Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Brotthvarf Sólveigar Önnu: „Forystan stefndi að því að hreinsa út alla starfsmenn og þekkingu“

Brotthvarf Sólveigar Önnu: „Forystan stefndi að því að hreinsa út alla starfsmenn og þekkingu“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Skjáskot/RÚV

Sólveig Anna sendi frá sér yfir­lýs­ingu seint í gær­kvöldi þar sem hún greindi frá afsögn sinni. Í yfir­lýs­ing­unni segir að starfs­fólk Eflingar hafi hrakið hana úr starfi. Hvorki næst í Sólveigu Önnu né Viðar Þor­steins­son fram­kvæmda­stjóra og lýsir starfs­fólk á skrif­stofu Eflingar stöð­unni þannig að allt sé í lausu lofti.

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar, mun afhenda upp­sagn­ar­bréf sitt í dag og hætta þannig störfum fyrir félagið.

„Mér þykir það ótrú­legt að það sé starfs­fólk Eflingar sem í reynd hrekur mig úr starfi, með því að leyfa and­stæð­ingum félags­ins að hossa sér á ýkjum, lygum og rang­færslum um mig og sam­verka­fólk mitt. Starfs­fólk Eflingar hefur kosið að svipta mig því vopni sem hefur gert mér mögu­legt að leiða sögu­lega og árang­urs­ríka bar­áttu verka- og lág­launa­fólks síð­ustu ár, mann­orði mínu og trú­verð­ug­leika,“ segir Sólveig í yfir­lýs­ingu á Facebook.

Þráinn Hallgrímsson, fyrrverandi skrifstofustjóri Eflingar

Mannlíf hafði sam­band við Þráinn Hall­gríms­son, fyrr­ver­andi skrif­stofu­stjóri Eflingar sem vildi lítið tjá sig um málið og sagði að það væri að skýr­ast af sjálfu sér.

Í grein Þráins sem var birt var í Morg­un­blað­inu 25. sept­em­ber 2019 sagði Þráinn að: „mín skoðun er sú að hin nýja stétt í for­ystu Eflingar stefni að því að hreinsa út alla starfs­menn og þekk­ingu sem kemur úr eldra umhverfi félags­ins.“

Þráni var sagt upp störfum sem skrif­stofu­stjóra Eflingar á sínum tíma fyr­ir­vara­laust á starfs­manna­fundi.

Ári síðar var öðrum starfs­manni Eflingar gert að mæta sam­stundis hjá fram­kvæmda­stjóra þar sem fyrir var „full­trúi starfs­manna“ sem fram­kvæmda­stjóri hafði sjálfur valið til setu á fund­inum. Ástæða upp­sagnar var sögð skipu­lags­breyt­ingar. Fljót­lega kom í ljós að það var fyr­ir­sláttur enda voru ráðnir þrír nýir starfs­menn um svipað leyti og engin af verk­efnum við­kom­andi starfs­manns voru lögð niður. Áminn­ing­ar­fer­ill var ekki virtur í sam­ræmi við ákvæði kjara­samn­ings. Í næsta her­bergi beið einn lög­manna ASÍ. Þegar starfs­mað­ur­inn neit­aði að skrifa undir mót­töku upp­sagn­ar­bréfs tók lög­maður ASÍ að sér að reyna að sann­færa starfs­mann­inn um að þessi fram­koma fram­kvæmda­stjór­ans væri í lagi. Enginn varði hags­muni starfs­manns­ins á fund­inum.

Ástæða yfir­lýs­ingar trún­að­ar­manna félags­ins í dag er ógn­ar­stjórn­un­ar­til­burðir Sól­veigar. Yfir­lýs­ingin var send fyrir hönd starfs­manna Eflingar í sumar en á nýlegum starfs­manna­fundi félags­ins bauð Sólveig starfs­fólki Eflingar að stað­festa frá­sögn­ina. Það var gert og taldi Sólveig sér ekki stætt sem for­maður lengur og sagði því af sér.

Sólveig sögð halda úti „aftökulista

Ástæða þess að Sólveig Anna ávarp­aði starfs­fólk var sú að trún­að­ar­menn starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar sam­þykktu ályktun 9. júní síð­ast­lið­inn sem send var á hana og aðra stjórn­endur félags­ins. Í umræddri ályktun mun Sólveig Anna hafa verið sökuð um að halda úti „aftöku­lista“ yfir starfs­fólk sem henni væri ekki þókn­an­legt og að hún hefði brotið kjara­samn­inga með fyr­ir­vara­lausum upp­sögnum, auk ann­ars. Í stöðu­upp­færslu sinni segir Sólveig Anna að hanni hafi verið brugðið vegna texta álykt­un­ar­innar „sem var ekki sann­leik­anum sam­kvæmur og að mínu mati skrif­aður af miklu dóm­greind­ar­leysi, en ég bland­aði mér þó ekki í þetta mál heldur fól öðrum stjórn­endum að bregð­ast við, sem þau gerðu hratt og fag­lega. Skrifleg stað­fest­ing barst frá trún­að­ar­manni þar sem mál­inu var sagt lokið.“

Á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku hafði frétta­maður Rík­is­út­varps­ins sam­band við Sólveigu Önnu til að spyrja hana út í umrædda ályktun. Í kjöl­far þess ákvað hún að ávarpa starfs­fólk skrif­stofu Eflingar að morgni síð­asta föstu­dags. „Ég sagði við starfs­fólk á þessum fundi að það væru tveir kostir í stöð­unni. Annað hvort kæmi eitt­hvað skrif­legt frá þeim sem myndi bera til baka ofstæk­is­fullar lýs­ingar úr ályktun trún­að­ar­manna og orð sem frétta­maður not­aði um „ógn­ar­stjórn“, eða að ég myndi segja af mér for­mennsku í félag­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina