Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sigurður G. um „baráttukonur“: „Þeim er ekki treystandi og síst af öllu til nokkurra góðra verka“

Sigurður G. um „baráttukonur“: „Þeim er ekki treystandi og síst af öllu til nokkurra góðra verka“
Sigurður G. Guð­jóns­son

Sigurður G. Guð­jóns­son, lög­maður skrif­aði í dag harð­skeyttan pistil á Facebook síðu sinni þar sem hann skítur föstum skotum á konur sem kalla sig bar­áttu­konur. Sigurður nafn­greinir fjöld­ann allan af konum sem hafa verið virkar í umræðu á sam­fé­lags­miðlum um ofbeldi gegn konum. Sakar hann þær um ofstæki, brot á per­sónu­vernd og skipu­lagðar aðfarir á mann­orði manna án rétt­mæts til­efnis. Meðal kvenn­anna sem Sigurður tekur fyrir í pistli sínum er áhrifa­vald­ur­inn og hlað­varps­stýran Edda Falak og með­limir bar­áttu­hóps­ins Öfgar.

„Þegar litið er yfir þá slóð sem bar­áttu­kon­urnar skilja eftir sig á sam­fé­lags­miðlum bæði í opnum og lok­uðum hópum vekja aðferðir þeirra og atlögur gegn ein­stökum mönnum óhug.“

Þá vitnar Sigurður óbeint í frétt Mannlífs um svo­kallað hvísl sem stundað er í lok­uðum Facebook hópi sem kall­ast Aðgerð­ar­sinnar gegn nauðg­un­ar­menn­ingu.

„Með skipu­lögðum hætti er komið á fram­færi full­yrð­ingum um að nafn­greindir karl­menn séu ofbeld­is­menn og nauð­garar, þó ekk­ert liggi þar að baki, engin kæra, eng­inn dómur, ekk­ert. Hvíslið á net­inu á að duga til að slaufa þeim, útskúfa og koma í veg fyrir að þeir hafi í sig og á.“ Sigurður tekur nokkur dæmi þar sem hann meðal ann­ars til­tekur andóf gegn starf­semi Reynis Berg­manns, sem rekur skyndi­bita­stað­inn Vefjuna.

„Þannig hefur nú um nokkra hríð mark­miðið verið að ganga frá litlu fyr­ir­tæki manns sem kall­aður er nauð­gari og ofbeld­is­maður. Gefum Sölku Sigmars orðið í þeirri bar­áttu ,,Getum við látið vefj­una fara á hausin plís”. Undir þetta er tekið af öðrum og bætt um betur og eitt meintra fórn­ar­lamba látið koma fram hjá Eddu Falak til að draga upp sem dekksta mynd. Engu skiptir fyrir umræð­una þó fórn­ar­lömb ofstækiskvenna þess­ara hafi verið sýknuð af öllum sökum.“

Sigurður talar einnig um andróður kvenn­anna gegn Agli Ein­ars­syni, oft kall­aður Gillzenegger, en kvartað hefur undan því  að hann leiki í hinni geysi­vin­sælu kvik­mynd Leynilögga. Egill var tvisvar kærður fyrir nauðgun fyrir mörgum árum en bæði málin voru látin niður falla eftir rann­sókn lög­reglu.
Þá gerð­ist Egill sekur um karl­rembu og frekar ógeð­felld skrif snemma á öld­inni en hann hefur síðan þá geng­ist við því og beðist afsök­unar.

„Ekki létti það brúnir Krist­ínar Elfu Guðna­dóttur og Tönju Ísafjörð þegar Gísli Marteinn bauð Stein­unni Ólínu í aug­lýs­inga­þátt sinn á RÚV til að kynna nýja bíó­mynd þar sem Egill Ein­ars­son leikur. Þær taka saman tal um Gísla Martein sem fær þá einkum að vera súper við­kunn­an­legur og kunni að segja það sem hentar og hann sé til í kaffi­spjall í des­em­ber. Hann fær þá einkum að vera meira ,,woke” en flestir á hans reki. Rétt er þó talið að vera á varð­bergi gagn­vart Gísla Marteini þar sem hann spili sig ein­fald­ari en hann er.
Hvort þessi orð­ræða Tönju og Krist­ínar Elfu um sam­skipti og vænt­an­legt kaffi­spjall með Gísla Marteini er rétt veit eng­inn. Getur þess vegna verið upp­spuni eins flest sem kemur fram í orð­ræðu kvenn­anna á sam­fé­lags­miðlum. Fjöðrin verður í hópum þeirra ekki að hænu heldur hænsa­búi þar sem hávað­inn og fyr­ir­ferðin eru jafn­gild sann­leik­anum.“

Sigurður sakar kon­urnar um and­legt ofbeldi og telur að bæði sann­leiks­ást þeirra og sið­ferði sé á lágu plani.

„Siðferði kvenn­anna og sann­leiks­ást virð­ist á lágu plani; reyndar mjög lágu plani. Leyfi ein­hver sér að efast um róg og ill­mælgi þeirra skal gengið frá honum með níði, aðdrótt­unum og hreinum óþverra­skap, sem senni­lega má flokka sem and­legt ofbeldi.“

Sigurður kemur síðan með þónokkur dæmi sem hann telur að sýni hvernig kon­urnar hafi beitt sér gegn nafn­greindu fólki og fyr­ir­tækjum þeirra á net­inu og sakar þær um óþverra­skap.

„Ragn­heiður Ara­dóttir akti­visti gegn nauðg­un­ar­menn­ingu sagði í færslu 11. jan­úar 2019 að litlu hlut­irnir skiptu máli. ,,Minn eigin litli aktí­vismi er að ég borga áskrift til Stund­ar­innar. Ég fékk í gegn að það sé ekki verslað við Henson hjá vinn­unni. Ég borða ekki á Gló. Bækur frá Óðins­auga ekki keyptar. Eruð þið með fleiri svona litla hluti sem þið gerið? @ Sjöfn Friðriks svarar „Vefjan!!““

Lokaorð Sigurðar eru nokkuð hvöss.

„Vonandi fer ofbeldi af hálfu þessar kvenna að ljúka. Þeim er ekki treystandi. Síst af öllu til nokk­urra góðra verka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina