Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fóru yfir Atlantshafið á lítilli skútu – Stærsta fíkniefnasmygl Íslandssögunnar

Fóru yfir Atlantshafið á lítilli skútu – Stærsta fíkniefnasmygl Íslandssögunnar

Það var í sept­em­ber á því herr­ans ári, 2007 að sködduð seglskúta sigldi inn í Fáskrúðs­fjar­ar­höfn. Bar skútan rang­nefnið Lucky Day. Tveir menn voru um borð, þeir Alvar Ósk­ars­son og Guð­bjarni Trausta­son. Það leið ekki á löngu áður en höfnin ljóm­aði upp með blikk­andi bláum ljósum.

Fjöldi sér­sveit­ar­manna komu úr felum sínum og hand­tóku menn­ina tvo sem og þriðja mann­inn sem tók á móti þeim á höfn­inni.

Síðar átti eftir að koma á dag­inn að íslenska lög­reglan í sam­starfi við nokkur erlend lög­reglu­emb­ætti hafi fylgst með ferðum tví­menn­ing­anna og þeirra sam­starfs­manna, allt frá lokum árs­ins 2006. Í skút­unni var að finna ósköpin öll af eit­ur­lyfjum. Um 23,5 kíló af amfetamíni fannst þar sem og tæp 14 kíló af MDMA dufti og 1.746 MDMA töflur. Um var að ræða stærsta fíkni­efna­smygl Íslands­sög­unnar. Kall­að­ist lög­reglu­að­gerðin Pól­stjarnan. Hafði aðgerðin staðið yfir í langan tíma. Eins og fyrr segir starf­aði lög­reglan á Íslandi í sam­starfi við erlend lög­reglu­yf­ir­völd en þau voru í Danmörku, Færeyjum, Þýska­landi, Hollandi og Noregi. Tengiliður íslensku lög­regl­unnar hjá Europol sá um sam­starfið.

Í bók sinni Aðgerð Pól­stjarna, lýsti Ragn­hildur Sverr­is­dóttir taugatrekkj­andi bið lög­regl­unnar eftir skút­unni. „Nóttin leið í tauga­spennu. Skip­verjar á skút­unni virt­ust ekk­ert alltof klárir á kúrs­inum. Þeir vor­u­r­eyndar enn svo langt frá landi að örlítil breyt­ing á stefnu þar úti­rugl­aði menn í landi í rím­inu og gerði þeim ókleift að álykta með fullri vissu hvert skútan stefndi. Kannski voru skútu­menn­irnir alls ekki vissir um hvar þeir voru staddir. Það var rign­ing, skyggni var mjög slæmt og aðeins fyrir kunn­uga að átta sig á hvaða fjörður
var fyrir framan stefnið. Sigl­inga­lagið var hik­andi, en frá skút­unni hafa menn varla séð nema stærstu fjöll. Lög­reglu­menn­irnir bölv­uðu sumir, bæði hátt og í hljóði. En þeir ætl­uðu sér ekki að missa þol­in­mæð­ina núna, eftir þessa löngu rann­sókn, sem hafði svo oft reynt á þol­rif þeirra. Um þrjúleytið voru menn vissir um að skútan kæmi annað hvort inn á Fáskrúðs­fjörð eða Stöðv­ar­fjörð. Þeir fylg­ust ekki bara með ferðum skút­unnar með aðstoð áhafn­ar­innar á Ægi, heldur höfðu vök­ult auga með öllum manna­ferðum uppi á landi. Rétt fyrir klukkan þrjú ók maður niður á bryggj­una á Stöðv­ar­firði, stöðv­aði bíl sinn og gekk út úr honum. „Finnið út hver þetta er!“ kall­aði Brandur, stjórn­andi aðgerða fíkni­efna­lög­regl­unnar á staðnum. Þetta reynd­ist vera heima­maður, alls ótengdur sigl­ingu skútu með fíkni­efni frá Danmörku. Undir morgun var ljóst hvert skútan stefndi. Hún skreið inn á Fáskrúðs­fjörð
áður en eld­aði af degi.“

Tví­menn­ing­arnir, Alvar og Guð­bjarni höfðu siglt skút­unni yfir Atl­ants­hafið en þeir voru reyndar ekki einir að verki. Einar Jökull Ein­ars­son var ákærður fyrir að skipu­leggja smyglið en einnig voru þeir Arnar Gúst­afs­son, Bjarni Hrafnskels­son og Marínó Einar Árnason, ákærðir fyrir að eiga þátt í glæp­inum. Sterkur grunur var um að annar maður hefði verið heil­inn á bak­við smyglið en Einar Jökull neit­aði að segja hver það væri. Þegar dóm­ar­inn í mál­inu spurði hann í rétt­ar­höld­unum hvernig honum hafi dottið í hug að senda menn á lít­illi seglskútu yfir Atl­ants­hafið í miðjum sept­em­ber, svar­aði Einar Jökull með þeim orðum að „þetta þolir allan and­skot­ann“

Hlutu menn­irnir 18 til níu og hálfs árs fang­elsi. Einar Jökull hlaut þyngsta dóm­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina