Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ofbeldismál verðlaunaknapans: „Stelpur innan hestabransans forðast Jóhann eins og heitan eldinn“

Ofbeldismál verðlaunaknapans: „Stelpur innan hestabransans forðast Jóhann eins og heitan eldinn“
Jóhann Rúnar

Eftir að upp komst að besti knapi Íslands, lík­lega frá upp­hafi, Jóhann Rúnar Skúlason eigi að baki hrotta­legan ofbeld­is­feril hefur heimur hesta­manna hrein­lega snú­ist á hvolf.

Eftir tvær greinar sem Mannlíf birti um voða­verk Jóhanns Rúnars Skúl­as­sonar var hann rek­inn úr hesta­lands­liði Íslands.Fyrir suma í hesta­heim­inum koma þessar fregnir eins og þruma úr heið­skýru lofti enda Jóhann Rúnar ein­fald­lega stór­stjarna í íslenska hesta­heim­inum; hefur unnið allt sem hægt er að vinna, margoft.Á hinn bóg­inn eru það ansi margir sem segja að ofbeld­is­verk Jóhanns Rúnars hafi verið mörgum full­kunn­ugt um; en af því að hann hefur verið svo sig­ur­sæll þá hefur hingað til ekki þótt nægi­leg ástæða að berja konu og nauðga barni til að vísa honum úr lands­lið­inu – hvað þá tala opin­skátt um það sem verið hefur á margra vit­orði í ára­tugi; að stór­stjarnan í íslenska hesta­heim­inum sé hrotta­legur ofbeld­is­maður.Enginn innan íslenska hesta­heims­ins hefur til viljað tjá sig um Jóhann Rúnar Skúlason og hefur blaða­maður Mannlífs rek­ist á marga veggi þögg­unar; hins vegar eftir að málið komst í hámæli eftir umfjöllun Mannlífs og Jóhann Rúnar var rek­inn úr lands­lið­inu með skömm hefur aðeins rofað til í þögg­un­ar­þokunni.Kona sem ekki vill koma fram undir nafni sam­þykkti að svara nokkrum spurn­ingum blaða­manns Mannlífs. Hún hefur verið í um 30 ár í hesta­mennsk­unni og verið í stjórnum og komið víða við í þessum oft­ast fal­lega heimi sem heimur íslenska hests­ins er.

Af hverju hefur verið svona mikil þöggun í kringum mál Jóhanns Rúnars Skúla­sonar, þegar það virð­ist deg­inum ljós­ara að margir vissu af afbrota­ferli hans?

Hræðsla, já hræðsla. Sjálf heyrði ég af því að hann hefði hlotið dóm þegar hann var ungur, en vissi ekki að það hefði verið nauðgun á 13 ára barni. Síðan var því hvíslað að hann hefði verið dæmdur í Danmörku og rétt losnað við ökkla­bandið fyrir heims­meist­ara­mótið 2019.

Trúðir þú þessu um Jóhann Rúnar?

Já, og nei, erfitt að svara þess­ari spurn­ingu. En, já, ég trúði þessu en af ein­hverjum ástæðum gerði ég ekk­ert í mál­unum og skamm­ast mín fyrir það; maður var að vona að þetta væri bara bull og þvæla, í besta falli slúður. En þetta var ósk­hyggja hjá mér sem og með­virkni. Þetta er bara eins og Ólafur Stef­áns­son hefði gert eitt­hvað við­líka eftir silfrið á ÓL í hand­bolta árið 2008. Það vill eng­inn trúa svona þótt innst inni viti maður mögu­lega að þetta sé satt.

Hvað veldur slíku, með­virkni og þöggun?

Þetta er ákveð­inn lífs­stíll, hesta­mennskan. Ákveðinn heimur í sam­fé­lag­inu sem stendur oft­ast vel saman ef eitt­hvað kemur uppá, nema í þessu til­viki Jóhanns. Fólk, ég, vil að þetta skemmti­lega áhuga­mál sé ekki upp­fullt af ofbeldi og þöggun, og það er það auð­vitað ekki. Allavega ekki alveg. En varð­andi þetta mál þá féllum við öll á próf­inu, létum full­yrð­ingar ein­hverra stórra karla um að allt tengt honum og ofbeldi væri bull.

Vildu segja mér hvaða ein­stak­lingar það eru?

Nei, ekki núna. Vil ekki nafn­greina að svo stöddu.

En vissu margir innan Lands­sam­bands Hesta­manna­fé­laga, stjórn­ar­menn og stjórn­ar­konur, aðrir kepp­endur, tamn­inga­fólk og lands­liðsein­valdar sem og almennir hesta­á­huga­menn um vafa­samt orð­spor Jóhanns Rúnars?

Já, svo sann­ar­lega! Þetta var altalað, eða alhvíslað, ef svo mætti segja. En eng­inn þorði að standa upp og slá í borðið og gera eitt­hvað; þar á meðal ég. Allir sem voru ofar­lega í stjórnum til dæmis fyrir stóra mótið 2019 vissu að Jóhann hefði fengið dóm í Danmörku, samt var hann val­inn, sem er hneysa og lands­sam­band­inu til ævar­andi skammar.

Hvað er til ráða svo núver­andi ástand breyt­ist til hins betra?

Það verður að rann­saka málið ofan í kjöl­inn; stjórnin verður að svara fyrir sig og bara allir sem hafa komið nálægt vali hans í lands­liðið og vitað af ofbeld­is­verkum Jóhanns. Ég ætla ekk­ert að full­yrða, en það er hvíslað mikið innan hesta­heims­ins að þessi tvö mál sem þið (Mannlíf) hafið sagt frá séu mun fleiri. En ég vil ekki full­yrða það, en það er mikið talað um það.

Ert þú og margir aðrir innan íslenska hesta­heims­ins hrein­lega hrædd við Jóhann Rúnar Skúlason?

Já

Af hverju?

Það er ekki þægi­legt að vera nálægt honum, og margar stelpur innan hesta­brans­ans forð­ast hann eins og heitan eld­inn. En hann býr auð­vitað í Danmörku og er ekki alltaf hérna á Íslandi, en fólk, sér­stak­lega yngri stelpur, eru smeykar við hann.

Eitthvað annað við hann sem hræðir fólk?

Ég veit ekki hvað ég á að þora að segja, hann hefur aldrei gert mér eða mínum eitt­hvað, en það afsakar ekki gjörðir hans. Ég hef bara, eins og margir í brans­anum, heyrt að hann eigi afar vafa­sama vini eða félaga úr und­ir­heimunum, og ég þori ekki að nefna nöfn, en einn fræg­asti und­ir­heima­maður Íslands er góður kunn­ingi Jóhanns.

Viltu ekki segja hver það er?

Nei.

Hvað sérðu fyrir þér að muni ger­ast í kjöl­far þess­ara tíð­inda í hesta­heim­inum hér á landi?

Vonandi upp­stokkun og gegn­sæi. Það verður að ryðja úr vegi þessu mikla karla­veldi sem þessi heimur býr við, og þeirri þöggun og yfir­hylm­ingu sem karla­veld­inu fylgir.Vonandi verður þetta mál til þess að ljósi verður varpað á öll skúma­skot, hvort sem er í hest­húsum, reið­höllum og bara í hesta­sam­fé­lag­inu öllu, og reyndar bara í öllu okkar sam­fé­lagi almennt; það er komið nóg af þessum fréttum um menn sem berja og nauðga – en þeim fréttum mun ekki fara fækk­andi ef ger­end­urnir hætta ekki þessu ógeði.Svo hvet ég öll fórn­ar­lömb til að segja frá þótt það sé erfitt; það er orðið auð­veld­ara í dag að stíga fram og segja sögu sína og sækja sinn rétt. Mér finnst ég ekki vera í neinni stöðu til að segja fólki hvað skuli gera, þetta er svo nýtil­komið og ég er enn að jafna mig; en ég er afar ósátt við marga útaf þessum hræði­legu ofbeld­is­málum og þar á meðal er ég ósátt við sjálfa mig. En nú þurfum við að breyta um kúltúr – svona lagað gengur ekki lengur hvort sem það er knatt­spyrna, hesta­mennska eða eitt­hvað annað sport; þessu ofbeldi verður að linna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina