­óna­jóga

„Árið 2018 frétti ég af horm­óna­jóga og höf­undi þess Dinah Rodrigues frá Brasilíu og fór til Þýska­lands og nam fræðin hjá henni. Í kjöl­farið þýddi ég og gaf út bók eftir Dinah um horm­óna­jóga fyrir konur á breyt­inga­skeiði og byrj­aði að kenna í jan­úar 2019. Nemendur mínir skipta hund­ruðum og árangur þeirra sem halda áfram og sýna þol­gæði er alveg magn­aður. Ég er eini kenn­ar­inn á Íslandi sem hef rétt­indi til að kenna horm­óna­jóga.“

Margir sofa allt of lítið og státa sig jafnvel af því

Rakel útskýrir fyrir okkur að Land­læknir ráð­leggi fólki að hreyfa sig í 30 mín­útur á dag til að bæta svefn. Svefninn skiptir okkur öllu máli. Margir sofa allt of lítið og státa sig jafn­vel af því. Þetta er kol­röng þróun og mik­il­vægt að snúa þessu við. Eitt það fyrsta sem fólk finnur fyrir þegar það stundar horm­óna­jóga er bættur svefn. Um leið og svefn­inn lag­ast og svefn­gæðin verða betri verðum við and­lega sterk­ari og þá tekst okkur betur að takast á við dag­leg verk­efni og gera það sem þarf.

Það er eig­in­lega alveg sama hvað við gerum, ef við ekki slökum á inni á milli og drögum úr streitu, þá virkar ekk­ert annað.

„Í horm­óna­jóga þarf þol­gæði. Það er ekki pilla sem tekin er inn og það er heldur ekki eins skiptis lausn. Horm­óna­jóga er æfingar sem þarf að gera reglu­lega, helst dag­lega og helst á morgn­ana. Seinnipart dags eða á kvöldin gerum við svo slök­unaræf­ingar og náum okkur niður eftir dag­inn. Það er mjög mik­il­vægt að geta slakað á. Ef maður kann það ekki þá þarf maður að læra sér­stakar æfingar til þess. Það er eig­in­lega alveg sama hvað við gerum, ef við ekki slökum á inni á milli og drögum úr streitu, þá virkar ekk­ert annað. Horm­ónjóga, og qigong fyrir konur, kemur sterkt þar inn.“

Áherslan er lögð á að draga úr streitu

Horm­óna­jóga er með­ferð­ar­form, ákveðin æfinga­röð sem er end­ur­tekin. Í horm­óna­jóga er verið að breyta ákveðnu ástandi, eða bæta, í lík­am­anum sem er til­komið vegna minnk­andi horm­óna­bú­skapar og ójafn­vægis á horm­óna­starf­sem­inni. Áherslan er lögð á að örva og end­ur­virkja horm­óna­bú­skap lík­am­ans og draga úr streitu.

Eins og fram kom hér að ofan þá eru það ekki ein­göngu konur sem ganga í gegnum breyt­inga­skeiðið. Karlar gera það líka! Dinah ákvað að mæta þeirra þörfum og þró­aði æfinga­röð fyrir karla. Hún þró­aði einnig æfinga­röð fyrir syk­ur­sjúka.

 Horm­óna­jóga fyrir karla og fyrir syk­ur­sjúka

„Þessa dag­ana sit ég og þýði bæk­urnar um Streitu­los­andi horm­óna­jóga fyrir karla og Horm­óna­jóga fyrir syk­ur­sjúka en hug­myndin er að þær komi út í einni bók eftir ára­mótin hjá bóka­út­gáf­unni Yoga Natura ehf., sem er í eigu fjöl­skyld­unnar.“

Samhliða þessu kennir Rakel byrj­enda­nám­skeið og upp­rifj­unar- og end­ur­mennt­un­ar­nám­skeið í horm­óna­jóga fyrir konur og nám­skeið í qigong sem er sér­stak­lega ætlað konum og kall­ast HEILLANDI LÓTUS.

„Heims­far­ald­ur­inn færði okkur Zoom. Núna er ég með alla mína tíma bæði í Ljós­heimum í Borg­ar­túni 3 og á Zoom, þannig að konur geta valið hvort þær mæta í sal­inn eða eru heima. Þetta hefur líka orðið til þess að konur á lands­byggð­inni geta tekið þátt, sem er frá­bært.“

En hvernig fara þessar æfingar fram?

„Horm­óna­jóga er frá­brugðið öðru jóga að því leyti að það er með­ferð­ar­tengt. Það er líka dýnamískara en annað jóga og orku­lík­am­inn er virkj­aður allan tím­ann. Kirtl­arnir og líf­færin sem við erum að vinna með, eggja­stokkar, eistu, bris, skjald­kirt­ill o.fl., eru nudduð innan frá með ákveð­inni önd­un­ar­tækni og síðan er gert svo­kallað orkuflæði sem tekið er úr qigong.

Horm­óna­jóga er heild­stætt jóga og vinnur með lík­amann í heild sinni. Það vinnur á lík­am­lega svið­inu (styrkir vöðva, eykur lið­leika og styrkir beinin), á líf­eðl­is­fræði­lega svið­inu (örvar og end­ur­virkjar fram­leiðslu horm­óna), á and­lega svið­inu (dregur úr streitu, svefn­leysi, þung­lyndi o.fl.) og á orku­svið­inu (virkjar orku­stöðv­arnar og auð­veldar dreif­ingu orku (prana eða Qi).“

Þær þarf að gera helst dag­lega í 4-6 mán­uði ef við ætlum að breyta ákveðnu ástandi

Sömu æfingar gerðar á sama hátt

Horm­óna­jóga­æf­ingarað­irnar þrjár (konur, karlar og syk­ur­sjúkir) taka um það bil 30 mín­útur.

„Þetta eru alltaf sömu æfing­arnar og alltaf gerðar á sama hátt. Þær þarf að gera helst dag­lega í 4-6 mán­uði ef við ætlum að breyta ákveðnu ástandi og síðan að við­halda eftir það og gera að lág­marki tvisvar í viku.“

Horm­óna­jóga sam­anstendur af: jóga­stöðum (Asanas), önd­unaræf­ingum (Prana­yama) sem nudda líf­færin í stöð­unni og qigong eða tíbetskri orku­tækni sem beinir orkunni til líf­fær­anna. Allt þetta þrennt þarf að fara saman til að æfing­arnar virki. Það er ekki nóg að gera bara jóga­stöð­urnar, eða bara önd­unaræf­ing­arnar og heldur ekki nóg að hug­leiða bara. Þetta þrennt þarf að fara saman. Það er gald­ur­inn í horm­óna­jóga.

Hér er hægt að fræð­ast um nám­skeiðin í horm­óna­jóga.

Horm­óna­jóga fyrir konur: Best er að byrja í kringum 45 ára ald­ur­inn og vera þá komin með tækin í hend­urnar og vita nákvæm­lega í hvaða átt er stefnt. Konur á snemm­búnu breyt­inga­skeiði, með engar blæð­ingar, miklar blæð­ingar, fyr­ir­tíða­spennu, bólur og PCOS geta byrjað fyrr. Horm­óna­jóga gagn­ast þeim öllum. Horm­óna­jóga hefur líka hjálpað fjöl­mörgum konum að verða barns­haf­andi. Dinah státar sig af því að eiga jóga­börn út um allan heim. „Við ungar konur vil ég ég segja: Um leið og þú ert búin að ákveða að þig langi til að eign­ast barn skaltu byrja að gera æfing­arnar. Gerðu þær eins oft og þú getur í eitt ár, tvö ár, þrjú ár og líttu á þær sem alhliða heilsu­efl­ingu. Ef þú verður ekki þunguð ert þú alla­veg­anna mun betur undir það búin, bæði and­lega og lík­am­lega, að takast á við tækni­frjóvgun eða annað.“

Horm­óna­jóga fyrir karla: Karl­arnir bragg­ast mjög fljótt og sýna reynslu­sögur í vænt­an­legri bók ótrú­legan árangur á skömmum tíma. Minnk­andi horm­óna­starf­semi hjá körlum (upp úr fimm­tugu) getur haft mikil áhrif bæði and­lega og lík­am­lega og getur dregið úr þeim kjarkinn og þeim finnst þeir ekki vera að standa sig, hvorki í bólinu né í líf­inu almennt. Streita er oft vanda­mál hjá þessum hópi og því er gert ráð fyrir streitu­los­andi æfingum í horm­óna­jóga.

Horm­óna­jóga fyrir syk­ur­sjúka: Horm­óna­jóga læknar ekki syk­ur­sýki en gerir syk­ur­sjúkum, bæði þeim sem eru með teg­und 1 og teg­und 2, kleift að hafa betri stjórn á blóð­sykrinum og það örvar brisið. Syk­ur­sýkin er þannig sjúk­dómur að sjúk­ling­ur­inn hefur mikið um það að segja hvernig sjúk­dóm­ur­inn þró­ast. Öll hreyf­ing er góð fyrir syk­ur­sjúka. Dagleg ástundun horm­óna­jóga með æfingum sem er ætlað að örva brisið og draga úr streitu hjálpar þeim að halda um stjórn­taumana og bætir alhliða heilsu þeirra og eykur and­lega vellíðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una