Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Nína: „Gerandinn hefur engin áhrif á mig lengur – ég ræð sjálf hversu mikil áhrif fólk hefur á mig“

Nína: „Gerandinn hefur engin áhrif á mig lengur – ég ræð sjálf hversu mikil áhrif fólk hefur á mig“

„Við erum öll ein­stakar mann­verur, hæfi­leikum gæddar með ein­staka getu og þeir sem lifa í sjálfs­ást, þekkja þetta. Við búum öll yfir jafn mik­il­vægum og ein­stökum hæfi­leikum.“

Þetta segir Nína Margrét Pálma­dóttir, leið­bein­andi og eig­andi Lærðu sjálfs­ást. Það var sér­stak­lega ánægju­legt að hitta hana í Hvera­gerði þar sem hún býr og fræð­ast um hennar hjart­ans­mál og það sem dró hana inn á þessa veg­ferð.

Lærðu sjálfs­ást
Nína skil­greinir sjálfs­ást út frá því hvernig maður virðir sig sjálfan og hvernig maður virðir aðra í fullum kær­leika. Þeir sem finna fyrir þess­ari ást og sjálfsmildi í eigin garð, hafa fundið svo­kall­aða „sína leið“ og ná „að hlusta“ á hjarta sitt. Þessir ein­stak­lingar læra að þróa með sér jákvæða hugsun gagn­vart sér og öðrum.

„Þeir sem lifa í sjálfs­ást finna oft fyrir meiri frið innra með sér og til þess að öðl­ast þennan frið þarf að standa með sjálfum sér í einu og öllu. Dæmi um ein­stak­ling sem lifir í sjálfs­ást er t.d. Dalai Lama, hann býr yfir þess­ari ein­lægni.“

Nína er Hún­vetn­ingur, þriggja barna móðir og gift. Fjöl­skyldan býr í Hvera­gerði og starfar Nína sem mark­aðs­stjóri sam­hliða því að sinna með­ferð­inni „Lærðu að elska þig“.

„Ég er mennt­aður sjúkra­liði, ferða­mála­fræð­ingur, við­burða­stjórn­andi og sér­hæfði mig svo síðar meir í mark­aðs­málum. Síðustu 30 árin hef ég verið í mik­illi sjálfs­vinnu og það hefur verið helsta áhuga­mál mitt.“

Nína heldur nám­skeið í heilun/reiki sem hún lærði hjá Birgittu Hrönn Hall­dórs­dóttur og öðl­að­ist þar rétt­indi sem reiki­meist­ari. Að því námi loknu fékk hún þerapíu­rétt­indin til þess að miðla fræð­unum, en Birgitta hjá „Ný sýn“ kenndi allt námið.

Með öll þessi fræði og vit­neskju í fartesk­inu hefur Nína miðlað reynslu sinni inn í fyr­ir­tæki, stofn­anir, félaga­sam­tök og vin­kvenna­hópa. Mark­miðið er að auka með­vit­und í sam­fé­lag­inu um það hversu nauð­syn­legt er að vera náinn sjálfum sér og fara eftir inn­sæ­inu.

„Því inn­sæið veit alltaf hvað er best fyrir þig.

Þú ert með þér allan dag­inn, alla daga svo það skiptir máli hvernig þú ert við sjálfan þig

Ég er alltaf í þjálfun, enda þarf maður að þjálfa hug­ann eins og lík­amann. Maður er mik­il­væg­asta mann­eskjan í eigin lífi – maður getur ekki sagt sér upp, yfir­gefið sig eða fengið hvíld frá sér. Maður er með sér allan dag­inn, alla daga svo það skiptir máli hvernig maður er við sjálfan sig, svo það er eins gott að maður sé sann­gjarn, skemmti­legur og umhyggju­samur við sjálfan sig.“

Mis­notk­unin stóð yfir í nokkur ár
„Mis­notk­unin er það erf­ið­asta sem hefur gengið yfir mig, þó að ég líti ekki á hana sem „erf­iða“ reynslu í dag. Eina ástæða þess að ég lít ekki að þetta sem erf­iða reynslu í dag er sú að ég er búin að vinna úr áfall­inu með stans­lausri sjálfs­vinnu í tugi ára. Mis­notk­unin stóð yfir frá því að ég var ung að aldri í nokkur ár.“

Í dag er þetta ekki eitt­hvað sem situr í henni og hún finnur ekki til reiði út í verkn­að­inn eða út í ger­and­ann.

„Í upp­hafi byrjar maður á ein­hverju ákveðnu sorg­ar­ferli, fer síðan í reið­ina og svo sópar maður undir mott­una, en eftir það var ég til­búin til að taka á þessu verk­efni frá hjart­anu. Þetta ger­ist ekki á einni nóttu eða degi, heldur hef ég unnið með þetta verk­efni enda­laust og það hefur haft áhrif á allt mitt líf. Aldrei finnst mér að nokkur ein­stak­lingur þurfi að upp­lifa ofbeldi af neinu tagi þó að ég sé ekki reið að nokkru leyti út í ger­and­ann.

Þó að ég sjái ger­and­ann þá hefur það engin áhrif á mig, mér er alveg sama, ég ræð sjálf hversu mikið hver og einn hefur áhrif á mig

Það er ekki til í mér. Þetta gerði mig að þeirri mann­eskju sem ég er í dag og ég er sátt við mig eins og ég er núna. Ég veit að hann er veikur ein­stak­lingur sem gerði sér ekki grein fyrir því hvað hann var að gera barn­inu litla. Ég get talað um þennan atburð eins og hvað annað í mínu lífi og það er ekk­ert merki­legra en ef ég væri að segja frá ein­hverju öðru. Þetta hreyfir ekki neitt við mér eða mínum til­finn­ingum. Þó að ég sjái ger­and­ann þá hefur það engin áhrif á mig, mér er alveg sama, ég ræð sjálf hversu mikið hver og einn hefur áhrif á mig. Ég hef fyr­ir­gefið honum að fullu, sem hefur vissu­lega tekið mikið á að gera og langan tíma.“

Nína segir að þessi atburður hafi mótað hana sjálfa, eins og hún er í dag, og hún er sátt við sig eins og hún er og vill ekki breyta neinu. „Ef ég til dæmis hefði ekki þessa reynslu þá væri ég ekki með eins mikla inn­sýn í líðan skjól­stæð­inga minna og gæti síður hjálpað þeim.

Þetta er eitt af því sem hefur leitt mig að þeim stað sem ég er á í dag, sem er leiðin fyrir mig að sjálfri mér, ég vil vera tengd mér sjálfri en ekki ein­hverju öðru eða öðrum. Ég vil þrátt fyrir það taka fram að ég myndi að sjálf­sögðu ekki óska neinu barn að upp­lifa ofbeldi, það á ekki að eiga sér stað. Svona var þetta hjá mér og þá er næsta spurn­ing hvað ætla ég gera við þessa reynslu svo að hún trufli mig ekki meira í líf­inu og orsaki jafn­vel sjúk­dóma eða nið­ur­rif. 

Ég hef gert margt til að kom­ast yfir áföll og það er vissu­lega með öllum þeim verk­færum sem mér hafa verið rétt í gegnum lífið og margra ára sjálfs­vinnu, að ég er á þeim stað í líf­inu sem ég er á í dag. Málið er að þú end­ur­tekur sífellt sömu atburð­ina þangað til að þú hefur lært af þeim og nærð að brjóta upp hegð­unar- og hugs­ana­mynstrið og þá loks­ins nær maður að bregð­ast við á annan hátt. Það sem ég er að hjálpa fólki með er að kom­ast út úr og átta sig á því hvað sé í gangi. Slík vinna er mér mikið hjart­ans­mál.

Að lifa líf­inu í fullri sátt við mig sjálfa, elska mig til fulls svo að ég geti elskað allt og alla í kringum mig án kröfu eða for­dóma. Lifað heil­brigðu lífi í gleði og kær­leika. Því alltaf getur maður bætt sig, öðl­ast meiri þekk­ingu og þroska.“

Stolt mitt og áskor­anir
Nína seg­ist vera stolt­ust af fjöl­skyldu sinni og þá helst af fötl­uðum syni sínum, þótt hún vilji ekki að gera upp á milli barn­anna. Hann stendur uppi sem ein­stak­lingur sem býr einn og sér um sig sjálfur.

„En ég finn líka fyrir miklu stolti þegar ég sé skjól­stæð­inga mína vinna vinn­una sína vel, því þá ná þeir árangri. Eitt sinn kom skjól­stæð­ingur sem var ein­stæður, öryrki, algjör­lega orku­laus, mikið von­leysi í lífi hans og ekki mikið fram undan. Hann vann veru­lega vel í sínum verk­efnum, alveg ein­stakur, skemmti­legur og þægi­legur í alla staði. Þegar hann lauk ferl­inu hjá mér var hann búinn að fá vinnu, far­inn í fram­kvæmdir, far­inn að tala við börnin sín, kom­inn í sam­búð og orð­inn orku­meiri. Þetta gerir mann svo ham­ingju­saman og fyllir lífið gleði.

Hvert mál er ein­stakt og oft og tíðum finnst mér eins og önnur verk­efni séu gjör­sam­lega óyf­ir­stíg­andi.

En svo lít ég yfir lífið og sé að ég hef kom­ist yfir miklu stærri mál. Þetta snýst um það hvernig þú ætlar að vinna úr þínum verk­efnum og hvernig þú getur fundið þakk­lætið, því að öll verk­efni bera með sér tæki­færi til að sjá það góða. Á því augna­bliki áttar maður sig á því hvar maður er staddur og hvernig hægt sé að nýta þessa reynslu.“

Helsta áskor­unin og sárasta reynslan hefur verið að vinna úr fötlun drengs­ins og þeirra sam­skiptum. Hegðun hans og erf­ið­leikar hafa gengið mjög nærri Nínu. Enginn fæð­ist með þekk­ingu um hvernig ala eigi upp barn, hvað þá með fatlað barn, segir Nína hugsi.

„Ég hef tekið eftir því að flestir hafa skoðun á for­eldrum fatl­aðra barna. Skoðunin er sú að ann­að­hvort gera for­eldr­arnir of mikið eða of lítið fyrir barnið. Ég man ekki eftir því að hafa heyrt nokkurn segja: vá, hvað mamma þessa fatl­aða barns gerir nákvæm­lega allt rétt, hún er full­kom­lega rétt fyrir hann.

Því að börnin fæð­ast einmitt alltaf hjá réttu mömm­unni og hún er alltaf full­komin fyrir þetta barn. Svipaða sögu er hægt að segja um eig­in­konu alkó­hólist­ans.“

allir eru að gera sitt besta hverju sinni þó að mér finn­ist mæður fatl­aðra barna ofur­konur og -for­eldrar

Um dag­inn var Nína spurð hvort hún væri ofur­kona en um leið sagði hún: „Nei, ég er ekki ofur­kona því það geta allir menntað sig ef þeir hafa tök á því og unnið sína vinnu, en það geta ekki allir alið upp fatlað barn, barn sem þú færð í hend­urnar og ætlar að gæta, en ræður jafn­vel ekki við aðstæð­urnar í kringum barnið. Mundu samt, að allir eru að gera sitt besta hverju sinni þó að mér finn­ist mæður fatl­aðra barna ofur­konur og -for­eldrar.“

Ég valdi mér þá leið að aðstoða fólk og ég elska það
Áhugi á þessum fræðum kvikn­aði hjá Nínu þegar hún þurfti að vinnu úr erf­iðri lífs­reynslu. Henni finnst aðal­verk­efnið að miðla reynslu sinni og að aðstoða jörð­ina, dýrin og menn­ina með þeirri reynslu.

„Ég valdi mér þá leið að aðstoða fólk og ég elska þessa vinnu. Oft og tíðum koma ein­stak­lingar sem hafa svip­aða sögu að segja og ég og þá er mun auð­veld­ara fyrir mig að setja mig í spor við­kom­andi og hafa skiln­ing.“

Frá því að Nína var um 15 ára gömul hefur hún setið heilu dag­ana með vin­konu sinni og rætt þessi mál – lífs­ins mál – sem varð svo upp­haf hennar veg­ferðar að sjálfs­ást.

„Við fórum saman í nám af þessu tagi og höfum rætt þessi mál fram og til baka sem er mér ómet­an­legt. Vinkona mín hefur haft svo djúp­stæð áhrif á mig og hún er svo ein­stök, hvetj­andi og dug­leg.

Ég hef óbilandi áhuga á því að sjá ein­stak­linga vaxa og dafna, að sjá óskir fólks verða að veru­leika og það verða ham­ingju­samt. Það er alltaf ein­stak­ling­ur­inn sjálfur sem tekur ákvörðun um hvernig lífi hann vill lifa.

Ef þú hefur ekki trú á neinu þá er eng­inn til­gangur með líf­inu

Lífs­reynsla mín hefur verið fjöl­breytt frá unga aldri. Efnið sem ég er að kenna er ekki trú­ar­legs eðlis þó að ég vitni í trúna ein­staka sinnum. Ég tel að það sé nauð­syn­legt fyrir alla að hafa ein­hverja trú, hvort sem það er guð eða eitt­hvað annað. Ef þú hefur ekki trú á neitt þá er ekki til­gangur með líf­inu hér á jörð, vil ég meina. Ég tala um æðri mátt­ar­völd eða alheim­inn.“

Nína hafði gert sér grein fyrir því að ef hún ynni ekki í sjálfri sér þá myndi hún fest­ast í sömu sporum eða stöðugt upp­lifa og fá inn í líf sitt sömu verk­efnin til þess að takast á við. Hún segir að það sé alltaf ákvörðun hvers og eins hvað hann ætli að fást við og það heyri jafn­framt undir við­kom­andi að vinna úr því og læra og sjá smám saman hvernig sárs­auk­anum linnir.

„Ávallt skal maður hafa í huga að allir eru að gera sitt besta hverju sinni og ég líka. Það er svo eðli­legt að vera í sam­ræmi við sjálfan sig, eða rétt­ara sagt að virða og elska sjálfan sig þar sem maður ert allan dag­inn og alla daga með sjálfum sér. Þú ættir því að hugsa jafn vel um þig og barnið þitt, sem þú elskar skil­yrð­is­laust.“

Nína segir að ef fólk nær ekki teng­ingu við sjálft sig sé því gjarnt að leið­ast út í ýmiss konar fíkn eða fá sjúk­dóma. Þessi hegðun hefur sýnt henni hvað fólk getur verið vont við sig sjálft, hugsað illa til sín og sýnt sér van­virð­ingu.

„Auðvitað hefði ég viljað sjá miklu fleiri vera með­vit­aða um hversu mik­il­vægt er að lifa líf­inu í fullri sátt, hugsa vel um sig og hugsa fal­lega til sín.“

Njóttu þess að leyfa þér að lýsa upp þinn heim
Hana langar að koma því á fram­færi að það sé hennar ósk að fólk læri að virða sjálft sig og elska, því það leiðir fólk í átt að sjálfs­ást. Hún segir að við séum öll upp­full af hæfi­leikum, getu og visku sem eng­inn annar býr yfir eða er með. „Njóttu þess að leyfa þér að lýsa upp þinn heim og syndu þér gæsku, því ef þú gerir það ekki getur þú ekki ætl­ast til þess að aðrir geri það,“ segir Nína.

„Í dag á ég dásam­lega fjöl­skyldu, ein­stak­lega vel gerðan mann, börn og ynd­is­legt heim­ili. Ég get gert það sem mig langar til með fjöl­skyldu minni og fyrir mig. Ég á góða vina­hópa, átti dásam­lega for­eldra, er ham­ingju­söm og heppin í líf­inu. Ég tel að góður árangur sé vegna mik­illar sjálfs­vinnu.“

Hér er hægt að finna Facebook-síðu Lærðu sjálfs­ást

Netfang Nínu.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina